Vísir - 29.04.1976, Page 11
vism Fimmtudagur 29. aprfl
197fi
Yfirmaður hafvatnsrannsóknarstofnunar sagði að 8-10 svona
mælitæki gætu hangið við sömu baujuna og væru þau öll höfð á
mismunandi dýpi, fyrst og fremst til að mæla hitastig sjávar á
mismunandi dýpi.
islensku og sovésku visindamennirnir hlýða á ræðu leiðangurs-
stjórans, Alexey Treshnikovs, þar sem hann skýrði frá tilgangi
rannsóknanna.
Valery Kiseljev yfirmaður tölvuhópsins sagöi að þrátt fyrir að
þessi tegund tölva væri ekki lengur i framleiöslu i Sovét-
rikjunum, væru engin vandræði með varahluti i náinni framtið.
Þessi tölva er mjög afkastamikil, en i henni er upplýsingum frá
öiium upplýsingamiðlum raðað og þær skoðaðar.
Þessi mynd sýnir hluta af móttökutækjum fyrir loftfræðilegar upplýsingar.
Sovétmenn vilja lengja þann
tima sem unnt sé að flytja varn-
ing sjóleiöis á norðurhöfum.
Samgönguleiðir til Norður-
Rússlands eru mjög erfiðar og
mikinn hluta ársjns eru þær al-
veg lokaðar vegna Isa. Eru nú
kjarnorkuknúnir isbrjótar hafð-
ir fyrir skipalestum meðan isinn
er ekki þykkri en svo að slikt sé
mögulegt.
- Sovéski rannsóknarleiðang-
urinn sem nú er i gangi og sagt
var frá litillega i Visi i gær i til-
efni af komu tveggja ranm
sóknaskipanna til Reykjavikur
hefurm.a. það hlutverk aö gefa
Isbrjótunum upplýsingar um
þær leiðir sem færar eru.
Athuganir leiðangursins eru
nefndar Polex (Polar Experi-
ment) og beinast fyrst og fremst
að hafinu sjálfu, straumum,
hitastigi, efnasamsetningum
hafvatnsins og ismagni á mis-
munandi timum. En einnig eru
gerðar athuganir á áhrifum
hafsins á loftslag og veður i
heiminum og orkumyndun haf-
straumanna.
Um borð i öllum rannsókna-
skipunum eru tölvur sem vinna
úr þeim upplýsingum sem safn-
að er, bæði um borð i skipinu
sjálfu og frá öðrum skipum,
strandstöðvum og gervitungl-
um. Þetta eru langtimaathug-
anir og er árangurs ekki að
vænta að neinu marki i nánustu
framtið. Á meðan safna skipin
þúsundum og milljónum upp-
lýsinga sem talvan raðar og
skoðar jafnóðum.
Öruggari veðurspár
Yfirmaður leiðangursins er
Alexey Treshnikov, prófessor
við Norður- og suður-heims-
skautsrannsóknastofnunina i
Leningrad. Að sögn Treshni-
kovs eru miklar vonir bundnar
við að rannsóknir á hafvatni
geti dregið úr skekkjufjölda i
veðurspám og gert langtima-
veðurspár mögulegar.
Hann sagði aö með athugun-
um á kæiingu lofslagsins yfir
langan tima væri búist viö aö
unnt væri að segja fyrir um með
nokkurri vissu hvenær færi að
hlýna aftur á norðurhveli jarðar
eða hvort kólnunin héldi áfram.
Athuganir á ismagni á norður-
leiðum væru einnig til þess
fallnar að gera svona langtima-
spár um loftslagsþróun.
Sovésku visindamennirnir
buðu islenskum starfsbræðrum
sinum að skoða tækjabúnað
skipanna sl. þriðjudag. Visir
spurði við það tækifæri Hlyn
Sigtryggsson, veðurstofustjóra,
hvort islenskir veðurfræðingar
hefðu getað notið góðs af þess-
um rannsóknum sovétmanna.
Hlynur kvað lltinn möguleika
hafa verið á þvi fram til þessa
þar sem um langtímarannsókn-
ir væri að ræða. Hins vegar
sagðist hann vonast til að rann-
sóknirnar kæmu okkur að gagni
þegar fram i sækti.
Ör endurnýjun tækja
Tækjabúnaður skipanna er
mjög misgamall og þvi jafn-
framt misjafn að gæðum miðað
við nútimakröfur. Visindamenn
þeir sem sýndu blaðamönnum
Visis rannsóknaraðstöðuna
sögðu að sifellt væri verið að
endurnýja rannsóknartækin, en
þau elstu væru frá þvi athuganir
á þessum skipum hófust, eða 10
ára gömul. Flest tækin hefðu þó
verið endurnýjuð á þessum
tima. Tölvan væri t.d. 2ja ára
gömul. Samt væri hún nógu
gömul til þess að hætt væri að
framleiða þessa tegund. Sögðu
þeir að þróunin væri orðin mjög
ör I þeirri tegund tækni. önnur
tæki héldu gildi sinu árum sam-
an.
Rannsóknarferð sú sem nú
stendur yfir hófst i byrjun april
og mun standa fram i júlimánuð
nk. Á þeim tima verður aðallega
safnað upplýsingum um Bar-
entshaf, Grænlandshaf og haf-
svæðiö milli Noregs og íslands.
—S.I
Þetta tæki er scnt upp með loft-
belg. Þegar þaö er komið i rétta
hæð sendir það upplýsingar um
rakastig, loftþrýsting og liita-
stig loftsins i tvær klukku-
stundir.
Alexey Treshnikov sagöi að
tilgangur rannsóknanna væri
fyrst og fremst að þróa
aöferöir ti! að gera langtima
veðurspár, Is spár og spár um
loftslagsþróun — Ljósm. Jim
wmmmm