Vísir - 01.03.1976, Page 5

Vísir - 01.03.1976, Page 5
5 vism Mánudagur 1. mars 1976 sem mjólkin flóir út yfir Doddi litli er hinn tortryggnasti þegar honum er sýnt hvernig hann eigi að bera sig tii við að mjólka. ftg heiti Þórarinn Jónsson og þetta er kisan min sem heitir Mjaidur. Já það er best að athuga hvað er geymt i þessum skáp Ýmsir stynja undan áhrifum verkfallsins. Menn sakna þess að fá ekki bensin á biiinn, og ekki eru þeir ófáir sem farnir eru að finna fyrir vöruskorti i búðunum. Þá má ekki gleyma þvi aö samgöngur iiggja viöa niðri. En það sem menn finna hvað helst fyrir er mjólkurskortur- inn. Mest eru það börnin sem þurfa mjólkina, en tii skamms tima fengu þau hana ekki vegna verkfallsins. Nú er hins vegar búið að fá undanþágu. Mjólk l'æst nú afgreidd fyrir börn og þá Þaö þýðir ekkert annað en að halda sér við efnið þó ein kisa sé i veginum. sem nauðsynlega þurfa á henni að halda. En þetta er aðeins önnur hliðin á mjólkurleysinu. Á meðan menn stynja sáran vegna mjólkurleysis, eru kúa- bændur að drukkna i allt cf mikilli mjólk. Vegna verkfallsins er ekki hægt að flytja mjólkina neitt burtu svo mjólkurgeymar þar sem mjólkin er geymd eru nú viðast hvar fullir. Ekki er hægt að geyma mjólkina endalaust. Hún súrnar við of langa geymslu og stöðugt Og Kiddi, kötturinn sem það heiti ber tii heiðurs sjónvarps- stjörnunni Kid Curry bisast við i fagmannlegustu stellingum að opna skápinn. kemur meiri mjólk, þvi ekki fer nytin i kúnum eftir þvi hvenær mannskepnunni þóknast að fara i verkfall. Meðal þeirra sem þurft hafa að hella niður mjólk er fólkið á Neðra-Hálsi i Kjós. Visis-menn heimsóttu það og lituðust um. —EKG/ljósmyndir Loftur Ás- geirsson Þetta fylgdi verkfallinu, en er nú vonandi liðin tið. Það er i svona 500 litra geymum sem Oddur Andrésson bóndi sýnir okkur að mjólkin er geymd við 3 gráðu hita heima á bæjunum áður en tankbilarnir flytja hana i mjólkurstöðvar þar sem hún er unnin. Skipa- og tækjakostur gæslunnar bættur Rikisstjórnin hefur samþykkt að fela dómsmalaráðherra og fjármálaráðherra að gera ráð- stafanir til þess að bæta skipa- og tækjakost Landhelgisgæslunnar. Ráðuneytisstjórum dómsmála- og fjármálaráðuneytis hefur ver- ið falið að gera ásamt forstjóra Landhelgisgæslunnar tillögur um þá aukningu á skipakosti, flug- starfsemi og öðrum tækjakosti sem best mætti koma að notum við núverandi aðstæður. Ritgeröasamkeppni Sjómannadagsráð og ritnefnd Sjómannadagsblaðsins, hafa ákveðið að efna til ritgerðasam keppni um sjómannsstarfið og um Sjóminjasafnið fyrirhugaða. Veitt verða hundrað þúsund króna verðlaun fyrir bestu rit- gerðina. Vænst er almennrar þátttöku, ekki sist meðal sjó- manna og æskufólks. Nýir sendiherrar Niels P. Sigurðsson hefur nú tekið við embætti sem sendiherra Islands i Bonn. Afhenti hann hr. Walter Scheel forseta Sambands- lýðveldisins Þýskalands embættis- skilriki sin s í. föstudag. Fyrr i þessum mánuði afhenti Agnar Kl. Jónsson ambassador. Margréti II. danadrottningu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands i Danmörku. Prófessor i efnafræði Forseti Islands hefur að tillögu menntamálaráðherra skipað Braga Árnason prófessor i efna- fræði við verkfræði- og raun- visindadeild Háskóla íslands frá 1. jan. 1976 að telja. Þakka Kröflunefnd Bæjarstjórn Húsavikur sam- þykkti nýlega á fundi sinum ein- róma ályktun um orkumál. Segir þar m.a. að með tilkomu Kröflu- virkjunar og undirbúningi að Blönduvirkjun sjái bæjarstjórnin fram á varanlega úrlausn á þeim raforkuskorti sem rikt hefur á Norðurlandi. Ennfremur þakkar Bæjar- stjórnin Kröflunefnd fyrir óvenju röskleg vinnubrögð við uppbygg- ingu Kröfluvirkjunar. Nær fimm hundruö þátttakendur Tuttugu og fimm námskeið voru haldin á siðast liðnu ári á vegum Stjórnunarfélags Islands. Námskeiðin voru um 18 mismun- andi efni og voru þátttakendur um 470 talsins. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var nýlega, en fimmtán ár eru nú liðin frá stofnun þess. Vítur á breska flotann Aðalfundur Bandalags kvenna i Reykjavik samþykkti á aðalfundi sinum, sem haldinn var nýlega. yfirlýsingu þar sem það yitir harðlega það ofbeldi sem breski flotinn hefur frammi i islenskri landhelgi. Ennfremur vottaði fundurinn skipherrum og öðrum varðskipsmönnum þakklæti sitt og aðdáun fyrir hugrekki og ár- vekni i starfi. Kerndum Kerndum. yotendr/ LAMDVERND

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.