Vísir - 06.03.1976, Page 14

Vísir - 06.03.1976, Page 14
 : : styrk eða hagstæð lán til þess arna fremur en letja með áður- nefndum og viðlíka yfirlýsing- um. Allavega mætti byrja á þvi að strika það út af óskalistanum yfir leiðir i efnahagsmálum að skammta ferðamannagjald- eyri. Þá vil ég heldur spara við mig danska tertubotna, allar gerðir af erlendu skrautkexi og öðrum viðlika óþarfa. Sólarþyrstur skrifar: Ég fæ með engu móti skilið þá röksemdafærslu ráðherra að efnahagsástandið geti varla verið slæmt þegar fólk kaupir hópum saman farseðla til sólar- landa á sama tima og það barmar sér yfir slæmri afkomu, afspyrnu lélegu kaupi og dráps- klyfjum af sköttum. sér i stórskuldir með lántökum og herða vel sultarólina til þess að baða sig i langþráðri sól og suðrænum, hlýjum sjó. Ég hika ekki við að fullyrða, að þetta er næstum lifsnauðsyn hverjum sem er, eftir umhleyp- ingasaman, kaldan, dimman, sólarlausan, islenskan vetur. Fremur ætti að hvetja menn til fararinnar og veita þeim jafnvel Vii ég benda þeim háu herrum á það, að það á ekkert skylt við batnandi efnahagsástand og bætta afkomumöguleika þótt fólk vilji vernda andlega og lik- amlega heilsu sina með þvi að öngla saman nægilega margar krónur til þess að komast i sól og almennilegt veður, þó ekki væri nema i tvær vikur á ári. Fólk hikar ekki við að steypa sér og skapar þetta stórhættu fyrir aðra. Lögreglan sem er þarna efra, hefur enga möguleika á þvi að skakka leikinn, þar sem hún hefur i nógu öðru að snúast, en er þó að vonum óánægð með þetta. Þessir akstursglöðu vélsleða- eigendur hafa næg önnur svæði til að leika listir sinar á og væri það vel þegið að þeir sýndu nú sóma sinn i þvi eftirleiðis að fara eftir settum reglum. Sigurður Harðarson haföi sam- band við blaðið: Siðastliðna helgi var ég á skiðum i Bláfjöllum sem og oft áður. Innan fólkvangsins á Blá- fjallasvæðinu er akstur d vél- sleöum bannaður, vegna hætt- unnar sem af þeim stafar. Þó er það svo að vélsleöaeig- endur láta sér ekki segjast og eru eftir sem áður á ferð um svæðið. Unglingar þeysast þarna um á sleðum sinum, jafn- vel dragandi skiðafólk á eftir Eru stórhœttu- leg lyf reynd ó sjúklingum? Gunnar Friöjónsson hafði sam- band við blaðið: Systir min var um tima til meöferðar á geðdeild Borgar- spitalans, þar sem hún er migreni-sjúklingur. Hún var færð þaðan yfir á Hvitabandið, á þeim forsendum aö hún ætti aö reyna nýtt lyf, sem ekki fengist i lyfjabúðum, en væri aðeins til á þessum tveim stöðum. Stúlkan vildi ekki vera á sjúkrahúsinu og af þeim sökum fór móðir okkar og pantaði tima hjá landlækni til að vita hvort hún gæti ekki fengið lyfið heim. Landlæknir sagði að þetta umrædda lyf væri ekki lengur i umferð. Hefði það verið tekið af lyfjaskrá, þar sem þaö væri stórskaðlegt, gæti orsakaö blóð- sjúkdóma auk annarra fylgi- kvilla og gæti jafnvel veriö lifs- hættulegt. Þegar þessar upplýsingar fengust hafði systir min tekið lyfið daglega i tvo mánuði. Eftir þetta samtal við land- lækni talaði systir min við hjúkrunarkonu á Hvitabandinu, en hún sagði þetta lyf vera enn inni á lyfjaskrá. Systin min neitaði að sjálf- sögðu að taka ly fin áfram og fór af sjúkrahúsinu. Nú þætti mér ákaflega fróö- legt að fá skýringar viðkomandi yfirvalda á þessu máli. Þvi má bæta hér við, að fyrir nokkrum dögum fór systir min i læknisskoðun til heimilislæknis sins. Kannaðist hann ekkert viö lyf þetta þegar þaö var borið undir hann en viðbrögð hans voru þau, aö senda hana i blóð- rannsókn. Ekkert lyf hættulaust — Ég hef nú ekki tekið svona dramatiskt til orða eins ogsegir i bréfinu, sagöi landlæknir þeg- ar þetta var undir hann borið af Visi. — Staðreyndin er sú, aö i ljós hefur komið að þetta lyf hefur i för með sér vissar aukaverkan- ir, hélt hann áfram, en er mjög gagnlegt. Þvi hefur það orðið að ráði, að binda notkun þess ein- göngu við sjúkrahús, þar sem auövelt er og öruggt að gera þær rannsóknir, sem leiða mundu i ljósaukaverkanir. Benda má á, að lik afstaða hefur verið tekin i nágrannalöndunum. — Almennt má um þetta segja, sagði hann, að ekkert lyf er hættulaust — jafnvel magnyl getur haft aukaverkanir i' för með sér i sumum tilfellum. Þvi má svo bæta viö, að þótt engu lyfi sé sleppt á markaðinn án mjög itarlegra rannsókna, þá vofir mjög oft sú hætta yfir, að vissar aukaverkanir geti komið fram. Við þvi er brugöist á þann veg, að annað hvort er það tekið af skrá eða gefið undir ströngu eftiriiti. — Viö ákvörðunartöku úm þetta vil ég undirstrika það, að taka verður með i reikninginn hversu gagnlegt lyfið er, sagði landlæknir að lokum. vísm Sumir fó lykla, en aðrir ekki Einn niu ára i Kópavogi skrifar: Ég fór með vini minum i Sundlaug Kópavogs um daginn og báðum við auð- vitað um læsta klefa. Okk- ur var neitað um lykla og sagt að viðyrðum bara að fá snagapláss. Það er ekki nógu gott og hef ég t.ci. orð- ið fyrir þvi að buxunum minum var stolið af snaga einu sinni. Stuttu eftir að okkur var neitað um lyklana, komu yngri strákar og fengu þeir lykla. Þá fórum við aftur og báðum um skýringu, og að fá lykla eins og hinir. Okkur var ekki svarað en hins vegar visað út. Þetta finnst mér óréttlát og skrýtin framkoma.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.