Alþýðublaðið - 08.11.1996, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
■ Nýtt fólk í nánast öll embætti í forystusveit
Alþýðuflokksins kjörið um helgina
Miklar
breytingar
á flokks-
forystunni
Ljóst er að miMar breyt-
ingar verða á forystu Al-
þýðuflokksins á flokks-
þinginu sem nú stendur yf-
ir. Kosið verður milli Guð-
mundar Áma Stefánssonar
og Sighvats Björgvinssonar
í embætti formanns Al-
þýðuflokksins. Gunnar Ingi
Gunnarsson hefur gefið
kost á sér til varaformanns
og framboð Sigrúnar Bene-
diktsdóttur hefur einnig
komið til tals.
Guðmundur Ámi sagði í
samtali við blaðið, að hann
ætti ekki frumkvæði að
framboði neins til varafor-
manns. Aðspurður um
hvort hann gengi til for-
mannskjörs með tillögu um
ákveðinn varaformann
sagði Guðmundur: „Eins
og ég hef áður sagt býð ég
mig fram til formanns og
framboð mitt er ekki hluti
af neinni blokk. Hins vegar
hafa margir stuðningsmanna minna haft á orði að
undanförnu, að það færi vel á því að Össur
Skarphéðinsson gæfí kost á sér til varaformanns.
Um þetta hef ég ekkert frekar að segja.“
Sighvatur Björgvinsson kvaðst ekki hafa átt
neinn þátt í ákvörðunum
manna um framboð til
varaformanns. „Eini mað-
urinn sem formlega hefur
gefið kost á sér, Gunnar
Ingi Gunnarsson, sagði
mér af framboði sínu eftir
að hann tilkynnti stjórn
Alþýðuflokksfélagsins um
það. Ég átti engan hlut í
þeirri ákvörðun. Ég hef
heldur ekki gefið neinum
skuldbindingu um stuðn-
ing í embættið og mun
ekki gera,“ sagði Sighvat-
ur. Aðspurður hvort hann
myndi gera tillögu um
skipan varaformanns þeg-
ar hann gengi til for-
mannskjörs svaraði hann:
„Nei, það mun ég ekki
gera.“
Össur Skarphéðinsson
Var sterklega nefndur sem
formannsframbjóðandi, en
hann hefur ekki ljáð máls
á því. Hann sagði í samtali
við blaðið í gær: „Ég hef verið því frábitinn að
taka að mér trúnaðarstörf í forystu flokksins, og
hef látið þá skoðun í ljós við stuðningsmenn
beggja ffambjóðenda sem hafa leitað til mín að
undanfömu. Nafn mitt hefur verið nefht talsvert í
Leitað hefur verið til Össurar Skarphéð-
inssonar frá stuðningsmönnum beggja
frambjóðenda um að gefa kost á sér í
varaformennsku. Hann hefur tekið slík-
um áskorunum fjarri.
Magnús Norðdahl. Sterklega orðaður við
formennsku í framkvæmdastjórn.
Árni Gunnarsson fyrrum þingmaður og for-
seti flokksþings þykir álitlegur í ýmis emb-
ætti, en mun ekki vera á leið í framboð.
kringum varaformennsku og formennsku í fram-
kvæmdastjóm, en ég hef einfaldlega um að ann-
að hugsa."
Fleiri hafa verið nefhdir til sögunnar varðandi
framboð til varaformanns. Þar á meðal Gestur G.
Gestsson, Ásta B. Þorsteinsdóttir, Anna Margrét
Guðmundsdóttir, Árni Gunnarsson, Petrína
Baldursdóttir og Gylfi Þ. Gíslason yngri.
NÝ VIÐHOBF I Ö
NÝJAR ÞARFIR
Gunnar Ingi Gunnarsson gefur kost á sér til
varaformanns.
Ásta B. Þorsteinsdóttir varaþingmaður er
nefnd sem hugsanlegur frambjóðandi í emb-
ætti varaformanns.
Guðmundur Oddsson formaður framkvæmda-
stjómar lætur af embætti og sömuleiðis Sigurður
Amórsson gjaldkeri. Valgerður Guðmundsdóttir
ritari gefur hins vegar áfram kost á sér til starf-
ans. í framkvæmdastjóm sitja einnig sex fulltrú-
ar til viðbótar, sem kosnir em á flokksþingi, sem
og formaður og varaformaður flokksins.
Nokkur nöfn verið nefnd sem formannsefni
framkvæmdastjórnar. Jón Baldvin
Hannibalsson sagði í „pólitísku erfða-
skránni" að Össur Skarphéðinsson væri
kjörinn í það embætti, en Össur hefur
ekki sýnt því áhuga einsog fram kom
hér að ofan.
Meðal þeirra sem nefndir hafa verið
til sögunnar em Árni Gunnarssonr og
Gestur G. Gestssonar, sem einnig hafa
verið orðaðir við embætti varafor-
manns eins og áður segir. Sömuleiðis
hefur Magnús Norðdahl verið nefndur
sem kandidat til formanns fram-
kvæmdastjómar. Kristinn T. Haralds-
son hefur ákveðið að gefa kost á sér í
embættið.
Fáir hafa verið nefndir í embætti
gjaldkera, en þó hefur nafni Sigrúnar
Benediktsdóttur talin líkleg til að gefa
kost á sér til gjaldkera, ef varafor-
mennsembættið fellur öðmm í skaut.
Auk formanns og varaformanns
flokksins, formanns framkvæmda-
stjómar, gjaldkera og ritara, sitja sex
manns til viðbótar í framkvæmdastjóm
sem flokksþingið kýs. Þar eiga nú sæti
þau Steindór Haraldsson, Arnór Be-
nónýsson, Hervar Gunnarsson, Bryndís
Kristjánsdóttir, Magnús Ámi Magnús-
son og Petrína Baldursdóttir. Ekki er
annað vitað en flest þeirra muni gefa
kost á sér áífam til setu í framkvæmda-
stjóm. Þó hefur heyrst að Amór muni
ekki sækjast eftir endurkjöri. Hólmfríð-
ur Sveinsdóttir er sögð hafa hug á setu í
framkvæmdastjórn. Ungir jafnaðar-
menn hafa hins vegar fullan hug á að
láta þar meira til sín taka. Enn er Gest-
ur G. Gestsson nefndur í því sambandi
og ennfremur Hreinn Hreinsson, Kol-
beinn Einarsson, Þóra Arnórsdóttir,
Ingvar Sverrisson, Aðalsteinn Leifsson
og Gunnar Alexander Óiafsson.