Vísir - 21.02.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 21.02.1976, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 21. febrúar 1976 vism 1 Sœnska | kvikmynda- JKJ vikan Göran Stangertz og Ann Zacharias i hlutverkum sinum i Siöasta ævintýrinu. t þessu atriði njóta þau ástarinnar áöur en pilturinn fær taugaáfaliiö. SÍÐASTA ÆVINTÝRIÐ Annaö kvöld kl. 21.00 veröur sýnd kvikmyndin Síöasta ævin- týrið (Det sidsta aventyret), en handrit og leikstjórn annaöist Jan Halldoff. Meö aöalhlutverk fara Göran Stangertz og Ann Zacharias; en hún kemur hingaö til landsins i tilefni kvikmynda- vikunnar. Myndin er gerö eftir vinsælli skáldsögu eftir Per Gunnar Evander. Hún fjallar um ungan mann, sem ætlar að verða her- foringi, en er rekinn úr hernum fyrir einkennilega hegðun. Hann fær starf sem kennari og reynir að brjótast undan áhrif- um móður sinnar og unnustu. Hann nýtur ástar meö einni stúlku i skólanum og eiga þau sér nokkrar hamingjustundir, en ungi maðurinn þjáist af af- brýðissemi og fær taugaáfall. Hann er lagður inn á taugahæli. Þar segir einn sjúklinganna honum að eftir sé aðeins siðasta ævintýrið, en það sé að deyja. En unga manninum getur batnað, ef hann aðeins vill þaö sjálfur. Þessa mynd telur undir- ritaður i flokki bestu myndanna á kvikmyndavikunni, en þung- lyndi unga mannsins er leikið á frábæran hátt af Göran Stan- gertz. Hnefafylli afást Kvikmyndin Hnefafylli af ást (En handfull karlek) verður sýnd kl. 16.00 i dag. Hún er eftir Vilgot Sjöman, þann sama og gerði myndirnar Ég er forvitin gul og blá. Þessi mynd er frá árinu 1974 og segir frá verkfalli verka- manna i Stokkhólmi 1909. Inn i atburðarásina fléttast saga af Hjördisi, ungri verkakonu, sem býr með verkamanni að nafni Daniel, en hann vinnur á gas- stöð og er eldheitur sósialisti. Hjördis fer i vist til auðugrar fjölskyldu og verður barnshaf- andi af völdum húsbónda sins, sem reynir að gifta hana kunn- ingja sinum. Daniel hefnir sin með þvi að ná tökum á mágkonu hins auðuga húsbónda Hjördisar og svivirða hana. Daniel verður þess áskynja að verkalýðsleiðtogarnir eru hálf- volgir i baráttu sinni og þylting- MBsaaai JsÉli Anita Ekström i hlutverki vinnustúlkunnar I myndinni llnefafylli af ást eftir Vilgot Sjöman. Vilgot Sjöman, leikstjóri mynd- arinnar Hnefafyili af ást. Hann á, samkv. áætlun, að vera kom- inn til landsins og verður gestur við opnun kvikmyndavikunnar i dag kl. 16.00. arhugsjón hans dofnar en Hjör- dis elur barn sitt og felur sig meðal öreiganna i Stokkhólmi. Siðan Sjöman gerði Ég er for- vitin.. hefur still hans breyst mjög mikið, en ekki hafa aðrar myndir eftir hann en þessar verið sýndar hér á landi. Með aðalhlutverk i myndinni fara þau Anita Ekström sem leikur Hjördisi, Gösta Brede- feldt, Ernst-Hugo Jiiregard og Ingrid Thulin. Allar myndirnar á sænsku kvikmyndavikunni eru með enskum textum nema þessi. Sænska kvikmyndavikan hefst i dag ki. 16.00 I Austur- bæjarbíói með þvi aö frumsýnd verður kvikmyndin Hnefafylli af ást eftir Vilgot Sjöman. Tii þessarar kvikmyndaviku stofnuöu tsiensk-sænska félagiö og Sænska kvikmyndastofnunin. Þar verða sýndar nýjar eöa nýlegar kvikmyndir eftir sænska aðila. Flestar þessar kvikrnyndir fjalla urn sænskt þjóðlif i dag, en Hnefafylli af ást gerist upp úr aldarnótunurn. Meg- ininntak flestra rnyndanna er urnhyggja sænska þjóðfé- lagsins fyrir þeirn sern hafa farið afvega á einhvern hátt i lifinu. Þar kernur frarn ofskipulögð og offullkornin félagshjálp þeirn til handa sern eiga bágt. í rnyndinni Klara Lust er þvi hins vegar lýst, hvernig þeir bregðast við, sern ekki vilja þiggja úr sarnhjálparsjóðnurn þjóðfélagsins. Lifsleiðinn er oft ternað i rnyndunurn, t.d. i Sjö stelpurn og Siðasta ævintýrinu. Allar rnyndirnar eru góðar og surnar hreint frábærar, þótt þær séu óneitanlega öðruvisi að efni og uppbyggingu en flestar þær rnyndir sern við eigurn að venjast i kvik- rnyndahúsunurn. Myndirnar eru allar rneð enskurn text- urn, nerna Hnefafylli af ást. Klara Lust Gunilla Olsson og Lars BrSnnström I hlutverkum Klöru Lust og Heige. Klara hefur tekiö aö sér þaö verk aö endurvekja Ilfslöngun manna, sem reynt hafa aö fyrirfara sér. Helge féll ofan af svölun- um heima hjá sér og þaö fyrsta sem hann sá, þegar hann vaknaði til lifsins var Klara og Amor haföi hitt beint I mark. Ein af betri myndunum á sænsku kvikmynda vikunni er Klara Lust, gamanmynd eftir Kjell Grede, en hún veröur sýnd fyrst á mánudagskvöldiö kl. 21.00. Hún segir frá ungum manni sem næstum þvi lendir i slysi daginn áður en sumarfriið hefst. Hann verður svo glaður yfir þvi að ekki skyldi fara verr, að hann gefur peningana, sem hann ætl- aði að nota i friinu. Móöir hans er flutt til hans og auk þess leigir hann ungri stúlku með litið barn, húsnæði hjá sér. Ungi maðurinn, sem heitir Helge, dettur ofan af svölunum hjá ,sér og þegar hann rankar við sér hittir hann stúlku, sem segist heita Klara Lust. Helge verður ástfanginn við fyrstu sýn. Hann gripur hjólið sitt og fer að leita að Klöru, en hún á heima langt i burtu. Móðir hans og leigjandi fylgja honum, þótt honum sé alls ekkert um það gefið. Meðan á leitinni stendur, hittir hann alls konar fólk, sem hann vissi ekki að væri til. Og hann hittir Klöru, sem reyndar heitir öðru nafni. Allir sem hann hittir á ferð sinni til Klöru verða með ein- hverjum hætti hluti af ástarsögu hans. Með aðalhlutverk i myndinni fara Lars Brannström og Gun- illa Olsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.