Vísir - 29.04.1976, Side 21
m
vism Fimmtudagur 29. april
1976
Siðferðilegt traust — Siðferðilegt samþykki
Aö þvi er ég best veit, hefur
aBeins einn islenskur ráðherra
horfiö úr ráöherrastóli vegna
meints brots gegn hinu siðferði-
lega trausti almennings.
— Ráöherrann var af höfuö
andstööuflokki talinn hafa gerst
sekur um refsivert athæfi, sem
ekki samrýmdist setu hans i
rikisstjórn tslands og var reynt
meö öllum tiltækum ráöum aö
koma honum úr ráðherrastarfi.
Þetta gerðist
fyrir 44 árum
— Þetta geröist fyrir 44
árum. — Þaö sem ráöherranum
var borið á brýn haföi átt sér
staö 3 árum áöur og var starfi
hans bæöi sem þingmanns og
ráöherra óviökomandi. En út af
þessari aöför taldi ráöherrann
sér skylt aö hverfa úr ráðherra-
stóli á meöan máliö var i
rannsókn. t héraöi hlaut ráð-
herrann 15 daga fangelsisdóm,
en vel að merkja, sá dómur var
kveðinn upp i hita stjórnmál-
anna af einum höfuð'arids'tæö-
ingi ráöherrans, forystumanni i
flokknum, sem ákærði ráðherr-
ann og i þvi ljósi ber að skoða
umræddan dóm. I Hæstarétti
var ráðherrann hins vegar
sýknaður og tók hann sæti sitt á
ný sem ráðherra með fullri
sæmd. —
Ekkert óljóst bréf
Hefði ráðherra þessi látiö
undirmann skrifa rannsóknar-
dómara óljóst bréf um að mönn-
um, sem almannarómur taldi
viðriðna afbrotamál, yrði sýnt
sérstakt tillit, en tilefni þess
væri bréf frá mönnunum sjálf-
um, þar sem þeir kvörtuðu
undan þessum orðasveim og
þeim leiðindum, sem af honum
stafaði. Bréf þetta hefði siðan
orðið til þess, að þessir menn,
sem ella heföi þótt sjálfsagt að
yfirheyra, hefliu sloppið viö þaö
og máliö heföi veriö fellt niöur
vegna bréfs ráðherrans. Þá
heföi máliö horft ööru visi við og
ekki slstef þaö hefði annarra at-
vika vegna komið á daginn, að
þessir menn höfðu gerst sekir
C
Dr. Gunnlaug
Þórðarson skrifar
V
UTj
arj
Eínn íslenskur róðherra
hefur horfíð úr róðherra-
stóli vegna meints brots
um alvarlegt afbrot. Þá hefði
bréfið eitt nægt til þess að ráð-
herrann heföi átt aö hverfa af
þingi og úr ráðherrastól, pvi svo
heföi hann fyrirgert hinu sið-
ferðilega trausti sinu.
Ef fyrirtœki
hefði verið opnað
— Segjum svo að þessi ráð-
herra hefði látið opna aftur
fyrirtæki, sem rannsóknarlög-
reglumenn, er stóðu að
rannsókn alvarlegs afbrota-
máls, hefðu talið nauðsynlegt að
haldiö yröi innsigluöu til þess
m.a. að koma I veg fyrir aö
hugsanlegum sönnunargögnum
I málinu yröi komiö undan, þá
heföi þessisami ráöherra einnig
orðið aö vikja úr sæti og þeim
mun fremur, ef þessi afskipti
ráöherrans hefði að einhverju
leyti mátt rekja til fjármála-
samskipta nefnds fyrirtækis og
flokks ráðherrans, t.d. þess að
fyrirtækið, sem taldi sig vegna
sérstakra atvika hafa átt kröfu
um háar fjárhæðir á hendur ein-
hvers sjóðs á vegum flokks ráð-
herrans, en falliö væri frá
þessurh kröfum um leiö og
fyrirtækið hefði fengist opnað á
ný i blóra við embættismenn,
þá væri krafa hins siðferöilega
trausts skýlausan ef á daginn
heflii komið aö nefnt fyrirtæki
hefði gerst brotlegt viö lög og
opnun fyrirtækisins og niður-
felling málsins heföi komiö i veg
fyrir aö máliö upplýstist.
Brostið
siðferðistraust
— Sem sé minnstu afskipti
eða minnstu fjármálatengsl i
máli sem þessu milli flokks ráð-
herrans og vafasamra fjár-
málamanna heföu I slíku tilviki
þýtt, aö hiö siöferöilega traust
væri brotiö og enginn vafi á þvi,
aö sá ráðherra, sem heföi gerst
sekur um slíkt heföi átt aö vfkja
úr ríkisstjórn og ef tengsli voru
náin og óviðfelldin, einnig úr
sölum Alþingis. —En máliö var
ekki svona alvarlegt árið 1932.
— 1 mesta lagi má segja, aöráö-
herra þessi, sem var dóms-
málaráðherra er löngu látinn,
heföi gerst sekur um aðgæslu-
leysi i lögmannsstarfi én ekki
um aögæsluleysi i ráöherrastól.
— ABgæsluleysi I ráöherra-
embætti, ef sannast heföi og
snert hagsmuni og öryggi borg-
aranna, heföi vissulega réttlætt
kröfu þess flokks, sem krafðist
brottrekstrar ráöherrans — og á
það engu siður við I dag en þá,
ef um slikt hefði veriö að ræöa.
Þingmenn sem
þegja þunnu hljóði
Segja má aö þeir þingmenn,
sem þegja þunnuhljóði i slikum
tilvikum, leggi meö þögn sinni
blessun yfir að hið siöferöislega
traust hafi verið rofiö af ráð-
herra. Þvi var krafa þess
flokks, sem krafðist brott-
rekstrar dómsmálaráðherrans
áriö 1932, réttmæt ef hún hefði
haft við minnstu rök að styöjast
en svo var ekki i það skiptiö.
Nákvæmiega sömu kröfur verö-
ur að gera nú og þá. Það er
mergur málsins.
Með öðrum þjóðum þykir það
siðferðileg skylda, eins og þegar
hefúr verið bent á, að hafi ráö-
herra gerst sekur um minnsta
aðgæsluleysi i starfi sinu gagn-
vart almenningi eða haft
óviðurkvæmileg afskipti af
máli, sem snerta kann fjármál
eða dómsmál og jafnframt á
einhvern hátt flokk ráðherrans
eða flokksbræður, þá skuli sá
hinn sami ráðherra láta af ráð-
herrastörfum, hversu heiðar-
legur sem hann annars kynni að
vera maklega eða ómaklega
álitinn vera.
Ekkert einhlítt svar
Sennilega er ekki til neitt ein-
hlitt svar við þvi, hvernig ráð-
herrar okkar eða þingmenn
myndu bregðast við i sams kon-
ar tilvikum og hér um ræðir.
Spurningin er, hvort þeir myndu
bregðast jafndrengilega og ein-
arðlega við og Nóbelsfriöar-
verölaunahafinn Willy Brandt
eða hvort þeir myndu freistast
til þess aö sitja áfram i trausti
þess, að siöferöisvitund islensku
þjóöarinnar væri ekki hin sama
og gerist með öðrum þjóöum,
sem sé freista þess að þagga
málið niður og vona, aö sá al-
mannarómur, sem alltaf hefur
viö eitthvaö aö styöjast, myndi
fyrnast og máliö gleymast.
Mér er nær aö halda, aö yfir-
gnæfandi fjöldi þingmanna okk-
ar myndi velja seinni kostinn og
komast upp meö þaö, vegna
þess aö islensku þjóöina skorti
siðferöisþrek til þess að kref jast
þess sama af ráðamönnum.
VERSUJN
AUGLÝSINGASÍMAR VÍSIS:
86611 OG 11660
Cavalier hjólhýsi
Til sölu.
Selst með fortjaldi og öllum
tilheyrandi aukaútbúnaði.
Til sýnis að Bolholti 4.
Benco
Bolholti 4.
Sími 21945.
Nýja „Lucky" sófasettið
I*i«
WHÆE 'Springdýrwr
Helluhrauni 20/ Sími 53044.
Hafnarfirði
SPEGLAR
r
r l UD\ ;to nc 1 RRJ
L 1Á
Antik-spegl-
arnir komn-
ir aftur. Laugavegi 15.Simi 19635.
SPEGLABÚÐIN
ódýr egg, 430 kr. pr. kg.
Nýtt hvalkjöt
Reykt hvalkjöt
Ódýr matarkaup.
Opið til kl. 10 föstudag,
lokað 1. mai
Skatthol
og
kommóður
&
i
miklu
úrvali
□□□EJE3CD
Vörðufell,
Þverbrekku 8, Kóp.
Simar 42040 og 44140.
Strandgötu 4 Hafnarfirði. — Sími 51818.
» ' l,M' <
Landsins fjölbreyttasta
| úrval af pottaplöntum
og hagstœðasta verð
Gjafavörur í úrvali
Opið alla daga til kl. 6
^■éMASKÁU hverageroi
MICHAELSEN sImi 99-4225