Vísir - 01.03.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 01.03.1976, Blaðsíða 24
VtSIR Mánudagur 1. mars 1976 Á slysadeild eftir slagsmól Tveir mcnn lcntu á slysa- deild i fyrrinótt eftir aö hafa slegist hressilega fyrir utan Iiöðul. Eitthvert missætti mun hafa orðið milli þeirra tveggja, þótt ekki sé það vitað nákvæmlega. Skipti engum togum að þeir ruku saman eftir að dansleik var lokið, og voru slagsmálin svo hressileg að þeir voru fluttir á slysadeild, þar sem gert mun hafa verið að sárum þeirra. __________________—EA Brotist inn í lyfjageymslu Þormóðs goða Brotist var inn i togarann Þor- móöa goða i gærdag og þaðan tek- iö eitthvaö úr lyfjageymslu. Þá var brotist inn i mótorbátinn Sjóla. Þar var tekið sjónvarps- tæki. Það var um klukkan 17.17 sem tilkynning barstum innbrot i Þor- móð goða i gærdag. Voru söku- dólgarnir á höttunum eftir ein- hverju úr lyfjageymslunni. Þeir munu hafa verið hand- teknir. Um klukkan 8 i gærkvöldi barst svo tilkynningin um stuld- inn á sjónvarpstækinu i Sjóla. ____________________—EA Maður ó hesti fyrir bíl og hestur aflífað- ur eftir slys Maður á hesti varð fyrir bíl á föstudagskvöldið á Vatns- endavegi. Maðurinn mun eitt- hvað hafa slasast en hesturinn slapp. Þá fór hestur fyrir bil á sama stað kvöldið áður. Þurfti að aflífa hann. Slysin urðu bæði á niunda timanum þessi kvöld. öku- menn eiga erfitt meö aö sjá hesta sem þarna eru á ferð, enda engin lýsing, og hestarn- ir og mennirnir sem á þeim eru — dökkir i myrkrinu. —EA Braut rúðu Einn af þeim sem gisti fanga- geymslur lögrcglunnar í nótt hafði unnið sér það til saka að brjóta rúðu á Hótcl Sögu. Það var eftir dansleik — eða um klukkan tvö —■ sem maðurinn mölvaði stóra rúðu við aðaldyr hótelsins. Viðstöddum likaði það að vonum ekki vel og var lögregl- an kölluð til. Hafði hún manninn með sér. Hann var ölvaður. ~EA Stal pening- um í Glœsibœ Kona var tekin i Glæsibæ i fyrrinótt og fékk hún gistingu i fangageymslum lögreglunn- ar. Astæðan var peningastuld- ur. Konan fór i veski annarrar konu sem hafði brugðið sér á dansgólfið. Hafði hún talið ó- hætt aö skilja veski sitt eftir, en þegar hún kom aftur, hafði peningum hennar, 1200 krón- um, veriö stolið. Sést hafði til sökudólgsins og var kallað á lögregluna. —EA Stórþjófnaður í Grindavík: Rœndu peningaskópnum Stórþjóf naður var framinn í versluninni Bragakjör í Grindavík aðfaranótt laugardags. Peningaskápur með stór- um peningaupphæðum, farmiðum, gjaldeyri, ávisunum, vixlum og öðru var tekinn, einnig skjalataska með reikningum og peningum. Rannsókn þessa máls leiddi til handtöku þriggja karlmanna og einnar konu í gærkvöldi. Það var um klukkan fimm aðfaranótt laugardagsins sem innbrotið mun hafa verið fram- ið. Þá sömu nótt var stolið bil i Reykjavik, og við nánari athug- un kom i ljós að þessi bill fór til Grindavikur. Hjólför fyrir utan Bragakjör sönnuðu það. Billinn fannst siðan i Reykjavik i gær- kvöldi. Hurð á bakhlið verslunar- hússins var sprengd upp, en þaðan var leiðin nokkuð greið að peningaskápnum. t þessum skáp voru heldur betur stór verðmæti. Tóku m.a. farmiða og gjaldeyri til Kanaríeyja — en kaupmaðurinn komst samt.... I peningaskápnum voru 385 þúsund krónur i peningum og ávisunum stiluðum á handhafa. Töluvert margir endurnýjaðir StBS happdrættismiðar voru þar einnig, gjaldeyrir i ávisun- um um 19000 pesetar, sem kaup- maðurinn ætlaði að taka með sér til Kanarieyja i gærmorgun, ásamt tveimur farmiðum þang- að. Þá voru i skápnum 485 þúsund krónur i vixlum, sem tilbúnir voru til sölu, ásamt ýmsum verðmætum munum. svo sem giftingarhring, sérsleginni silfurmynt og fleira. Skápurinn erliklega á annað hundrað kiló að þyngd, en söku- dólgarnir tóku hann með sér ásamt skjalatösku. 1 henni voru reiknmgar upp a naita milljón króna og um 12 þúsund krónur i peningum. Höfðu eytt 12 þúsund krónum Þau sem brutust inn höfðu eytt 12 þúsund krónunum úr skjalatöskunni þegar til þeirra náðist. Ekki höfðu þau opnað peningaskápinn, en hann fannst falinn úti við þar sem þau höfðu skilið hann við sig og sjálfsagt ætlað að biða betri tima áður en hann yrði opnaður. Kaupmaðurinn i Bragakjöri og kona hans komust til Kanari- eyja þrátt fyrir allt, en áhyggj- urnar af innbrotinu hafa sjálf- sagt ekki verið skemmtilegt vegarnesti. — EA. Frá fundi i Sjómannafélagi Reykjavfkur í Lindarbæ f morgun þar sem sjómenn voru komnir saman til að greiða atkvæði um samningana. Ljósmynd Jim Sjómenn sömdu Veruleg fiskverðshœkkun Samningar milli sjómanna og útvegsmanna, sem undirritaðir voru i nótt eftir að fyrir lá fisk- verðsbreyting á grundvelli sjóða- kerfisbreytingar, fela f sér veru- lega fiskverðshækkun. Til breytinganna á sjóðakerfinu má rekja nærri 24% hækkun á fiskverði. Frávik frá þeirri hækk- un ræðst af öðru tilefni. Vfsir náði i morgun sambandi við Sigfinn Karlsson formann Alþýðusambands Austfjaröa en hann átti sæti i samninganefnd sjómanna, og nefndi hann dæmi um þá breytingu sem veröur á launum sjómanna við hina nýju samninga. A 51 til lOOtonna bátisem fiskar 500 tonn af þremur fisktegundum hefði hásetahlutur verið fyrir sjóðakerfisbreytingu rúmar 550 þúsund krónur. Eftir sjóöakerfis- breytinguna hefði hann verið 610 þúsund krónur, og samkvæmt hinu nýja fiskverði er hann 652 þúsund krónur. Auk þessarar hækkunar fisk- verðs hækkar tryggingin og veröur hún rúmar 90 þúsund krönur. „Með þessum samning- um er stigið fyrsta skrefiö til breytinga á tryggingaforminu þannigaö það verði kauptrygging plús premia”, sagði Sigfinnur Karlsson viö okkur f morgun. Þá má nefna að greiöslur i orlofsheimilasjóð sem greiddar eru af kauptryggingu hækka við hina nýgerðu kjarasamninga. — EKG. Yerð á þorski hœkkar um 30% Samkomulag Yfirnefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins gerir ráö fyrir verulegri fisk- verðshækkun. Sem dæmi má nefna að þorskur hækkar að meðaltali um 30%. Þar af stórfiskur mest eöa um 36%. Verð á ýsu hækkar um 33%, á steinbit um 36%, ufsa 24% og karfa 26%. Fyrirkassafisk ogifnufisk 1. flokks greiöist 8% hærra verö en hér að framan greinir. Ennfremur greiðir rikissjóður 90 aura á hvert kfló af linu- fiski. Þá var ákveðið nýtt loönu- verð, meö atkvæðum odda- manns og seljenda gegn at- kvæðum kaupenda. Fer loðnu- veröið stiglækkandi eftir þvi sem liöur á loðnuvertiðina. Frá 16. til 22. febrúar verður það 3,70 á kiló og lækkar síöan uns það verður frá 22. mars til loka vertiðarinnar 2,25 á kiló. —EKG NOKKUÐ MIÐAR A VEG í GEIRFINNSMÁLINU — Staðan er óbreytt ennþá, sagði Sigurbjörn Viðir rann- sóknarlögreglumaður þegar Visir innti hann eftir gangi rann- sóknarinnar i Geirfinnsmálinu. Mennirnir sitja enn i gæsluvarð- haldi, þeim hefur hvorki fjölgaö né fækkaö. — Þa6 gengur, sagöi hann þeg- ar við vildum fá að vita hvort þeim miðaði eitthvað á leið. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir þremur mannanna rennur út núna 11. mars. Við spurðum Sigurbjörn hvort hann yrði fram- lengdur. Um það sagðist hann ekkert vita eða geta sagt, það væri sakadómara að segja til um það. Ekki tókst að ná tali af Erni Höskuldssyni, fulltrúa sakadóm- ara, til að svara þessari spurn- ingu. Hann var ókominn þegar blaðið fór i prentun. —VS Samþykkt Norðurlandaráðs Stuðníngur við málstað íslendinga ,,Ég tel það eftir atvikum ánægjulegt, að Noröurlandaráð skuli hafa svotil einhuga sam- þykkt yfirlýsinguna” sagði Gils Guðmundsson, cinn fulltrúa is- lands á þingi Norðurlandaráös, við Visi i morgun. Gils sagði þetta álit sitt liafa komiðfram i ræðu sinni siödegis i gær, skömmu eftir aö samþykkt forsætisnefndar Norðurlandaráðs var lögð fram á þinginu. í sam- þv kktinni var þess krafist að bretar kalli herskip sin út fyrir 200 milna mörkin til þcss að auð- velda lausn fiskveiðideilu breta og islendinga. Gils kvað samþykktina hafa byggst á þvi sem komið hafði fram i ræðum margra manna. Hann sagðist hefði kosið að sam- þykktin heföi verið sterkari og meiri fordæming á framkomu breta, en þó hefði ekki verið hægt að búast við betri ár.angri en þetta. Aðeins tveir fulltrúar hefðu hreyft andmælum, en það voru þau Nils Stetter og Kirsten Jakobsen, bæði fulltrúar Dan- merkur. Þau hefðu mótmælt samþykktinni sem of einhliða fylgjandi málstað islendinga. Giis sagði að þetta væri meira en sviar og danir hafi fengist til að segja áður og væri þvi samþykktin nokkuð fullnægjandi. Góð áhrif „Allar slikar samþykktir hljóta að hafa góð áhrif á okkar mál- stað” sagði Matthias Bjarnason, sjávarútvegsráðherra. „Bretar finna að nágrannar þeirra eru á móti þeim i deilunni og það, auk vaxandi óánægju bresku þjóðar- innar, verður ekki til þess að auka hróður bresku rikisstjórnarinnar i þessu máli.” Matthias sagði að samningar við breta væru nú fjær en við byrjun viðræðnanna. Aðalástæð- an væri aukin skipainnrás breta i landhelgina og það svivirðilega athæfi þeirra að fiska á friðuðu svæði ungfisk, sem færi að mestu til mjölframleiðslu. — SJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.