Alþýðublaðið - 29.03.1995, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 29.03.1995, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 1995 ■ Ólöf Kristjánsdóttir er verslunarmaður á Siglufirði og bæjarfulltrúi jafnaðarmanna þar. Hún skipar annað sætið á lista Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra. Alþýðublaðið ræddi við Ólöfu um AI|3^ðuflokkinn og jafnaðarstefnuna, störf ríkisstjórnarinnar og brýnustu verkefnin framundan Arangur nauðsynlegrar hreingemingar er að koma í Ijós Ólöf Kristjánsdóttir er fædd 17. janúar 1956 á Siglufirði. Hún er gift Sigurði R. Stefánssyni útgerð- arstjóra Þormóðs Ramma og eiga þau tvo syni. Ólöf er verslunarmað- ur og rekur ásamt öðrum verslunina Siglósport. Einnig er hún bæjarfull- trúi jafnaðarmanna á Siglufirði og situr sem slík í bæjaiTáði. Hún skip- ar annað sætið á lista Alþýðu- flokksins á Norðurlandi vestra. Ólöf, þú ert Siglfirðingur frá blautu barnsbeini, en við fréttum að gamla fólkið á elliheimilinu á Blönduósi hefði ekki átt í vand- ræðum með að finna þér stað í Húnavatnssýslum? „Já, og það var mjög ánægjulegt að heimsækja elliheimilið á Blönduósi, en þangað komum við Jón Hjartarson um daginn. Eg á sem sé ættir að rekja í Húnavatns- sýslur í móðurætt. I heimsókninni spjallaði ég við íbúana og þar kom minn uppruni til tals, en afabróðir minn var Kristófer Pétursson gull- smiður og mitt fólk er frá Stóru Borg og Gauksmýri í Húnaþingi. Þarna um slóðir á móðir mín systk- ini, bróðir á Hvammstanga og syst- ir á Öxl. Það er því ekki iangt í ætt- ingjana hjá mér á þeim slóðum og það var afar ánægjulegt að tala við gamla fólkið. Og það er ekki bara frótt um ættir og þjóðlegan fróð- leik. Það fylgist vel með þróuninni og hefur skilning á vandamálum þjóðfélagsins og þeim erfiðleikum sem þjóðarskútan hefur gengið í gegnum. Þetta brennur einmitt á fólki, þessir erfiðleikar, ekki síst vegna aflasamdráttarins." Þú aðhyllist jafnaðarstefnuna. Hvernig kom það til? „Ég er fædd hér á Siglufirði og alin upp á miklu jafnaðarmanna- heimili. Foreldrar mínir, Elísabet Guðmundsdóttir og Kristján Stur- laugsson, fylgdu Alþýðuflokknum að máli og stefna jafnaðarmanna var innprentuð í okkur systkinin, sjö að tölu. Um leið var okkur þó kennt að mynda okkar eigin lífssýn og sýna sjálfstæði. Jafnaðarstefnan sveif samt yfir vötnunum. Ég ætla ekki að fjölyrða um systkinin, en held að andi jafnaðarstefnunnar hafi náð til okkar allra. Foreldrar okkar tóku virkan þátt í pólitísku starfi og ég man að pabbi var á list- um flokksins og átti sæti í nefndum innan hans og utan. Og ég hef sjálf aldrei verið í vafa um hver sé minn flokkur." Hver eru megináherslur jafn- aðarstefnunnar eins og hún birt- ist þér? „Þær endurspeglast í hugsjóninni um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Þetta er undirstaðan sem allt bygg- ist á. 1 mínum huga er velferð heim- ilanna eitt stærsta málið í dag, enda er fjölskyldan hornsteinn þjóðfé- lagsins. Allt annað verður að taka mið af þessari staðreynd." Atvinnumálin eru iðulega ofar- lega í hugum manna. Hvernig eru útlitið og horfurnar á Siglu- firði þessa dagana? „í það heila er útlitið nokkuð bjart. Ég nefni að Þormóður Rammi er orðið mjög öflugt fisk- vinnslufyrirtæki á landsvísu og þar hafa verið að gerast mjög góðir hlutir sem hafa orðið atvinnulífinu hér til bóta. Fyrirtækinu hefur gengið mjög vel og maður væntir þess að svo verði áfram, enda hagur Siglufjarðar að það gerist. Störfum hjá Þormóði Ramma hefur reyndar ekki fjölgað og því vona ég að með nýsköpun og aukin breidd í at- vinnulífinu fjölgi atvinnutækifær- unum. Eins eru fjölmörg önnur fyr- irtæki í bænum sem hafa staðið sig með sóma. Þar mætti nefna SR- mjöl, Siglfirðing og Ingimund. Við jafnaðarmenn erum í meirihluta- samstarfi í bæjarstjórninni og höf- um við unnið að því að fá hingað ný fyrirtæki til að stuðla að nýjungum í atvinnulífinu. Við sjáum til hvern- ig til tekst, en það þarf ekki að fara mörgum orðuð um hversu brýnt málið er.“ Hvernig hefur ríkisstjórnin staðið sig að þínu mati - ertu ánægð með samstarf Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokks- ins? „Ég held að núverandi tveggja fiokka stjórn hafi verið það besta í stöðunni sem var uppi fyrir fjórum árum, en ég veit líka að það er erfitt að vera í samstarfi við Sjálfstæðis- flokkinn. Auðvitað væri best að við hefðum stóran jafnaðarmannaflokk einan við völd og það er minn draumur. En ef við lítum til þessar- ar ríkisstjómar þá er ofarlega í mín- um huga að hún hefur orðið að beita sér fyrir umdeildri og erfiðri tiltekt í heilbrigðiskerfinu. Bless- unarlega hefur á landsvísu orðið fjölgun á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Það hefði ekki verið hægt að Ijölga þessum rýmum án hrein- gerningar. En það þarf að gera enn betur í þeim efnum. Þessi ríkis- stjórn hefur þrátt fyrir erfiðleika getað varið velferðarmálin og treyst undirstöðurnar. A hinn bóg- inn hefur niðurskurðurinn komið illa við marga, ekki síst á lands- byggðinni og það gerir það að verk- um að það er erfitt að verja ríkis- stjórnina, hvað þá hæla henni. En hreingerning var óumfiýjanleg. Liklega hefur ríkisstjómin staðið sig hvað best gagnvart fyrirtækjun- um og atvinnulífinu almennt. Hér um slóðir er hagur fyrirtækjanna að vænkast, en það sem hins vegar stendur svæðinu og landsbyggðinni allri fyrir þrifum er hve einhæft at- vinnulffið er. Ég hef séð það á mín- um ferðum að það vantar meiri breidd. Ég vil sjá meiri fullvinnslu í bæði landbúnaði og sjávarútvegi. En það þarf líka að gæta að áhrifum framþróunarinnar. Nú er til dæmis komin ný tækni í rækjuvinnsluna sem hefur það í för með sér að það þarf færri hendur til að vinna hrá- efnið. Það þarf því eitthvað að koma í staðinn til að taka við vinnufúsum höndum. Við alþýðu- flokksmenn viljum leggja okkar af mörkum til að auka atvinnutæki- færin. Það þarf ekki síst að auka við breiddina í atvinnulífinu. Ég er ekki nteð neinar töfralækningar á tak- teinunum, enda er það víðtækt sam- starfsverkefni margra aðila að finna leiðir út úr vandanum.“ Hver verða brýnustu verkefnin fyrir ríkisstjórn næsta kjörtíma- bils? „Atvinnumálin, menntamálin og velferðarmálin eru mikilvægustu mál næsta kjörtímabils. Til að stuðla að sem mestum framgangi á þessum sviðum tel ég nauðsynlegt að hafa Alþýðuflokkinn sterkan og að hann verði áfram í ríkisstjórn. Nú blasir við að eftir mikið erfið- leika- og samdráttarskeið liggur leiðin ótvírætt upp á við og þá fer árangur af verkum jafnaðarmanna að koma í ljós. Efnahagsbatann verður að nota til að jafna lífskjör- in, sem er afar mikilvægt; ég er ekki bara að tala um hækkun launa, heldur um bætta stöðu heimilanna á heildina Iitið. Ég nefni í því sam- bandi lækkun orkukostnaðar, lækk- un símakostnaðar og bætta fiutn- inga. Fyrir landsbyggðina eru þetta stórmál. A næsta kjörtfmabili vil ég síðan sjá að fólki gert það léttara að koma bömum sínum til mennta. Menntastefnunni þarf að breyta þannig að meira er lagt upp úr verk- menntun, með tilliti til þess hverju við lifum á. Einnig vil ég undir- strika nauðsyn þess að gera átak í vegamálum, en við höfum á þess- um slóðum verið látin sitja á hakan- um. Við á Siglufirði krefjumst þess einfaldlega að komast í betra vega- samband við umheiminn. Þetta vandamál þekkja Siglfirðingar vel og ég vil berjast fyrir úrbótum í þessum málaflokki." „Atvinnumálin, menntamálin og velferðar- málin eru mikilvægustu mál næsta kjör- tímabils. Til að stuðla að sem mestum fram- gangi á þessum sviðum tel ég nauðsynlegt að hafa Alþýðuflokkinn sterkan og að hann verði áfram í ríkisstjórn." Ólöf Kristjánsdóttir: í minum huga er velferð heimilanna eitt stærsta máfið í dag, enda er fjölskyidan horn- steinn þjóðfélagsins. Allt annað verður að taka mið af þessari staðreynd. Milliliðalaust bréftil bænda Pallborðið Alþýðuflokkur- inn hefur aldrei farið með stjórn landbúnaðarmála. Það hefur verið hlutskipti annarra flokka. Núverandi haftakerfi, sem bændur búa við, felur í sér þjakandi og óviðunandi starfsskilyrði fyrir þá eins og þeir best þekkja sjálfir. Við viljum leysa bændur úr Ijötrum mið- stýringar og fákeppni með því að af- nema kvótakerfið. Við viljum að rík- issjóður greiði bú- setulaun. Jafnframt vilj- um við veita þeim bændum sem vilja stækka bú sín frelsi til að fram- leiða það magn sem þeir ráða við af hagkvæmnis- ástæðum og losa þannig úr læðingi þau öfl hagræðingar og nýsköpunar sem drepin hafa verið í drónta. Sér- „Við gagnrýnum ekki bændur heldur sjálft landbúnaðarkerfið, enda viljum við standa vörð um hagsmuni bændastéttarinnar og hjálpa þeim að komast undan oki offjárfestingar og úr þeirri sjálfheldu sem miðstýrð ofstjórn hefur hneppt þá í." staka aðstoð þarf að veita eldra fólki í sveitum sem vill minnka umsvif sín. Með samþykki allra flokka á Al- þingi Islcndinga á GATT-samningn- um er ljóst að landbúnaðurinn verður að semja sig að meiri samkeppni og nýjum aðstæðum. Við treystum bændum sjálfum til að stjóma eigin málum. Við teljum að fullvinnsla landbúnaðarafurða fyrir erlenda markaði hafi hvergi verið reynd að fullu. Fullunnar vistvænar afurðir geta átt greiða leið á hollustu- markaði fyrir gott verð ef rétt er á málum haldið. Ríkissjóði ber að standa straum af kostnaði við auknar rannsóknir, þró- unarstarfi og markaðsleit fyrir ís- lenskar landbúnaðarafurðir cnda em stjómvöld ábyrg fyrir þeim vanda sem búskapurinn býr við. Við gagnrýnum ekki bændur heldur sjálft landbúnaðarkerfið, enda viljum við standa vörð um hagsmuni bændastéttarinnar og hjálpa þeim að komast undan oki offjárfestingar og úr þeirri sjálfheldu sem miðstýrð of- stjórn hefur hneppt þá í. Alþýðu- fiokkurinn leitar eftir samvinnu og stuðningi bænda til að koma málum í betra horf fyrir land og þjóð. Höfundur er skólameistari og 1. maður á framboðslista Alþýðuflokksins á Norðurlandi vestra.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.