Alþýðublaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
23
ö I d i n
■ Árið 2016 eru hundrað ár liðin frá stofnun Alþýðuflokksins.
En hvernig verðurflokkakerfið? Alþýðublaðið beindi þeirri
spurningu til nokkurra ungra alþýðuflokksmanna
Flokkakerfið árið
Magnús Árni Magnússon
Jafnaðarmannaflokkur
stærsti flokkurinn
Verður maður ekki að vera trúr
þeirri hugsjón sinni að þá verði stór
sameinaður jafnaðarmannaflokkur
orðinn að veruleika? Hann verður
hugsanlega með í kringum 40-45 pró-
sent fylgi. Ég sé fyrir mér að Sjálf-
stæðisflokkurinn verði talsvert minni
en hann er í dag, með urn 25 prósenta
fylgi, og orðinn algjör íhalds- og aftur-
haldsflokkur. Framsóknarflokkurinn
verður enn jafn stór og hann er í dag,
með 25 prósent fylgi en orðinn mun
ftjálslyndari og víðsýnni en hann er í
dag. Eigum við ekki að segja að rót-
tækur hægri flokkur verði með 7-10
prósent, og svo gætu róttækir vinstri
flokkar, fastir í fortíðinni, verið á ein-
hveiju róli.
f stjóm verða jafnaðarmenn og
Framsóknarflokkur og við jafnaðar-
menn höfum forsætisráðuneytið.
Brynjólfur Þór Guðmundsson
Sjálfstæðisflokkurinn
stærsti flokkurinn
Einhvem veginn á ég erfitt með að
trúa því að jafnaðarmenn verði komnir
með stærsta stjómmálaflokk landsins.
Sjálfstæðisflokkurinn verður eftir sem
áður stærsti flokkur landsins með 35-
40% fylgi- Hvað verður um hina
flokkana fer eftir því hvort og þá
hvernig jafhaðarmenn bera gæfu til að
sameinast. Ef við göngum út frá því
að við sameinumst má gera ráð fyrir
jafnaðarmannaflokki með um 30-
35% fylgi og afturhaldssömum miðju-
flokki sem hefði um 15-20% fylgi
meðan einhver flokksbrot á vinstri-
væng myndu skipta með sér restinni
af atkvæðamagninu, hversu lítið sem
það væri. Miðjuflokkurinn (Fram-
sóknarflokkurinn) myndi síðan sveifl-
ast milli Sjalla og jaftiaðarmanna frá
einu kjörtímabili til annars og vinstri
smáflokkamir sem spryttu upp ýmist
starfa með jafnaðarmönnum eða vera
utanveltu.
Óþarft frá að segja gæti allt eins far-
ið svo, og er jafnvel líklegra, að Sjálf-
stæðisflokkur verði stærstur, svo komi
Framsókn, Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag. Kvennalisti verður löngu
runninn sitt skeið á enda en einhveijir
smáflokkar spretta upp af og til og
deyja svo.
Jóhanna Þórdórsdóttir
Tveggja flokka kerfi
Framtíðin er fyrir mér frekar þoku-
kennd og gæti tekið á sig marvíslegar
myndir. Þó sé ég helst fyrir mér að hér
verði tveggja flokka kerfi. Flokkamir
tveir munu, hvor um sig, verða regn-
hlífasamtök þar sem fólk getur starfað
að sínum hugðarefnum á breiðari
gmndvelli en tíðkast í dag. Annar
flokkur mun halda í óbreytt ástand,
vera íhaldssamur, og hinn mun boða
breytingar, vera róttækur. Ég vona að
það flokkakerfi sem muni blasa við
mér árið 2016 muni einkennast af
meiri aga og hafa langtímastefnumót-
un að markmiði. Abyrgðarleysi sem
helst má lýsa með orðum bama eftir
að þau hafa gert eitthvað af sér, til
dæmis „ég gerði það ekki“ eða „ég
byijaði ekki, það var hann“, er óvið-
unandi í lýðræðisþjóðfélagi því það
býður kjósendum ekki trúverðugan
valkost. Ekki má gleyma málefnum
sem móta átakalínur flokkanna. Nýrri
kynslóð fylgja oftast ný málefni og
átakalínur munu að mínu mati snúast
meira um hvemig við leysum þann
umhverfisvanda sem blasir við okkur
þá í mun alvarlegri mynd en hann ger-
ir í dag.
Flokkakerfið mun sem sagt verða
einfaldara og gefa fólki möguleika á
að kjósa um hvort það telji breytingar
á þjóðfélagsaðstæðum árið 2016
nauðsynlegar eða hvort það telji
óbreytt ástand farsælast.
Steingrímur Þórhallsson
Sameinaðurflokkur
Með hliðsjón af ömm breytingum
þjóðfélags okkar á undanfömum ámm
þar sem flest byggist á endurskipu-
lagningu í leit að ódýrri fullkomnun,
er óhjákvæmilegt að ímynda sér þrig-
gja flokka kerfi, þar sem litlir og þar
af leiðandi óhagkvæmir flokkar sam-
einist í eina stóra heild. Þessi heild
getur látið rödd sfna um umbætur í
þágu einstaklingsins heyrast, heyrast
gegn óffumlegum aðgerðum þjóðar
Davíðs og lopapeysuframboðs Fram-
sóknar (sem eftir aðstæðum breytir
oftar um lit en kamelljón á fengitíma),
aðgerðum sem em að breyta þeim sem
minnst mega sín í kennitölu á ört vax-
andi lista gjaldþrota einstaklinga.
Þessi sameinaði flokkur verður
byggður upp af ungu fólki sem mun
2016 hafa lokið námi í því hræðilega
umhverfi í mennta og menningarmál-
um sem er í dag og virðist ætla verða
næstu árin. Það mun muna hvemig á
því var troðið um og fyrir 2000 og
leggja sig fram um að laga það sem
mun verða orðið rústir einar sem sagt
skólamál, verkalýðsmál, og ört
minnkandi menningarvitund Islend-
inga. Eldra fólk mun flykkjast að
þessu kraftmikla og hugmyndaríka
fólki og leiða íslartd inn í framtíðina.
STgFNfl
A L Þ Ý Ð U -
FLoKKSÍNS
I menningarmálum leggurflokksþing Alþyðuflokksins höfuðáherslu á, að menning á
ekki og má ekki vera forréttindi fárra útvaldra. Brjóta ber niður þá mura stéttaskiptingar,
sem of víða er að finna í íslensku menningarlifi.
Samþykkt á flokksþingi 1982.
37. þing Alþýðuflokksins lýsir áhyggjum
sínum yfir geigvænlegri spillingu, sem í
Ijós hefur komið i hinum mörgu og alvar-
legu sakamálum, erfram hafa komið síð-
ustu misseri, svo og alvarlegum veikleika
dómskerfisins, sem lýsir sér best í því,
hve fá þessara mála hafa verið upplýst.
Þingið lýsir áhyggjum sínum yfir þeim
siðferðilega veikleika, sem fram hefur
komið í margs konar misnotkun sérað-
stöðu einstaklinga, margra þeirra í
fremstu röðum forustumanna þjóðarinn-
ar. Það er áhyggjuefni að slík misnotkun
skuli viðgangast, og hvetur þingið þjóð-
ina til þess að rísa gegn þessari óheilla-
þróun.
Samþykkt á 37. þingi Alþýðuflokks-
ins árið 1976.
Flokksþingið lýsir stuðningi sínum við...
að sett verði stjórnarskrárákvæði um að
allar auðlindir innan íslenskrar lögsögu
skuli vera eign (slendinga einna, og að allt
land annað skuli vera þjóðareign.
Samþykkt á 39. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 31. október til 2.
nóvember 1980.
Flokksþing Alþýðuflokksins telur einsýnt,
að einokunarréttur rikisins á sviði Ijós-
vakamiðla sé ekki lengurtæknilega hald-
bær. Því er nú tímabært að rýmka reglur
um leyfi til útvarpsreksturs.
Samþykkt á 41. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 5. til 7. nóvember
1982.
Við næstu kosningartil Alþingis skal fara
fram þjóðaratkvæðisgreiðsla um hvort
koma eigi á fót einum, sameiginlegum líf-
eyrissjóði fyrir alla landsmenn.
Samþykkt á 43. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var í Hveragerði 3. til
5. október 1986. Þetta var fyrsta
þingið í sögu flokksins sem haldið
var utan Reykjavíkur.
Alþýðuflokkurinn telur að starf embættis
umboðsmanns Alþingis hafi sannað gildi
þess og leitt í Ijós hvílík þörf var á því
starfi, sem þarferfram. Flokkurinn telur
að samsvarandi starfsemi eigi víðar fullan
rétt á sér og vill að unnið verði að því að
koma á fleiri embættum umboðsmanna.
Má þar nefna umboðsmann barna og
neytenda.
Samþykkt á 45. þingi Alþýöuflokks-
ins, sem haldið var 12. til 14. októ-
ber. Cecil Haraldsson bar fram þessa
tillögu.
Alþýðuflokkurinn er reiðubúinn að skoða
aðra kosti [en EESj síðar, þar á meðal að-
ild að Evrópubandalaginu, að því tilskildu
að samningar hafi náðst um fríverslun
með fiskafurðir og Evrópubandalagið lát-
ið af kröfum sínum um aðgang að fiski-
miðum gegn aðgangi að mörkuðum.
Úr stjórnmálaályktun flokksþingsins
1990.
Endurskoða þarf skipulag skólakerfisins
með tilliti til þess að það sé betur fært til
að koma til móts við misjafnar þarfir
barna og unglinga.
Samþykkt á 46. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 11. til 14. júní
1992.
Flokksþingið telur að þjóðfélagsþróun
siðustu áratuga og bætt lífskjör almenn-
ings kalli á endurskoðun á hugmyndum
okkar um velferð og skipulag velferðar-
kerfisins.
Samþykkt á flokksþingi 1992.
I utanríkismálum standa íslendingar á
krossgötum. Siðan EFTA-þjóðirnar gengu
til samninga um EES í þyrjun árs 1989
hefur heimurinn i kringum okkur tekið
stakkaskiptum. Hinar pólitísku forsendur
sem lágu að baki samningnum eru nú
brostnar.
Úr stjórnmálaályktun 47. þings Al-
þýðuflokksins, sem haldið var 9. til
12. júní 1994.
Hafnarfjörður
Verkakvennafélagið
Framtíðin
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins um
stjórn og aðrar trúnaðarstöður liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Strandgötu 11, Hafnarfirði frá og með mánu-
deginum 11. nóvember til og með fimmtudeginum 14.
nóvember n.k.
Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn
14. nóvember og er þá framboðsfrestur útrunninn.
Tillögum þarf að fylgja meðmæli 20 fullgildra félags-
manna.
Verkakvennafélagið Framtíðin