Vísir - 21.02.1976, Side 1
’ Ekki deigan
dropa að fá
I • W ■ |
— s|a bls.
VERNDARSKIPIN MEGA
NÚ GERA HVAÐ SEM ER
Ástandið er nú hœttulegra en
nokkru sinni og freigáturnar
beita stefninu í ásiglingum
— Sjá baksíðu
Annir hjá lögreglu í óveðrinu:
Vatn flœddi,
Ijósastaurar
brotnuðu og
þakplötur
rifnuðu upp
Miklar annir voru hjá
lögreglunni í óveðrinu í
gærdag. Þakplötur losnuðu
eða fuku, timbur tókst á
loft og olli skemmdum á
bílum og vitað var um tvo
eða þrjá Ijósastaura sem
hreinlega brotnuðu þegar
mest gekk á.
Hjá lögreglunni i Kópavogi var
blaðinu tjáð i gærkvöldi að þak-
plötur hefðu fokið en ekki var vit-
að til þess að þær hefðu valdið
tjóni.
Timbur fauk þó á bila og olli
skemmdum á fjórum bilum. Þak-
plötur fuku af að minnska kosti 5
húsum og einnig þar sem þær
voru geymdar i stöflum.
Þá slitnaði raflina vegna veður-
ofsans, og mikið vatnsflóð var
á götum, þar sem niðurföll stifl-
uðust um tima. Kópavogslækur-
inn beljaði um tima yfir býrnar.
Vitað var til þess að vatn flæddi
inn i kjallara i eitt húsið i Kópá-
vogi að minnsta kosti, og vatn
flæddi viðar inn. Til dæmis var
beðið um aðstoð þar sem flæddi
inn i kjallara simstöðvarinnar i
Mosfellssveit.
Einnig var leitað eftir aðstoð
vegna vatns i kjallara hitaveit-
unnar við Reykjahlið og i kjallara
Fjölbrautaskólans i Breiðholti.
Ljósastaurar brotnuðu
og götur tepptust
t Arbæ tepptust sumar götur á
timabili, þar sem niðurföll stifl-
uðust. Þar hafði lögreglan i nógu
að snúast, t.d. vegna þakplötu-
foks. Plötur losnuðu eða voru nær
þvi.
Plötur losnuðu af þaki gamla
IR-hússins við Túngötu og varð
lögregla og slökkvilið að koma til
aðstoðar. Ekki var vitað til þess
að neitt tjón hefði orðið, en einn
bill var i hættu þegar grindverkið
við byggingu Seðlabankans lagð-
ist niður á kafla. Bilnum varð
forðað.
Þá gat lögreglan um ljósa-
staura við Elliðavog sem brotn-
uðu. Jafnval var talað um 2-3
staura sem gáfu sig hreinlega i
veðurofsanum. —EA
Þeir fengu undanþágu
t verkfalli verða menn að bjarga sér og sinu á ýmsan hátt.
Það fengu eigendur nótaskipsins Gisla Arna aðreyna i fyrradag.
Þá kom leki að skipinu og ekki var hægt að koma þviislipp því þar var allt lokað vegna verkfalla.
Menn tóku þá það ráð að sigla skipinu á þurrt vestan við Grófarbryggju og fá síðan undanþágu fyrir-
tvo menn frá vélsmiðju Kristjáns Gislasonar. Unnu þeir að þvi að þétta skipið frá þvf á fimmtudags-
kvöid og þar til siðdegis I gær en þá tók ljósmyndari Vísis, Loftur, þessa mynd.
„Ekki von um að mikið gerist"
,,Ég á ekki von á þvi að mikið
gerist i samningamálunum í
kvöld,” sagði Björn Jónsson,
forseti ASt, i samtali við Visi i
gærkvöldi.
Aðaisamninganefndir vinnu-
veitenda og ASt komu saman til
fundar um tiuleytið i gærkveidi.
Ekkert var að frétta af fundum
þeirra þegar Visir fór i prentun.
Aðalsamninganefndirnar höfðu
ekki komið saman til fundar
fyrr en daginn. Aðeins höfðu
veriðfundir i einstökum hópum.
Kristján Ragnarsson, for-
maður Ltú, sagöi við Visi seint i
gærkveldi að ekkert væri að
frétta af samningafundum sjó-
manna og útvegsmanna. Fundir
hefðu hafist klukkan fimm.
Vildihann engu spá um útlit eða
hvort líklegt væri að árangur
næðist á fundum þessum. EKG