Vísir - 06.03.1976, Blaðsíða 17
visra Laugardagur 6. mars 1976.
17
\
Dómkirkjan. Æskulýðsmessa
klukkan 11. Sr. Óskar J. Þorláks-
son dómprófastur. Föstumessa
kl. 2. Litanian sungin. Sr. Þórir
Stephensen.
Laugarneskirkja. Messa kl. 2.
(Æskulýðsdagurinn). Pjetur
Maack stud. theol. prédikar.
Ungmenni aðstoða við guðsþjón-
ustuna. Barnaguðsþjónusta kl.
10.30. Sr. Garðar Svavarsson.
Hallgrimskirkja. Æskulýðsdag-
urinn. Æskulýðsmessa kl. 11 á
vegum Hjálparstofnunar kirkj-
unnar og Æskulýðsstarfs Þjóð-
kirkjunnar. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prédikar. Fjölskyldu-
messa kl. 2. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Mánudagskvöld og
þriðjudagskvöld kl. 6. Kvöldbæn-
ir. Lesið úr Passiusálmunum.
Messa kl. 15.30. Sigurður Þ. Árna-
son guðfræðinemi og Oddur Al-
bertsson Menntaskólanemi tala.
Skólaprestur þjónar fyrir altari.
Altarisganga. Kirkjukaffi eftir
messu i umsjón Kristilegrar
skólastarfsemi og Kristilegs stú-
dentafélags.
Árbæjarprestakall. Æskulýðs-
dagur þjóðkirkjunnar. Barna-
samkoma i Arbæjarskóla kl. 10.30
árdegis. Æskulýðsguðsþjónusta i
skólanum kl. 2. Ungt fólk aðstoð-
ar. Helgileikur fluttur. Kvöld-
vaka Æskulýðsfélagsins á sama
stað, kl. 20.30, siðdegis. Fjöl-
breytt dagskrá. Allt safnaðarfólk
velkomið. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Grensáskirkja. Barnasamkoma
kl. 10.30. Æskulýðsmessa kl. 2.
Gunnar J. Gunnarsson guðfræði-
nemi prédikar. Fermingarbörn
eru beðin að meta á æskulýðs-
messu. Sóknarprestur.
Langholtsprestakall. Barnasam-
koma kl. 10.30. Sr. Arelius Niels-
son. Guðsþjónusta kl. 2. Ræðu-
efni: „Þúáttbrýnterindiað leysa
i dag, ef það er mikilvægara en
það sem Kristur á við þig.” Sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Óskastund barnanna kl. 4. Sig.
Haukur. Sóknarnefnd.
Digranesprestakall. Barnasam-
koma i Vighólaskóla kl. 11. Æsku-
lýðsguðsþjónusta kl. 2 i Kópa-
vogskirkju. Þorbergur Kristjáns-
son.
Háteigskirkja. Barnaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Sr. Arngrimur
Jónsson. Messa kl. 2. Dr. Jakob
Jónsson messar. Sr. Jón Þor-
varðsson. Siðdegisguðsþjónusta
kl. 5. Sr. Arngrimur Jónsson.
Kirkja Óháða safnaðarins.Messa
kl. 2. Kirkjugestum boðið til kaffi-
drykkju eftir messu. Sr. Emil
Björnsson.
Neskirkja. Barnasamkoma kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Æsku-
lýðsdagurinn. Ungmenni aðstoða
og æskulýðskór syngur. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Asprestakail. Messa kl. 2. að
Norðurbrún 1. Sr. Árelius Niels-
son.
Bústaðakirkja. Barnasamkoma
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Ungt
fólk aðstoðar við messuflutning.
Sr. Ólafur Skúlason.
Breiðholtsprestakall. Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30. i Breiðholts-
skóla. Æskulýðsmessa á sama
stað kl. 2. Lárus Halldórsson.
Fíladelfiukirkja. Safnaðarguðs-
þjónusta kl. 14. Ræðumaður Guð-
mundur Markússon. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Ræðumaður
Einar Gislason o.fl. Fjölbreyttur
söngur. Einsöngvari Svavar Guð-
mundsson.
Kársnesprestakall. Barnasam-
koma i Kársnesskóla kl. 11 árdeg-
is. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 11. „Æskulýðsdagur-
inn”. Guðni Þór Ólafsson guð-
fræðinemi prédikar. Sr. Arni
Pálsson.
Innanhússæfingar i golfi hjá golf-
klúbbnum i Reykjavik, Hafnar-
firöi og Seltjarnarnesi eru sem
hér segir:
Golfklúbbur Reykjavikur.
Laugardalshöll. (Litli salurinn) á
mánudagskvöldum frá kl'. 20.00 til
22.00.
Nesklúbburinn.
Laugardalshöll. (Litli salurinn) á
sunnudagsmorgnum frá kl. 10.00
til 12.00.
Golfklúbburinn Keilir.
Asgarður Garðabæ, A laugar-
dags- og sunnudagsmorgnum frá
kl. 10.00 til 12.00.
Frank Zappa
treður upp
r Noregi
Norðmenn, f rændur okk-
ar, fengu nýlega að hlusta
á og sjá kappann Frank
Zappa troða upp á sviði í
Osló. Hann og hljómsveit
hans „Mothers of
Invention" léku fyrir fullu
húsi og við góðar undir-
tektir.
Frank Zappa hefur verið lengi á
toppnum. Hann kom fyrst fram
1967, þegar hipparnir blómstruðu
i San Fransisco. En þrátt fyrir
sérkennilegt og næstum hippalegt
útlit sitt og framkomu, hefur
Zappa litið álit á þessu tiskufyrir-
bæri sem nú má heita i algjörri
lægð.
— Hipparnir fylgdust alveg jafn
vel með tiskunni og kvenfólk sem
klæðist fötum frá Dior. Tiskan
var bara öðru visi hjá hippunum,
henni mátti likja við úrvalið i
klæðaskápunum árið 1890. Allir
voru svo i eilifi rúsi, og vissu ekki
hvað var að gerast i kringum þá.
Zappa hefur löngum verið um-
deildur fyrir texta sina. Hann
byggir þá á eigin reynslu, og
gagnrýnir þjóðfélagið, óréttlæti i
þvi og spillingu.
— Sem listamaður tel ég mig
verða að beina athyglinni að
þessum málum, segir hann.
—. En flestallir vilja heyra
sykursæt lög með asnalegum
textum, t.d. svona: Þú elskar
mig, ég þig, þú ert fin. Hjarta
mitt brestur, þú yfirgafst mig, og
blöðin féllu af trjánum.
Frank Zappa fjallar þó ekki
eingöngu um alvarleg mál. Hann
er mikill grinisti, og hefur nýlega
gert kvikmynd sem nefnist „200
mótel”. Þykir hún drepfyndin.
Frak Zappa hefur orðið þjóð-
sagnapersóna yegna sérstæðrar
framkomu sinnar.
Þeir sem þekkja hann'segja að
hann komi fram af hreinskilni,
hafi skipulagsgáfur, og sé þægi-
legur i umgengni.
„Fljótfœrir" rúlluklossar
Rúlluklossar eru það
nýjasta fyrir fólk sem
alltaf er að flýta sér. Nú
er hægt að komast leið-
ar sinnar um stórar
skrifstofubyggingar á
margfalt styttri tima en
áður.
Rúlluklossarnir voru
sýndir nýlega á sýningu
i Frankfurt. Það er
svissneskt fyrirtæki
sem framleiðir þá. Mest
gagn af þessum fóta-
búnaði hefur væntan-
lega fólk sem þarf að
fara langa ganga dag-
lega um stórar bygging-
ar. Slik ferðalög á þess-
um tveimur jafnfljótu
taka á taugarnar þegar
menn eru að flýta sér.
Þegar menn vilja svo
ekki lengur rúlla áfram,
nægir að þrýsta á litinn
eins og á flugvél, og not-
andinn getur gengið
takka á hlið klossanna,
og þá dragast hjólin inn
eins og á venjulegum
skóm væri.
1
Konur ó pill
unni lengur
undir óhrif-
um ófengis
Konur sem taka pilluna eru
lengur undir áhrifum áfengis
en þær sem taka hana ekki.
Þetta kom fram við tilraun
sem gerðar var á hópi kvenna.
Tuttugu og tvær konur, á aldr-
inum frá 21 til 30 ára, voru
fengnar til að drekka drjúgan
skammt af áfengi. Allar höfðu
drukkið áfengi af og til áður.
Helmingur þessara kvenna
var á pillunni, en hinn helm-
ingurinn ekki. Þær á pillunni
voru 5,1 klukkutima að brenna
alkóhólinu i likainanum. Hin-
ar voru ekki nema 4,2 klukku-
tima.
Engar skýringar hafa fund-
ist á þessu.
Svonu á að fara Úr kápunni (ef þið skylduð ekki vita það)
Það er ekki sama hvernig farið er úr kápunni, a.m.k. ekki hjá
kvikmyndastjörnum eins og Raquel Welch. Enda ljósmyndarar á
hverju strái, og ekki nógu gott að það komi fram á myndum að
klaufalega sé að farið.
Leiðbeiningar hennar um hvernig fara má á þokkafullan hátt úr
kápu eru þær að losa hana aftur yfir axlirnar, og láta hana falla
niðurá tniðja handleggi. Henni virðist bara takast nokkuð vel upp á
þessum myndum. Ekki fylgir sögunni hvernig skal bera sig að við
að fækka fötum enn meir....á jafn þokkafullan hátt.