Vísir - 29.04.1976, Síða 14
Fimmtudagur 29. aprfl 1976 VISIR
Umsjón: Ó.H.
1
Undir stýri
með alkóhól-
magn 122 bjóra
í blóðinu
Líklega á Wilson James
Smyth, 47 ára gamall
skógarhöggsmaður í
Ástralíu metið í ölvun við
akstur.
Lögreglan i Brisbane tók hann
ölvaöan undir stýri og sendi i
blóðprufu. Alkóhólmagnið i
blóðinu mældist 4 prómill. Til
samanburðar má geta þess, að
talið er að mannskepan þoli ekki
nema 5 prómill alkóhóls i
blóðinu án þess að drepast.
„Ég held ég eigi við smá
vandamál að striða,” drafaði
Smyth fyrir framan dómarann.
Hann var dæmdur i 63 þúsund
króna sekt og missi ökuleyfi i 15
mánuði.
Smyth hafði verið á fyllirii i
þrjá daga, þegar hann var tek-
inn. Læknar áætluðu að miðað
við alkóhólmagnið i blóðinu,
ætti hann að hafa drukkið 122
bjóra.
Liv Ullman og Peterson frá Bonniers i Stokkhólmi undirrita samning
um útgáfurétt sjálfsævisögu leikkonunnar ISvíþjóð. 15 milljónir þar.
Liv Ullman búin að fá 30
itiiff/. fyrír œvisöguna
Norska leikkonan, Liv Ullman,
hefur þegar þénað 30 milljonir
(Isl.) króna á sjálfsævisögu sinni,
sem kemur samtimis út á
Noröurlöndum i haust.
Alls staðar nema á Islandi hafa
bókaforlög tryggt sér útgafu-
réttinn. Mestu greiðsluna fékk
Ullman fyrir útgáfuréttinn I
Sviþjóð eða 15 milljónir króna.
Það er risaútgáfufyrirtækið
Bonniers I Stokkhólmi sem gefur
bókina út þar.
1 Noregi og Danmörku hafa tvö
lítil útgáfufyrirtæki tryggt sér út-
gáfuréttinn fyrir dágóöan pening.
Að sjálfsögðu hafa forlögin
fengiðaölesa handrit leikkonunn-
ar, en bókin á að heita „Breyting-
ar”.
„Þetta er besta bók sem ég hef
lengi lesið,” segir Ringhof, annar
eigandi danska útgáfufyrirtækis-
ins Lindhardt og Ringhof.
„Heiti bókarinnar gefur margt
til kynna um innihaldiö. Hún
fjallar um breytingar I lifi Ull-
man, aðallega hvernig hún varð
heimsfræg. Liv Ullman skrifar
um hvað þetta hafi haft aö segja
fyrirhana sem konu. Hún skrifar
um sorgar- og gleðistundir. Hún
segir frá hvernig þetta hefur
komiö niður á móðurhlutverki
hennar, og að -hún sé leiö yfir að
hafa ekki getað sinnt dóttur sinni
betur,” segir Ringhof.
Mælingastörf verka á
flesta sem fremur ó-
spennandi og þurr.
Hópur mælingamanna
i Austurriki glimir nú
hinsvegar við óvenju-
legt verkefni.
1 lok þessa mánaðar verður
ASTÖRI
hópurinn búinn að mæla brjóst
3000 kvenna þar i landi. Þegar
er búið að mæla 5000 brjóst (2500
kvenna haha). Ástæðan er sú að
framleiöendur kvenfatnaðar
hafa kvartað undan þvl að
brjóst kvenna sem taka pilluna
minnki við það. Þeir segja að
þetta rugli hönnuði og föt sem
konurnar voru vanar aö kaupa
áður en þær fóru á pilluna, passi
nú ekki.
Viðskiptaráðuneytið austur-
iska ákvað að mæla þetta bara.
Konur á öllum aldri eru
mældar, bæði konur sem taka
inn pilluna og þær sem taka
hana ekki.
Þegar niðurstööurnar verða
kunnar, ætti austurriski fata-
iðnaðurinn að verða sam-
keppnishæfari en áður, svo
fremi sem niðurstöðurnar leiði
eitthvað i ljós.
Lestarræninginn Biggs meö nokkrum brasiliskum vinum sinum I Rio de Janero, þar sem hann nýtur nú
freisisins og semur ljóö.
Lestarrœninginn gerist Ijóðskáld
Lestarræninginn Ronald
Biggs, sem tók þátt i lestar-
ráninu mikla i Englandi árið
1963, fékk birt eftir sig nokkur
kvæði i breska háðblaðinu
„Punch” fyrir stuttu.
í einu kvæðanna lýsir Biggs
þvi þegar hann skýrði rann-
sóknarlöereelumanni frá hlut
sinum i lestarráninu, eftir að
hann var handtekinn.
Biggs býr nú sem frjáls
maður i Brasiliu en þangað flúði
hanneftirað hafa sloppiðúr
fangelsi.
Þegar „Punch” bauðst til að
birta kvæði eftir hann, skrifaði
hann (ó-eða illþýðanlegt á is-
lensku):
„Poems are my vice. Sir, í
must have them with my tea:
I’m glad you think mine nice,
Sir, and you wish to buy from
Pjötlur
áframl
Tisku „sérfræðingar” er-
lendis spá þvi aö pjöilurnar veröi
jafn vinsæiar i sumar og þær
voru siöasta sumar, þegar þær
komu á markaðinn. En sér-
fræöingarnir gera iitið af þvi aö
koma meö hugmyndir um nýtt
iag á pjötlunum, þær eru nefni-
lega svo litiar, aö um annað iag
er ekki að ræöa. Hér á Iandi
sáust pjötlur nokkuö i fyrra, og
má búast viö enn flciri i pjötlum
i ár.
■Oi