Alþýðublaðið - 08.11.1996, Qupperneq 1
Föstudagur 8. nóvember 1996
Stofnað 1919
169. tölublað - 77. árgangur
Fyrir hálfri öld, haustið 1946 bættust Alþýðuflokknum tveir nýir þingmenn, þeir Gylfi P. Gíslason og Hannibal Valdi-
marsson. Þegar Gylfi minnist haustsins er hann settist fyrst á Alþingi segir hann: „Á þeim tíma voru uppi deilur í Al-
þýðuflokknum, bæði um utanríksmál og innanlandsmál. Ekki eru voru nema átta ár liðin, síðan örlagaríkur klofningur
varð í flokknum. Við Hannibal höfðum ekki átt aðild að þeim átökum. Við vorum að ýmsu leyti fulltrúar nýrra sjónar-
miða, sem smám saman urðu stefna flokksins." Q/lfi hafði viðknru í þingflokksheadDergi Alþýðuflokksins fyrir skörrru
og ljóarpidari Alþýðublaðsins festi ham á nnynd ásamt Jcni Ealdvini Hannibalssyni fornHnni Alþýðuflokksins og
HMVUBUBIB
Rannveigu Guðrundsdóttur forrranni þingflokks jafnaðarmanna.
Guðmundur Árni Stefánsson og Sighvatur Björgvinsson yfirheyrðir
Áherslan á mikilvægi
sameiningarumræðunnar
í Alþýðublaðinu í dag eru formannsframbjóðendumir tveir, Guð-
mundur Árni Stefánsson og Sighvatur Björgvinsson, teknir á
beinið. í máli frambjóðendanna kemur fram að þeir leggja ríka
áherslu á mikilvægi sameiningarumræðunnar.
Guðmundur Árni
Stefánsson:
„Eg vil að stjórnmálamenn fari
miklu meira út til fólksins og aðlagi
sig betur að því lífi sem hér er lifað.
Þeir eiga ekki að vera sérstök stétt sem
talar yfir hausamótunum á fólki. Þeir
eiga að hlusta á það sem fólkið hefur
fram að færa...
Fortíðin er að baki og maður finnur að fólk á mínum aldri og þaðan af yngra
vill ekki láta fortíðina þvælast fyrir...
Sumir eru þeirrar skoðunar að ég geti komið að meira gagni í sameiningar-
málunum en Sighvalur, en það verða aðrir að svara því.
Það verður tekist á um það milli íhaldsaflanna og jafnaðarmanna á næstu ár-
um og áratugum hverjir eigi auðæfi landsins.“
Sighvatur Björgvinsson
„Stærsta og þýðingarmesta hlutverk
okkar Alþýðuflokksmanna nú, er að
leiða baráttuna fyrir samstarfi jafnað-
annanna...
Við erum að reyna að vekja bylgju
meðal almennra kjósenda, hreyfingu
fyrir því að þetta takist. Þegar að því
kemur að málið verður tekið fyrir í
stofnunum flokkanna, á að vera tryggt að bylgjan verði ekki stöðvuð...
„Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn að pólitískum umskiptingi... Sjálfstæðis-
flokkurinn er orðinn flokkur afturhalds og stöðnunar, og slíkur flokkur hlýtur að
vera höfuðandstæðingur jafnaðarmanna."
Sjá blaðsíðu 5 og blaðsíðu 7
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Ferill Jóns Baldvins
í myndum og máli.
Hallgrímur Helgason
um pólitíska erfðaskrá
og eringjaerjur.
Ungir jafnaðarmenn
um flokkakerfið árið
2016.
Opnuviðtal við
Guðmund Oddsson.
Var á flokksþingi
fyrir 50 árum.