Vísir - 29.04.1976, Qupperneq 6
61
Kimmtudagur 29. april 1976
vísm
—'--ri
Guðmundur Pétursson
Bergman orðinn
sprœkur
að nýju
Sænski kvikmynda-
leikstjórinn, Ingmar
Bergman, sagðist i gær
hafa endurheimt
sköpunargáfu sina, en
aðdáendur hans kviðu
þvi, að hún hefði horfið
honum fyrir fullt og
allt i hugaræsingnum
vegna skattamálsins i
heimalandi hans.
Nú segist Bergman hafa
ákveðiö að endurvekja fyrri
ráðagerðir sinar um að gera
kvikmynd um óperettuna ,,Kátu
ekkjuna”.
Siðan hann kom til Hollywood
með konu sinni Ingrid hafa
blaðamenn verið stöðugt á hæl-
um þeim hjónum. Á fundi með
blaðamönnum i gær lýsti hann
deilu sinni við skattayfirvöld
svia þannig: „Siðustu þrjá
mánuðina hef ég verið flæktur
inn i mál, sem gæti aðeins verið
til i bók eftir (Franz) Kafka.”
Svo bætti hann við: ,,Að hugsa
sér að ég skuli hafa fundið
starfslöngunina aftur eftir
þriggja mánaða tómarúm, er
unaðsleg tilfinning.”
Bergman kom til Hollywood
til þess að ræða kvikmyndagerð
við italska framleiðandann,
Dino de Laurentiis. — Hann
sagði blaðamönnum i gær, að
eftir að hann hefði lokið við
myndina „Egg nöðrunnar”,
sem fjallar um uppgang
nasismans i Þýskalandi, ætlaði
hann að snúa sér að „Kátu ekkj-
unni”.
„Fyrst þegar hugmyndin um
kvikmyndun „Kátu ekkjunnar”
vaknaði, var ætlunin að Barbra
Streisand færi með aðalhlut-
verkið, en svo var fallið frá öllu
saman, þvi verkið þótti mundu
verða of dýrt,” sagði Bergman.
Hann kvaðst ekki kenna til
neinnar beiskju i garð stjórn-
valda i heimalandi sinu. „Ég
varð að fara til að losa mig úr
viðjunum, þvi að ég gat ekki lát-
ið draga mig meir inn i þessar
bjánalegu umræður, þar sem ég
skildi ekki stakt orð.”
Bergman sagðist raunar
þakklátur sænsku skattayfir-
völdunum, að þau skyldu hafa,
með ákvörðun sinni um að taka
mál hans aftur fyrii;', orkað á
hann til þess að fara úr landi. —
„Um leið og ég hafði ákveðið að
fara úr landi, fannst mér ég
vera frjáls á ný,” sagði hann.
Leikstjórinn hefur skilið allar
eignir sinar eftir i Sviþjóö, svo
að skattayfirvöld gætu gengið
að þeim, ef hann skyldi tapa
málinu.
„Lögmaður minn hefur reynt
að útskýra fyrir mér málið æ
ofan i æ. Ég veit að tveir og tveir
verða fjórir, en ég læt ekki
sannfærast, þótt þeir segi, að
svo sé. Stærðfræði hefur aldrei
verið mitt fag.”
Hann sagðist hafa brotnað
eftir áfall sem hann fékk.
„Þeir komu og sóttu mig á
leikæfingu. Það var mér mikið
áfall. Það þyrmdi yfir mig, lik-
lega i fyrsta sinn á ævi minni.
Aður þegar syrt hefur i álinn
fyrir mér, hefur það ávallt borið
ávöxt. En nú var ekkert nema
tómarúm og eyða, og mér
fannst ég týna sjálfum mér. Það
var hræðilegt, að hugsa til þess,
að ég gæti ekki unnið meir. —
En ég get ekki legið Sviþjóð eða
stjórninni á hálsi fyrir það.
Hinsvegar kenni ég um klaufa-
bárðum i embættismannakerf-
inu.”
Útför fóm
Flaggað var i hálfa stöng um
gjörvallt Finnland á sunnudag,
þegar útför þeirra 40 sem fórust I
sprengingu i skotfæraverksmiðju
fór fram.
Flestallir ibúar Lapua, bæjarins
PATTY íMESTA
LÚXUSFANGELSI
BANDARÍKJANNA
Geðrannsókn á Patty Hearst
liófst i San Diego i Kaliforniu i
gær. Meðan á rannsdkninni
stendur, situr Patty inni i mesta
lúxusfangelsi i Bandarikjunum,
og þótt viðar væri leitað.
Fangelsið sem er nýlegt, er
sagl betra en mörg hótel. Fanga
klefarnir eru teppalagðir hom i
hom, þar er litsjónvarp, loft-
ræsting, stereokerfi, sérsalerni,
ogmeiraað segja örbylgjuofnar
til að hita sér snarl. Engir riml-
ar eru fyrir gluggum, og fagurt
útsýni út yfir San Diego flóann.
Hins vegar eru gluggar svo
þröngir að þar kemst enginn út.
Áætlað er að geðrannsóknin á
Patty taki þrjá mánuði þarna i
íangelsinu.
504 fangar geta setið inni i
fangelsinu i einu, bæði menn og
konur. Þetta er fyrsta fangelsið
af þremur sem byggja á sam-
kvæmt nýjum hugmyndum um
meðferð fanga, sérstaklega
Patty stuttu áður en hún var flutt
á sjúkrahús vegna veikinda i
lunga.
þeirrasem biða dóms. Hin fang-
elsin á að reisa i Chicago og
New York.
Smith tekur blökku-
menn f stjórnina
Stjórn Ian Smiths i Ródesiu
taldi sig ganga til móts við kröf-
ur hins blakka meirihluta um
hlutdeild I stjórn landsins, þeg-
ar hann i fyrradag setti tvo
ættarhöfðingja blökkumanna i
ráðherraembætti. — Við það
tækifæri var þessi mynd tekin.
— En þjóðernissinnasamtök
blökkumanna hafa látið sér fátt
um finnast.
Stal hríðskotabyssum á
landamœrum A-þýskalands
Flóttamaöur frá Austur-
Þýskalandi sneri aftur til landa-
mæranna, til að stela tveimur
sjálfvirkum hriðskotabyssum
frá löndum sinum fyrrverandi.
Flóttamaðurinn Michael
Gartenschlaeger, 32 ára, hætti
lífi sinu við að fara yfir landa-
mærin vestanmegin frá borg-
inni Lubeck. Hriðskotabyssurn-
ar voru ómannaðar. Þessar
byssur skjóta höglum á við og
dreif, ef einhver fer yfir landa-
mærin austan megin frá.
Þegar Gartenschlaeger haföi
tekiö byssurnar niður, fór hann
meö þær til baka, og afhenti
vestur-þýskum landamæra-
vörðum.
En athæfi hans er ekki grin-
laust. Akvörðun verður tekin i
dag um hvort hann verði kærður
fyrir þjófnað.
Gartenslaeger segist hafa
stoliö byssunum i mótmæla-
skyni við pólitfska stefnu
Austur-Þýskalands.