Vísir - 10.02.1976, Side 6

Vísir - 10.02.1976, Side 6
 -fiBHS N NwWVVV^ Mótmxlenda garta tóþólsk* straét é V] 1 land É|l| Patty í vitna- stúkunni Rœningjar hennar nauðguðu henni, börðu og drógu hana á milli felustaða í öskutunnu Meö tárin í augunum lýsti Patty Hearst þvi fyrir rétti í glr, hvernig hún heföi mátt þola það, Verjandi Patty llearst, Bailcy lögfræöingur, leiddi skjólstæft- ing sinn i vitnastúku. að ræningjar hennar úr SLA hefðu nauðgað henni inn í skáp, meðan hún var fangi þeirra. — Meðal þeirra var maðurinn sem hún eitt sinn kallaði byit- ingarelskhuga sinn. Patty sat sjálf i vitnastúkunni i gær og bar þar af sér allar sak- ir um að hafa tekið af fúsum vilja þátt i bankaráni symbio- nesiska frelsishersins. Sagði hún réttinum, að ræn- ingjar hennar hefðu margsinnis hótað að drepa hana, og hún heföi verið orðin þeirrar skoð- unar, að henni þýddi ekki að reyna að flýja. — Þeir mundu alltaf finna hana aftur og fyrir- koma henni. Verði Patricia Hearst fundin sek um þær sakir, sem á hana eru bornar, á hún yfir höfði sér allt að 35 ára fangelsi. En lög- menn hennar byggja vörnina á þvi, að hún hafi verið saklaust fórnarlamb ræningja sinna. I fjórar klukkustundir sat Patty i vitnastúkunni i gær og svaraði spurningum verjanda sins. Henni hafði verið nauðgað, hótað lifláti, gefið glóðarauga fjórum sinnum og dregin úr einu Patty Hearst gengur i réttarsal- inn. fylgsninu i annað i öskutunnu. Röddin brast og hún táraðist, þegar hún skýrði frá þvi, að William Wolfe, sem hún eitt sinn lýsti á segulbandi sem ,,bliöasta og fallegasta manninum, sem hún hefði kynnst” hefði nauðgað henni. — Fyrir réttinum neitaði hún, að hafa nokkurn tima elsk- að Wolfe, sem lét lifið ásamt flestum öðrum félögum SLA i skotbardaga við lögregluna i Los Angeles 17. mai 1974. Patty lýsti þvi, hvernig hún hefði verið neydd til að segja inn á segulband, að hún hefði sjálf- viljug tekið þátt i bankaráninu i april 1974. Saksóknarinn gekk fast á Patty og klifaði á þvi, að hún hefði ekki gert neina tilraun til að flýja þetta eina og hálfa ár, sem hún var með ræningjunum. Spurði hann hana, hvi hún hefði hafið skothrið til að hjálpa hjón- unum William og Emily.Harris, þegar þau voru staðin að verki i sportvöruverslun i Los Angeles. ,,Ég gat ekki sloppið, þvi að SLA hefði leitað mig uppi. Og ég hélt, að yfirvöld teldu sig eiga eitthvað sökótt við mig lika,” sagði Patty. Jarðskjálfta- ráðstefna Jarðskjálftafræðingar meira en 50landa þinga i Paris i dag i kjölfar jarðskjálftanna miklu i Guate- mala. Ræða þeir leiðir til að draga úr hættu á manntjóni af völdum jarðskjálfta. - Ráðstefna þessi mun standa næstu tiu daga og er haldin á veg- um UNESCO. Alyktanir ráöstefnunnar verða lagðar fyrir aðalfund UNESCO i október næsta, en stofnunin hefur látið jarðskjálftann i Guatemala mikið til sin taka. T.d. hefur hún boðið þjónustu fjögurra sérfræð- inga sinna til að rannsaka tildrög jarðskjálftans þar og afleiðingar, og einnig til aö leggja hönd á plóg- inn við endurreisnarstarfið. Plötusnillingurinn Faith Percy Faith, einn af þekktustu lagasmiðum heims, lést i Los Angeles i gær 67 ára að aldri. Það var krabbamein sem dró hann til dauða. Mörg laga hans urðu „gullplöt- ur” vegna metsölu. Svo sem eins og „Moulin Rouge” árið 1953 og lagið úr myndinni „Summer Place” árið 1960. Faith hóf feril sinn sem pianisti i leikhúsum og gistihúsum. Hann starfaði i tónlistardeild kanadiska útvarpsins frá 1933 til 1940, en flutti þá til Bandarikjanna, þar sem hann starfaði hjá hljómplötugerð Columbia. Enginn þótti taka honum fram við útsetningu laga fyrir hljómplötur eða stjórnun tónlistar og undirleik. Hann lagði hönd að verki við gerð hljómskifa eins og „Time for Love”, „Raindrops Keep Fallin’”, „Love Story”, „Jesus Christ, Superstar” og „Day by Day” svo nokkrar séu nefndar. Kennedy vinsœlasta forsetaefnið Úrslit skoðanakönnunar, sem birt voru i gær, sýna, aö Edward Kennedy, öldungadeildarþingmað- ur, er langvinsælasta frambjóð- andaefni meðal demókrata og ó- háðra til forsetakosninganna. í könnun Louis Harris kemur i ljós, að 29% þeirra 2.500. sem spurðir voru, studdu Kennedy, meðan 18% studdu Hubert Humph- ey. Hvorugur þeirra hefur hlotið út- nefningu flokks sins, og Kennedy hefur lýst þvi yfir, að hann muni ekki gefa nokkurn kost á sér. Af þeim tiu demókrötum, sem keppa að þvi að ná útnefningu, fékk George Wallace 12%, Henry Jack- son 7% og aörir 4% eða minna. Hentugur stimpill Fyrir konur, sem vilja þekja og innsigla bréfin sin með kossum, er nú kominn á markaðinn gýmmi- stimpill i laginu eins og varir. Hon- um fylgir rósrautt blek að sjálf- sögðu. Vœndiskonan þoldi ekki glápið 26ára vændiskona, sem á dögun- um fór með sigur af hólmi I mála- ferlum vegna setu hennar létt- klæddrar i glugga i „Rauð- ljósa”hverfi Southampton, hefur gefist upp i iðninni. Það komu of margir til að glápa á hana, eftir að málaferlin vöktu á henni athygli. — Allt þetta gláp reyndi of mikið á taugarnar til lengdar. Nú ætlar hún að snúa sér aftur að kjólasaum. Diplómatinn með úlfhundinn Fyrrum sendiherra Barbados hjá Sameinuðu þjóðunum, sem kallaður var heim vegna milli- rikjadeilu. sem spratt upp þegar hundurinn hans tók að leggjast á fólk i New York. hefur verið ráðinn til mannfiölgunarnefndar S.þ. Waldo Valdron-Ramsey verður ráðgjafi sjóðs nefndarinnar sem starfar að þvi að takmarka barn- eignir. Úlfhundur sendiherrans hafði nær bundið enda á diplómatiskan feril hans þegar lögreglan i New York varð þess vör aö liann hafði bitið sjö eða átta manneskjur. — Borgarstjóri Long Island hótaði að láta skjóta hundinn. ef ambassa- dorinn ekki gætti hans betur. Brást sendiherrann illa við og vildi meina að friðhelgi diplómats- ins næði einnig til hundsins. Varð af þessu mikið fjaðrafok og lauk með þvi að stjórn Barbadoseyja kallaði sendiherrann heim. Tengdadóttirin varð fyrir sprengjunni Tengdadóttir fyrrum forseta Argentinu, Alejandros Lanusse hershöfðingja, lét lifið i gær af völdum sprengju, sem sprakk á heimili hennar. Hin 28 ára gamla Maria Caride de Lanusse lann við útidyrnar böggul, sem hún tók með inn, og i sömu andránni sprakk vitisvélin. Eiginmaður hennar, Marcos Lan- usse særðist litillega. Lanusse hershöfðingi var forseti Argentinu 1971- 73 en þá lét hann fara fram kosningar til forseta- cmbættis og vék fyrir perónista. I Kippurinn mœldist 6 stig á Richter Mikilí jarðskjálfti gerði i gær vart við sig á strönd Mexikó norð- vestur af Guatemala, þar sem jarðskjálíti lagði mannabyggðir i rúst i siðustu viku. Jarðskjálftafræðingar segja að kippurinn hafi átt upptök sin um 290 km vestur af Guadalajara i Kyrrahafi. Mældist hann 6,0 stig á Richterkvarða, en jarðskjálftinn i Guatemala mældist 7,5 stig. Ekki er vitað enn um neitt tjón af völdum jarðskjálftans i Mexikó.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.