Alþýðublaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
19
Utanríkisráðherrar Norðurlanda á ísafirði síðsumars 1989, áður en lagt var út á sjó
í hryssingslegu veðri. Utanríkisráðherra Finnlands missti lífslöngun í þessari ferð.
Sten Anderson fékk köldu og skalf í einn sólarhring. Thorvald Stoltenberg, hinn
norski, hafði vit á að forða sér. Uffe Elleman var sá eini sem lifði af.
langa ferð. Orkan var óþrjótandi á þessum tíma.
Stjórnarmyndunarviðræður 1987. Við vorum full bjartsýni og starfsgleði. Stútfull af hugmyndum. Jón
Sigurðsson staðfesti það sem áður var vitað að hann er yfirburðamaður til þeirra starfa sem hann tek-
ur að sér. Flokksmenn sögðu gjarnan um okkur Jóhönnu að við værum farsælt tvíeyki og bættum
hvort annað upp. Það veikti Alþýðuflokkinn þegar Jón Sigurðsson hvarf að vettvangi og brotthlaup
Jóhönnu var nokkuð sem rótgrónir alþýðuflokksmenn hefðu aldrei trúað að gæti átt sér stað.
‘’C tilll
Tf
;
1
\]m
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
á fundi í Stokkhólmi með Nel-
son Mandela skömmu eftir að
hann var látinn laus úr fangelsi.
Það stafaði rósemi hugans og
kyrrð af þessum manni.
Uffe Elleman Jensen býður vin
sinn velkominn til mannréttinda-
ráðstefnu sem haldin var undir for-
sæti hans í Kaupmannahöfn 1990.
Á þessum fundi gerðist það að
utanríkisráðherrar Eystrasaltsland-
anna leituðu eftir stuðningi við
málstað sinn. Það leiddi til þess að
ég henti fyrirfram gerðu handriti
að ræðu og talaði máli þeirra á ráð-
stefnunni. Þegar ég gekk úr ræðu-
stól spratt úr sæti sínu maður sem
sat framarlega í fundarsalnum,
faðmaði mig að sér og sagði: „Mik-
il forréttindi eru það að vera utan-
ríkisráðherra smáþjóðar og hafa
frelsi til að segja sannleikann."
Þessi maður var Kampelman, einn
helsti samningamaður Bandaríkj-
anna í afvopnunarviðræðum í Vín,
sá hinn sami og kom á ráðstefnuna
í Höfða til að minnast tíu ára af-
mælis Reagans-Gorbasjovs fundar-
ins.
Þessi mynd er aðallega merk fyrir
það að þarna sést EFTA hatturinn.
Það var sænsk blaðakona sem
sagði eitt sinn í fréttaskýringu að
hatturinn minn væri eins konar
tákn EFTA ríkjanna, sérstaklega
vegna þess að sá sem hattinn bar
hefði gefið EFTA líf og lit á frétta-
mannafundum.
Endapunkturinn á EES samningunum. Ég hef stundum sagt að þau væru
ekki einleikin táknin við þessa undirskrift. Athöfnin fór fram í Arabíska
salnum í kauphöllinni í Oporto í Portúgal. Þeir sem undirrituðu þennan
mikla viðskiptasamning Evrópuríkja báru báðir arabísk nöfn. Sá skrifaði
undir fyrir hönd EFTA hét Hannibalsson, sem er arabískt nafn, og hinn
sem skrifaði undir fyrir hönd Evrópusambandsins hét Annibal Silva, sem
er einnig arabískt nafn. En hver merking þessa er veit ég ekki.
Ekki veit ég hverju Davíð
Oddsson er að trúa mér
fyrir á þeim tíma þegar
betur fór á með okkur en
stundum síðar.
! I I. ! í . '