Vísir - 20.03.1976, Blaðsíða 24
VÍSIR
Laugardagur 20. marz 1976
\
Sextán
árekstrar
í gœr
— þar af einn
harður
Hiárekstrar uröu á tfmabilinu
frá kl. 8 i gærmorgun til klukkan
rúinlega 6 i gærkvöldi. Af þess-
um 16 var cinn hörkuárekstur,
en engin stórslys urðu á mönn-
uin.
Áreksturinn varð á Bæjar-
hálsi um miðjan dag i gær. Stór
Dodge Weapon bifreið var að
draga Blazer inn á Bæjarháls-
inn i vestur. Volksvagen bifreið
var þá ekið i austur. Okumaður
þeirrar bifreiðar sá ekki snærið
á milli bifreiðanna og ók á það.
Við það snerist Volksvagninn
og lenti á Blazernum. Sá fyrr-
nefndi er nær ónýtur eftir, en
ökumaöur hans slapp meö
skrámur.
Rétt áður en þetta gerðist
haföi orðið árekstur rétt hjá en
ekki eins alvariegur.
—EA
Sœnska
sjónvarpið
gerir
þótf um
fiskveiði-
deiluna
„Sænsku sjónvarpiö cr að
senda nú um þessa lielgi vinnu-
hóp til tslands lil aö taka upp
sjónvarpsfréttir og þætti vegna
fiskveiöideilunnar," segir I frétt
frá Landhelgisgæslunni.
Þar kemur einnig fram, að sjö
Iréttamenn frá erlendum blöð-
um, útvarpi og sjónvarpsstöðv-
um hafa nýverið farið með
varðskipum i gæsluferðir á
austfjarðarmið og sumir einnig
i gæsluflug með Sýr.
Þetta voru bandariskir, hol-
lenskir, þýskir og kanadiskir
fréttamenn. I samvinnu við
upplýsingadeild utanrikisráðu-
neytisins hefur fréllamönnum
þessum verið hjálpað til að
komast i samband við ráðherra
og aðra stjórnmálamenn, einnig
fiskifræðinga og fleiri aðila.
Þýska og kanadiska sjón-
varpið hafa einnig notiö fyrir-
greiðslu gæslunnar nú að und-
anförnu og breskur fréttamaður
frá Observer var um borö I
varðskipi og skrifaöi okkur hlið-
holla grein í blað sitt.
Hins vegar er það áberandi
hvað breskum fréttamönnum
hefur fækkað hér á landi siðustu
vikurnar. EB.
mSSÍ
Tiöar ásiglingar breskra freigáta og stööugar sigiingar islensku varöskipanna hafa aukiö mjög á
kostnaö landhelgisgæslunnar.
i
*■
250 milljóna króna
kostnoðarauki
— vegna meiri starfsemi gœslunnar
„Helmingur þessarar upp-
hæöar er vegna aukinnar starf-
semi landhelgisgæslunnar en
hinn helmingurinn kostnaöur af
nýjum tækjum,” sagöi Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri i dóms-
málaráðuneytinu, i samtali við
Visi,
Dómsmálaráðherra hefur
gefið þá yfirlýsingu að rætt
hefði verið við fjárveitingar-
nefnd Alþingis um fjárveitingu
til handa landhelgisgæslunni að
upphæð um hálfan milljarð
króna.
Baldur Möller sagði, að eins
og lægi i augum uppi hefði við-
haldskostnaður hjá landhelgis-
gæslunni aukist upp á siðkastið.
Auk þess hefðu varðskipin verið
á meiri siglingu en áður og
næmi kostnaður vegna þess um
helmingi þeirrar upphæðar sem
dómsmálaráðherra hefði nefnt.
Hinar 250 milljónirnar rynnu
þá til viðbótarstarfsemi, skipa-
eða flugvélaleigu.
Baldur sagði, að i þessari
upphæð væri ekki nema að litlu
leytí kostnaður vegna i.ugsan-
legra kaupa á nýjum skipum. Ef
af slikum kaupum yrði, væri
gert ráð fyrir lántöku og aö
greiðsla vegna skipakaupanna
kæmi þvi á fleiri ár en þetta.
Varðandi hugsanleg kaup á
hollenskum hraðbátum sagði
Baldur, að viðræður stæðu stöð-
ugt yfir milli landhelgisgæsl-
unnar og ráðherra. Landhelgis-
gæslan hefði haft með höndum
tæknileg atriði varðandi hrað-
bátakaupin.
—EKG
GENGISLÆKKUN LÍRUNNAR:__
„Lœkkar gistikostnað"
— segir Ingólfur í Útsýn
„Þaö er ástæöa til aö ætla aö
lækkun gengisins á itölsku lir-
unni geti lcitt til þess aö gisting
muni lækka í veröi” sagöi
Ingólfur Guöbrandsson forstjóri
feröaskrifstofunnar Otsýnar, i
samtali við Visi.
Eins og kunnugt er hefur liran
fallið mjög i gengi siðustu
mánuði. Samkvæmt upplýsing-
um sem Visir aflaði sér i Seðla-
bankanum nemur lækkunin um
17% frá áramótum miðað við
krónuna.
„Það er of snemmt að spá um
hver áhrifin verða” sagði
Ingólfur Guðbrandsson.
„Fyrstu ferðir okkar til ttaliu
hefjast i mai og við munum biða
átekta þar til mánuði fyrir
brottför um það leyti sem far-
þegar eru að gera upp ferðir
sinar.
Ingólfur minnti á að gengis-
breytingar væru tiðar svo ekki
væri auðvelt að spá fram i
timann hvernig gengið yrði á
lirunni miðað við krónuna.
„Hóteldvöl er aðeins hluti
ferðakostnaðar” sagði Ingólfur.
„Fargjöldin eru dýrasti liðurinn
i ferðunum”.
Ingólfursagði að mikil aðsókn
væri i ttaliuferðir og væri nú að-
eins sáralitið eftir óselt af far-
miðum þangað i sumar. EKG.
Gœsluvarðhaldsúrskurður:
Aðeins einn hefur skilað gögnum til Hœstaréttar
-Aöeins einn þriggja réttar-
gæslumanna varöhaldsfang-
anna þriggja, scm sitja inni
vegna Geirfinnsniálsins, hafa
skilaö gögnum til Hæstaréttar,
sagði Björn Helgason, hæsta-
réttarritari, þegar Visir innti
hann eftir gangi tnála.
Rétt vika er siðan gæsluvarð-
haldsúrskurðurinn var kærður
til Hæstaréttar. Dómur Hæsta-
réttar skal liggja fyrir innan
hálfs mánaðar frá þeim tima er
kæra berst dóminum.
-Ég átti von á þvi að hinir skil-
uðu gögnunum fyrir lokun i gær,
sagði Björn, en úr þessu verður
það ekki fyrr en á mánudag.yS
Ættum að
taka
hollensku
hraðbátana
til
reynslu
— segir Helgi
Hallvarðsson
— Ég álit, aö þessir hátar séu
mjög hcppilcgir fyrir okkur,
einkttm ntcð framtiðina i huga.
Þegar vigahugurinn fer af okk-
ur og baráttunni viö hreta er
lokið þá álit ég þessa báta
hcppilega til gæslustarfa á
grunnslóöunt.
Um sjóhæfnina þori ég náttúr-
lega ekki að fullyrða alveg fyrr
en ég hef reynslusiglt svona bát
en ég hef séð teikningar af hon-
um og mér list þannig á hann að
hann mundi heppilegur fyrir
okkur, og þá eins og ég sagði áð-
an, einkum með framtiðina i
huga.
Þannig fórust Helga Hall-
varðssyni,skipherra á Óðni,orð
i samtali um hollensku bátana,
sem standa landhelgisgæslunni
til boða á leigukjörum.
— Alla vega finnst mér að við
ættum að taka þá til reynslu,
sérstaklega þar sem viö fáum
þá á leigukjörum, sagði Helgi að
lokum. —VS
60 sóttu
um þrjú
flug-
manns-
störf
-Það er veriö að vinna að
ráöningu þriggja nýrra flug-
manna, sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaöafulltrúi Flugleiða, i
samtali við VIsi I gær. Ég býst
ekki viö þvi aö frá ráöningu
verði gengið endanlega fyrr en á
laugardagskviild cða sunnudag.
-Frá þessari ráðningu verður
þó að ganga nú um helgina,
sagði hann, þvi á mánudag
byrjar sex vikna rtámskeið fyrir
flugmennina nýju. Að þvi loknu
tekur við flugþjálfun.
Að sögn Sveins sóttu 60 manns
um stöðuna.
Þessir þrir nýju flugmenn
verða aðstoðarflugmenn á
Fokker Friendship-vélum fé-
lagsins.
-Taisverðar tilfærslur eru fyr-
irdyrum á flugmönnum hjá fél-
aginu, sagði Sveinn. Þannig
verða nokkrir aöstoðarflug-
menn á Boeing þotunum geröir
að flugstjórum á Fokker
Friendship en flugstjórar á
þeim aftur flugstjórar á Boeing.
-VS