Alþýðublaðið - 08.11.1996, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
17
s a g a n
STeFNA ALÞÝÐUFLoKKSINS
Flokksþingiö telur aö tímabært sé orðiö
að vinna að því að fá erlent fjármagn til
landsins, til uppbyggingar stóriðnaðar i
sambandi við virkjun orkulinda í því skyni
að skapa nauðsynlega og aukna fjöl-
breytni i atvinnulífi þjóðarinnar, þó þann-
ig að tryggt sé, að þjóðinni stafi ekki fjár-
hagsleg eða félagsleg hætta af.
Samþykkt á 27. þingi Alþýðuflokks-
ins árið 1960.
Þingið fagnar lækkun kosningaaldurs í 20
ár, sem varð fyrir frumkvæði Alþýðu-
flokksins, og itrekartillögurflokksins um
lækkun kosningaaldurs í 18 ár.
Samþykkt á flokksþingi árið 1968.
Alþýðuflokkurinn telur skiptingu nem-
enda í barnaskólum í bekki eftir getu ekki
lýðræðislega. Þessvegna þarf að afnema
þessa skiptingu hið bráðasta og gera
skólunum kleift að laga sig að breyttu
skipulagi.
Samþykkt á flokksþingi árið 1968.
34. þing Aiþýðuflokksins ályktar að sam-
eina beri alla lýðræðissinnaða jafnaðar-
menn á íslandi í einum stjórnmálaflokki
og lýsir yfir vilja sínum til þess að gerast
aðili að þeirri sameiningu. Sameiningin
skal koma til framkvæmda fyrir næstu al-
mennar kosningar í landinu.
Samþykkt á 34. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 20. til 22. október
1972.
Undirstaða stóriðnaðar á íslandi er og
verður sú orka, sem býr í fallvötnum og
jarðhita ásamt innlendum hráefnum. Því
er höfuðnauðsyn að halda áfram bygg-
ingu orkuvera, en jafnframt verða íslend-
ingar að fylgjast með þróun orkutækni er-
lendis, meðal annars á sviði kjarnorku.
Úr stefnuskrá Alþýðuflokksins sem
samþykkt var á 29. flokksþinginu,
sem haldið var í Reykjavík 23. til 24.
mars 1963.
Landið og miðin þjóðareign. Alþýðuflokk-
urinn telur brýnt, að landið allt verði þjóð-
areign með gögnum þess og gæðum, en
bændur einir eigi eða hafi umráð bújarða.
Samþykkt á 35. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 15. til 17. nóvem-
ber 1974.
Þingið hvetur almenning til þess að kaupa
ekki vörur frá Suður-Afríku meðan núver-
andi ástand rfkir þar og mótmæla þannig
í verki apartheid-stefnunni.
Samþykkt á 37. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 22. til 24. október
1976.
28. flokksþing Alþýðuflokksins telur stofn-
un Efnahagsbandalags Evrópu og þróun
þá, sem nú á sér stað í viðskiptamálum
Vestur-Evrópu, vera örlagaríka atburði
fyrir Islendinga. ... Flokksþingiðtelur
nauðsynlegt og sjálfsagt, að íslensk
stjórnarvöld fylgist sem nákvæmlegast
með þróun þessara mála, en telur ekki
enn tímabært, að íslendingar taki ákvörð-
un um, hvers konar tengsla þeir óska að
leita við Efnahagsbandalagið. Þó telur
flokksþingið, að vegna fámennis íslend-
inga, einhæfra atvinnuhátta þeirra, og
margvíslegrar sérstöðu þjóðarinnar mið-
að við aðrar þjóðir, komi full aðild að
bandalaginu ekki til greina fyrir íslend-
inga. íslendingar gætu hins vegar tengst
bandalaginu annað hvort með varanlegri
aukaaðild eða tollabandalagi.
Samþykkt á 28. flokksþingi Alþýdu-
flokksins, sem haldið var í Reykjavík
15. til 18. nóvember 1962.
Flokksþingið leggur áherslu á, að sem
fyrst verði komið á fót íslensku sjónvarpi,
er hafi eflingu íslenskrar menningar að
megin markmiði, enda verði þess án efa
ekki langt bíða, að tækniþróunin verði til
þess, að sjónvarp nái yfir alla jörðina,
eins og útvarpið.
Samþykkt á flokksþingi árið 1962.
Flokksþingið telur, að koma þurfi upp
stofnun sem sé öryggisgæsla fyrir geð-
veika („psychopata").
Samþykkt á flokksþingi 1962, - að
tillögu Fræðslu- og menningarmála-
nefndar.
SUNDLAUG KOPAVOGS
við Borgarholtsbraut, sími 564 2560
Miðstöð almenningsíþrótta
✓ Grunn heit barnalaug
Heitir pottar og nuddpottar
Guftibað, sauna og vatnsgufa
Hröð og skemmtileg rennibraut
Ljósalampar
Fullkomin 50x25 m sundlaug til
sundiðkunar og leikja.
28. þing Alþýðuflokksins telur brýna
nauðsyn á því að samfara stórauknum
framlögum til almannatrygginga, verði
stefnt að því að þjónusta tannlækna verði
greidd af sjúkrasamlögum til jafns við
aðra læknisþjónustu.
Samþykkt á flokksþingi 1962, að til-
lögu Karls Steinars Guðnasonar.
Alþýðuflokkurinn vill jafnrétti karla og
kvenna, jöfn tækifæri beggja til atvinnu
og sömu laun fyrir sömu störf. Viður-
kenna ber húsmóðurstörf til jafns við
önnurstörf.... Flúsmæðrum berorloftil
jafns við annað fólk.
Úr stefnuskrá Alþýðuflokksins frá
Nuddstofa
✓ Úrval flotleiktækja
✓ Góð sólbaðsaðstaða
✓ Góðar göngu- og
hlaupaleiðir í nágrenninu
Sundlaugin er opin:
Sumcur
Virka daga 07-22
Helgar 08-19
Aðgangur að laug hættir 30 mín. fyrir lokun
1963.
Flokksþingið telur, að á næstu árum þurfi
að gera margar breytingar á störfum Al-
þingis. Það þarf að verða ein deild og
bæta verður aðstöðu þingmanna til sjálf-
stæðra starfa. Lýðveldið verður á næsta
áratug að reisa nýtt þinghús.
Samþykkt á 32. þingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var 18. til 21. október
1968.
Hreyfing - Hollusta - Vellíðan