Vísir - 20.03.1976, Qupperneq 17
vrsro Laugardagur 20. mars 1976
C"
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Hjónakornin Steini og
Stina”, gamanleikþáttur
eftir Svavar Gests. Persón-
ur og leikendur i sjötta
þætti: Steini, Bessi Bjarna-
son. Stina, Þóra Friðriks-
dóttir.
19.45 Frá hljómieikum Sam-
einuðu þjóðanna i Genf i
októbers.I.Suisse Romande
hljómsveitin Ieikur Sinfóniu
nr. 5 i e-moll eftir Tsjaikov-
ský, Janos Ferencsik
stjórnar.
20.30 Jón Oskar rithöfundur
les þýðingu sina á bréfi frá
fööur manns, sem pyndaður
var til dauða i Uruguay.
21:00 Frá tónleikum i Háteigs-
kirkju i janúar. Guðni Þ.
Guðmundsson, Carsten
Svanberg og Knud Hovald
leika verk eftir Marcello,
Bach og Pál Ölafsson frá
Hjarðarholti.
21.25 „Kona á Spáni”, smá-
saga eftir Gunnar Gunnars-
son blaðamann. Höfundur
les.
21.45 Kórsöngur. Karlakórinn
Fóstbræður, Erlingur Vig-
fússon, Kristinn Hallsson,
Eygló Viktorsdóttir og Carl
Billich flytja lög eftir Gylfa
Þ. Glslason við ljóð Tómas-
ar Guðmundssonar, Jón
Þórarinsson stjórnar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Hanslög.
Heiðar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
17.00 íþróttir Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Pollyanna Breskur
myndaflokkur, gerður eftir
sögu Eleanor H. Porter.
Lokaþáttur. Efni 5. þáttar:
Jimmy fær fast starf sem
garðyrkjumaður Pendle-
tons, en konurnar i kven-
ffelaginu treysta sér ekki
til að útvega honum sama-
stað. Pendleton er aft-
ur kominn á fætur. Hann
býður Pollýönnu að koma og
búa hjá sér, og hann viður-
kennir fyrir henni að hann
hafi elskað móður hennar.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
19.00 Enska knattspyrnan
Illé
20.00 Fréttir og vcöur
20.35 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Krossgáta V Spurninga-
þáttur með þátttcku þeirra
sem heima sitja. Loka-
þáttur. Kynnir Edda
Þórarinsdóttir. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
'21.05 Læknir til sjós Breskur
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.30 Uppreisnin á Caine
(The Caine Mutiny)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1954. Aðalhlutverk
Humphrey Bogart, José
Ferrer, Fred McMurray og
Van Johnson. Nýr skipstjóri
tekur við stjórn tundur-
spillisins Caíne. Hann tekur
aöstjórna meðharðri hendi,
en áhöfnin er óvön ströng-
um aga. Sá kvittur kemst á
kreik, að skipstjórinn sé
ekki með réttu ráði og ófær
um að stjórna, og þvi gripur
áhöfnin til sinna ráða. Þýð-
andi Kristmann Eiðsson.
23.30 Dagskrárlok
Sunnudagur
21. mars
18.00 Stundin okkar Gúrika
kemur • i heimsókn. Sýnt
verður ævintýri um þvotta-
björn og sagt frá Múhameð,
sem á heima i Marokkó.
Sýnd brúðumynd um litinn,
tryggan hund og húsbónda
hans og loks litiö inn til
Pésa, sem er einn heima og
má engum hleypa inn.
Umsjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og Sig-
riður Margrét Guðmunds-
dóttir. Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Atján grænar cyjarFær-
eysk mynd um lifsskilyrði i
Færeyjum. M.a. rætt við
Atla Dam lögmann, Erlend
Patursson lögþingsmann og
Pái Patursson kóngsbónda i
Kirkjubæ. Þýðandi og þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
21.05 Gamalt vin á nýjum
belgjum Italskur mynda-
flokkur um sögu
skemmtanaiðnaðarins. 2.
þáttur. 1916-1930 Meðal
þeirra, sem koma fram i
þessum þætti, eru Mina,
Raffaella Carra, Nino
Taranto og Moira Orfei.
21.45 Skuggahverfi Sænskt
framhaldsleikrit i 5 þáttum.
2. þáttur. Efni 1. þáttar:
Brita Ribing barónsfrú flyst
til Stokkhólms við fráfall
eiginmanns sins og tekur á
leigu herbergi i fjölbýlis-
húsi. Nábúar hennar eru fá-
tækar verksmiðjustúlkur.
Barónsfrúin telur, að maður
hennar hafi ekki látið eftir
sig neinar eignir, en i ljós
kemur, að hann átti geysi-
legar áfengisbirgðir, sem
verkfræðingur einn hyggst
komast yfir fyrir litið fé.
Þýðandi Öskar Ingimars-
son. (Nordvision — Sænska
- sjónvarpið)
22.30 Aö kvöldi dags Sigurður
Bjarnason, prestur aðvent-
safnaðarins, flytur hug-
vekju.
22.40 Dagskrárlok
Sjónvarp, kl. 21.30:
„Skotinn í 12 myndum, hengdur
í 8 og fangelsaður í 9 myndum"
Humphrey Bogort aðalleikari í bíómyndinni í kvöld
Humphrey Bogart með eiginkonu sinni Láuren
Bacall i myndinni ,,To Have and Have Not" árið 1944.
Humphrey Bogart er aðal-
leikari myndarinnar sem sjón-
varpið sýnir i kvöld. Þær eru
ekki ófáar myndirnar sem hann
hefur leikið i, og margar þeirra
hafa verið sýndar á skerminum
hér. Myndin sem við sjáum i
kvöld, heitir Uppreisnin á Caine
eða á frummálinu „The Caine
Mutiny”.
Mynd þessi er frá árinu 1954.
Efni myndarinnar er á þá leið
að nýr skipstjóri tekur við stjórn
tundurspillisins Caine. Hánn
tekur að stjórna með harðri
hendi, en áhöfnin er óvön
ströngum aga. Sá kvittur kemst
á kreik, að skipstjórinn sé ekki
með réttu ráði og ófær um að
stjórna. Þvi gripur áhöfnin til
sinna ráða.
Auk Bogarts fara með stærstu
hlutverkin, José Ferrer, Fred
McMurray og Van Johnson.
Eftir 12 ár varð
hann stjarna
Mörg hrósyrði hafa fallið um
Humphrey Bogart. Hann varð
þó ekki stjarna fyrr en hann
hafði leikið i kvikmyndum i 12
ár.
Hann fæddist i kringum alda-
mótin 1900 i New York. Foreldr-
ar hans voru vel stæðir enda
faðir hans vel launaður læknir.
Bogart byrjaði að leika i kring-
um 1920.
Hlutverkin sem hann fékk til
að byrja með voru ekkert of
spennandi. Mörgum árum siðar
haft eftir Bogart: „I fyrstu 34
myndunum var ég skotinn i 12
myndum. hengdur eða tekinn af
lifi með rafmagni i 8, og var
fangelsaður i 9.” Og Bogart
hefur lika sagt: „Ég var miklu
oftar skriðandi um á gólfinu
heldur en standandi i fæturna i
þessum fyrstu myndum.”
Lék í síðustu
myndinni 1956 —
dó ári siðar
Eftir að Bogart lék i myndinni
„Casablanca”, sem fékk
Öskarsverðlaun lék liann ekki i
öðrum yndum en þeim sem
hann langaði til að leika i. Eftir
það þurfti hann heldur ekki að
hafa áhyggjur af peningum.
í lok ársins 1943 var hann einn
ar 10 bestu leikurunum, og hélt
þvi til ársins 1949. Eftir það var
hann þó aldrei fjarri þvi að vera
einn af þeirn 10.
Eiginkona Bogarts var
Lauren Bacall sem mjög er
þekkt fyrir leik sinn. Þau léku
saman i nokkrum myndum, en
skammst er að minnast leiks
hennar i myndinni „Murder on
the Orient Express” sem sýnd
var i Háskólabiói ekki alls fyrir
löngu.
Bogart lékst iir krabbameini
árið 1956. ári eftir að hann lék i
sinni siðustu mvnd.
—EA
r
Utvarp, kl. 20.30, sunnudag:
Tekinn fastur í Uruguay
Látinn af völdum pyndinga eftir sólarhring
„Þetta er opið bréf til forseta
Uruguay frá 63ja ára gömlum
kennara. Sonur hans var tekinn
fastur og lifði ekki nema i sólar-
hring í höndum lögreglunnar.”
Þetta sagði Jón Óskar rithöf-
undur þegar við höfðum sam-
band við hann, en i útvarpinu á
morgun les hann þýðingu sina á
þessu bréfi. Sonur kennarans,
var eins og fyrr kemur fram,
pyndaður til dauða i Uruguay.
„Þetta er mjög stillilega
skrifað bréf”, sagði Jón Óskar,
„og fyrst og fremst ákall um
réttlæti”.
Jón Öskar þýddi bréfið úr
ensku með hliðsjón af spænsk-
um texta. Bréfið er upprunalega
skrifað á spænsku. Það barst
Amnesty International hér á
landi, bæði á spænsku og svo i
enskri þýðingu.
Bréfið verður lesið klukkan
hálf niu annað kvöld.
— E A
Sjónvarp,
kl. 21.05:
Romba
á rétt
skip,
en
hvað
þá?
„Læknir tU sjós” er
á dagskrá sjónvarps-
ins i kvöld. Þættirnir
eru nú i réttri röð,
þannig að við höldum
áfram að fylgjast með
köppunum reyna að
komast um borð i
skemmtif erðaskipið
eftirsótta.
Þeim tekst að ramba á rétt
skip eftir ýmis ævintýri og nú
virðist hagur þeirra allur ætla
að vænkast. Skipið er eins gott
og á verður kosið engin ástæða
til annars en að vera ánægður
með að fá að starfa um borð.
Fyrsta flokks aðbúnaður er
um borð og farþegarnir eru
ailir hinir rikustu og njóta lifs-
ins eftir bestu getu.
Skipstjórinn boðar læknana
ásamt yfirmönnum á skipinu
á sinn fund. Hann tilkynnir
þeim að sama kvöld verði
farþegunum boðið upp á hana-
stél og fái þá tækifæri til þess
að kynnast yfirmönnum á
skipinu. Skipstjórinn vill að
læknarnir komi i hanastélið og
leggur mikla áherslu á að það
sé farþegunum mikils virði að
sjá þá rólega um borð.
En þegar liða tekur á daginn
fer Duncan að kenna sér las-
leika. Það þarf svo ekki að
spvrja að þvi að á ýmsu mun
ganga.
— EA
*