Vísir - 01.03.1976, Side 17
Það er ekki auðvelt að ná tali
af Dennis Weaver. Einna helst
er að leggja leið sina þangað
sem upptökur á McCloud fara
fram i Universal Studios. Þvl að
enn starfar hann við þann
myndaflokk. Á milli þess sem
hann er I upptökum, semur
hann lög. Og hann var einmitt
önnum kafinn við eitt slikt,
þegar blaðamaður frá kvik-
myndatimariti hitti hann að
máli.
Eftir fjögur ár kann Dennis
enn jafn vel að meta McCloud
og þegar hann byrjaði að leika
hann. Það sem hann segist
kunna einna best við, er hversu
litið McCloud breytist. „Hann er
enn þessi sami hreinlyndi og
vingjarnlegi náungi, sem lætur
sér ekki á sama standa um
manneskjur”, segir Dennis
Weaver.
Okkur hefur tekist að halda
honum óbreyttum og sveitaleg-
um, þrátt fyrir stöðuna sem
hann er i. Hann leikur ekki eftir
neinum reglum, og vinsældir
hans hafa aukist. Honum hefur
tekist að verða hetja og hann
hefur jafnvel orðið róman-
tiskur ”
Er ekki þreyttur á
hlutverkinu
Dennis Weaver fær stöðugt
bréf frá aðdáendum viðs vegar
að. En um þau vill hann sem
minnst tala.
„Ég er alls ekki orðinn
þreyttur á að leika McCloud”,
segir hann. „En hvort ég leik
hann í mörg ár i viðbót veltur á
þvi hvemig handritin og annað
kemur til með að verða. Ég veit
ekki hvað tæki við, ef ég hætti
sem McCloud.Ég yrði hreinlega
að finna eitthvað svipað hlut-
verk. Þetta hefur gengið mjög
vel hjá mér og á vel við mig.”
En hvað um kvikmyndir?
„Ég á svo annrikt i þessum
myndaflokk, að ég geri tæpast
nokkuð á meðan”, segir Dennis.
„Ég vildi gjarnan fá hlutverk i
annarri kvikmynd og ég mundi
hafa gaman af að fá hlutverk
sem værimjög ólikt McClaud og
gott eftir þvi. En hins vegar vil
ég alis ekki taka að mér hlut-
verk i kvikmynd, aðeins vegna
þess að það væri kvikmynd. 1
þvi sé ég engan tilgang. En ef
um væri að ræða eitthvað sem
vekti áhuga minn þá vildi ég það
gjarnan.”
Fer i kirkju á
hverjum sunnudegi
Dennis er mjög trúaður og á
hverjum sunnudegi fer hann i
kirkju með konu sinni. Þau til-
heyra trúarflokki i Kalifomiu,
The Self-Realisation Fellow-
ship, sem Dennis segir að hafi
breytt lifi sinu.
Þessi flokkur trúir á það að
unnt sé að ná til Guðs með hug-
leiðslu og hreinu liferni. Sjálfur
stundar Dennis hugleiðslu á
morgnana og kvöldin. „Ég var
vanur að standa á höfði á
meðan, eins og i Yoga, en upp-
götvaði að maður nær alveg
jafnt til Guðs með þvi að sitja i
stól á meðan maður hugleiðir.”
Hann er grænmetisæta og þvi
fylgja oft ýmis vandkvæði.
Dennis hlær: „Þið getið trúað
þvi, að það er stundum litið
gaman þegar manni er boðið á
fint veitingahús, að þurfa að
panta grænmetissalat: Eða
þegar manni er boðið i koktail,
og verður að panta ávaxtasafa!
Dennis kveðst fullviss • um
það, að hamingjan náist ekki
fullkomlega nema likaminn sé
heilbrigður, og hann gætir þess
vel.
„Eins og er hef ég allt sem ég
hugsanlega þarf”, segir hann.
„Ég á góða fjölskyldu og er i
góðu starfi. Ég get ekki kvartað
yfir neinu, svo lifið er mér mjög
gott.”
—EA
Við viljum minna ykkur á, að ef þið viljið hrósa sjón-
varps- eða útvarpsefni, eða kvarta yfir þvi, þá þurfið þið
ekki að gera annað en að taka upp tólið I hádeginu á milli
kl. 12. og 1. Siminn er 86611 og við komum hrósi ykkar,
kvörtunum eða tillögum á framfæri.
MÁNUDAGUR
1. marz 1976
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 tþróttir. Umsjónarmað-
ur Ómar Ragnarsson.
21.10 Saga af sjónum. Leikrit
eftir Hrafn Gunnlaugsson.
Leikstjóri Herdis Þorvalds-
dóttir. Leikendur Róbert
Arnfinnsson og Sigurður
Skúlason. Leikmynd Björn
Björnsson. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson. Leikritið
var frumsýnt 26. mars 1973.
21.50 Ileimsstyrjöldin siðari.
7. þáttur. Bandaríkin hefj-
ast handa.Sagt er frá þróun
stjórnmála i Bandarikjun-
um við upphaf styrjaldar-
innar, en forsetakosningar
fóru fram 5. nóvember 1940.
Bandarikjamenn veittu
Bretum ýmsa aðstoð en
tóku ekki þátt i styrjöldinni,
fyrr en Hitler sagði þeim
strið á hendur. 1 myndinni
er greint frá viðureign
Bandarikjamanna og Jap-
ana á Kyrrahafi og loks
þeirri ákvörðun Banda-
rikjamanna að setja herlið á
land i Norður-Afríku. Þýð-
andi og þulur Jón O. Ed-
wald.
22.40 Dagskrarlok.
MÁNUDAGUR
1. mars
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Hof-
staðabræður” eftir Jónas
Jónasson frá Ilrafnagili.
Jón R. Hjálmarsson les (4).
15.00 Miðdegistónleikar.
Frantisek Rauch og Sin-
fóniuhljómsveitin i Prag
leika Pianókonsert nr. 2 i A-
dúr eftir Liszt. Sinfóniu-
hljómsveit ungverska út-
varpsins leikur Dansasvitu
eftir Bartók, György Lehel
stjórnar. RIAS sinfóniu-
hljómsveitin i Berlin leikur
Divertimento, svitu úr ball-
ettinum „Kossi álfkonunn-
ar” eftir Stravinsky, Ferenc
Fricsay stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir).
16.20.
Popphorn.
17.00 Tónlistartimi barnanna.
Egill Friðleifsson sér um
timann.
17.30 Að tafli. Ingvar Ás-
mundsson flytur skákþátt.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.Guðni Kol-
beinsson flytur.
19.40 Um daginn og veginn.
Kjartan Sigurjónsson
skólastjóri á ísafirði talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Á vettvangi dómsmál-
anna. Björn Helgason
hæstaréttarritari segir frá.
20.50. Viktoria Postnikova og
Gennadij Rosjdestvenský
leika fjórhent á pianó. a:
Fantasia i f-moll op. 103
eítir Schubert. b. Litil
svita eftir Debussy. c. Són-
ata eftir Hindemith. (hljóð-
ritun frá útvarpinu i Bel-
grad).
21.30 Ctvarpssagan:
..Kristnihald undir Jökli"
eftir Halldór Laxness. Höf-
undur les (15).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma 112). Lesari:
Þorsteinn Ö. Stephensen.
22.25 Úr tónlistarlifinu. Jón
Ásgeirsson sér um þáttinn.
22.50 Kvöldtónleikar. Flytj-
endur: Sinfóniuhljómsveit-
irnar i Hamborg. Baden-
Baden og Stuttgart. Stjórn-
endur: Gerhard Mandl.
Bour Saschko Gawriloff,
sem einnig leikur einleik á
fiðlu. og Hans Muller-Kray.
a. Sex þýzkir dansar eftir
Haydn. b. Fiðlukonsert i d-
moll eftir Mendelssohn. c.
Sinfónia nr. 8 i F-dúr op. 93
eftir Beethoven.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.