Vísir - 08.05.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 08.05.1976, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 8. maí 1976. vism Stones platan komin Nýja platan með Rolling Stones „Black and Blue” ernú komin út i Bandarikjunum. A henni eru átta lög, og þar á meðal gamalt raggae-lag „Cherry Oh Baby” sem þeir spiluöu á konsertum sin- um i' sumar. Þá er diskó-lag er heitir Memory Hotel.” Þá hafa borist fréttir þess efnis að uppselt sé á alla tónleika Rolling Stones i Englandi núna i mai. Miðarnir munu hafa rokið úl á nokkrum timum. Þeir halda þar tónleika I stærstu borgum landsins, og hafa siöan sama háttinn á i London og : New York er þeir voru þar siöast þeir eru heila viku, kvöld eftii kvöld i sama hljómleikasalnum Earls Court. I New York var þaf Madison Square Garden. Þessi ráðstöfun felur I sér mik inn sparnað fyrir þá, þarna losna þeir við útgjöld vegna ferðalagt og flutnings á hljóðfærum. Hljóðfœraleikarar leika lausum hala svigrúm en á siðustu plötu, enda talsvert af bitum innan f annars heillegum „pottþéttum” lögum, þar sem hljóðfæraleikarar leika lausum hala ef svo mætti segja. Um þettaergotteittaðsegja, þó að sjálfsögðu, komi þetta til með að rýra gildi laganna á vinsældalistum. Þeir þurfa þó tæplega að hafa áhyggjur af þvi bræðurnir, og vist er, aö platan kemur i heild sinni mjög sterk út, jafnvel sterkar en „Stampede” og þá einkum vegna gamla „Doobies” and- anum, sérstaklega i röddunum, sem svifa yfir henni. Aukahljóðfæri eru notuð m jög smekklega og Memphis Horns sanna enn einu sinni getu sina. Þá hef ég sjaldan eða aldrei heyrt jafn skemmtilega og góða upptöku á bassaleik, og á þess- ari plötu, nema ef vera skyldi á nýjustu plötu Wings. Jafnt og þétt þungt rokk The Dooobie Broth- ers/Takin’ it to the streets WARNER BROTH- ERS/FACO (A) Ólikt siðustu plötu þeirra, „Stampede” þá opnar þessi á frumsömdu lagi eftir Patric Simmons, einn af bræðrunum. Likt og gamli rokkarinn i ferskri útsetningu Doobie broth- ers sem var fyrsta lag „Stampede” gaf til kynna rokk- að innihald þeirrar plötu, þá gefur „Wheels of fortune” góða heildarmynd af innihaldi nýju plötunnar. Tónlistin er enn talsvert rokk- uð, en þó gefur hún einstökum hljóðfæraleikurum mun meira LED ZEPPE- LIN/PRESENCE SWANSONG/F ACO (A+) Led Zeppelin gnæfa ennþá hátt yfir flesta keppinauta sina i þunga rokkinu, þó að þeim stafi mikil hætta frá hljómsveitinni Queen, sem með siðustu plötu sinni hafa sannað tilverurétt sinn efst á rokktindinum. En þaö er likt og vaxandi sam- keppni geri ekki annaö en að brýna Led Zeppelin, og tónlist þeirra á „Presence” er skref fram á viö frá „Physical Fraggity” þó ætla mætti að erfitt væri aö fylgja henni eftir. ' Einn helsti plús plötunnar, er hver tónlistin er öll jafn þétt og rokkuö, hún dettur hvergi niöur. Útkoman verður góð i heiidina. Þó verður það aö reiknast tónlist- inni til frádráttar, hversu tilbreytingarlitil hún er mikið til i gegn um plötuna. En við erum að hlusta á þungt rokk, og slik tónlist er sjaldan tilbreytingarik. Led Zeppelin komast vel frá þessari plötu þó ekki sé útlit fyrir að aðdáendahópur þeirra stækki mikið með tilkomu hennar, til þess er hún helst til þung. En aðdáendum hljómsveitarinnar er hún kærkomin viðbót viö áöur út- komnar plötur hennar, og ef litiö er yfir feril Zeppelin, þá verður þessi aö teljast til þeirra betri. Plötuumslagiö er ihugunarefni út af fyrir sig, og ætla mætti að Zeppelin og 10 CC væru i sam- keppni I hvor hljómsveitin sé með frumlegra og dularfyllra umslag. En skýringin finnst ef nánar er að gáð. Það er sem sé sama fyrir- tæki og ljósmyndari er sjá um út- lit umslaganna. Dínamit með besta móti! Sunnudagskvöldið 2. mai skeliti Tónhornið sér á bail i Sesar, sem annars er ekki i frá- sögur færandi, nema hvað að þar var hijóms veitin Dfnamit að spila. Þetta var I siðasta skipti sem Nikki Róberts spilaði meö hljómsveitinni, en eins og ég hef áöur skýrt frá, þá er Nikki byrjaður i Paradis, og heldur með þeim til Bandarlkjanna I plötuupptöku þessa dagana. Skemmst er frá þvi aö segja, aö Dinamlt voru með besta móti umrætt kvöld, og hef ég aldrei heyrt I þeim betri. Það veröur að segjast, aö þeir hefðu ekki getaö misst Nikka á verri tima, það mun efalaust taka hljóm- sveitina nokkurn tima, að finna pianóleikara til að fylla skarð það sem Nikki skilur eftir sig. Þó svo að Pétur kafteinn komi til með að ganga i Dýnamit á næstunni, þá verða þeir lengi að ná jafnvel saman og þeim hafði greinilega tekist undir það sið- asta. Dinamit virtust hafa nokkuð fjölbreytt lagaval, og mikla ánægju hafði ég af útfærslu þeirra á gamla laginu hennar Millie Small „May Boy Lolly- pop”. Þá tókst þeim einnig vel upp i „Cut The Cake”, lagi er Average White Band hafa gert frægt. 1 þvi lagi var samleikur á saxófóna, og lék Nikki á annað saxið, og tókst öllum hljóöfæra- leikurum að komast vel frá sinu hlutverki. — GSL. Herbert sér eftir að hafa gengið í Pefícan Tónhorninu tókst að ná I skottið á Herberti, söngvara Dinamit, nú nýlega, tii þess að fá hann til þess að skýra frá af- stöðu sinni gagnvart brottför Nikka Róberts úr hljómsveit- inni, yfir i Paradis, og hvað væri í bigerö hjá hljómsveit- inni I nánustu framtlð. Herbert hafði þetta að segja: „Við hinir i hljómsveitinni erum ekkert sárir út I Nikka fyrir að ganga I Paradis siður en svo. Við erum ánægðir fyrir hans hönd, þarna hefur hann fengið gullið tækifæri, og á það skilið, þvi hann er mjög fær pianisti. Það kemur maður i manns stað, og við höldum ótrauöir áfram, meö nýjum píanóleik- ara, þegar hann hefur verið fundinn, og æfður upp. Þetta dæmi sýnir, hve mikil itök Pétur W. Kristjánsson á i bransanum. Við vitum ekki ennþá hver kemur til með aö koma I staö Nikka, þaö hefur ekki ennþá verið haldinn almennilegur fundur um þessi mál. En hann verður haldinn, og þá kemur margt til með að koma i ljós.” „Herbert nú er þetta I annað skipti á einu ári, sem Pétur Kristjánsson blandast inn I þinn feril, I fyrra skiptið tókst þú við af honum sem söngvari i Pelican. Siðan stofnar hann Paradis, sem fljótlega „kaf- sigla” þig og Pelican, ef svo mætti oröa þaö, og svo stelur hann frá þér manni úr hljóm- sveit sem þú stofnaðir. Hvað viltu segja um þetta?” „Ég vil leggja áherslu á þaö, að þessi mannaskipti fóru öll fram með mestu vinsemd. Varöandi Pelican þá verö ég aö viöurkenna aö ég stóð ekki undir þvi sem til var ætlast af mér i þeirri stöðu sem ég tók við af Pétir Kristjáns. Ég mátti ekki við þvi, að komast svona skyndilega I það, sem þá var besta band á landinu. Það var fljótfærni af mér aö taka þessu boði, og ég sé eftir þvi, og hefði ekki átt aö gerast söngvari i Pelican.” — GSL. Herbert þenur raddböndin við undirleik félaga sinna I Dlnamlt. Nœstum of fullkominn 10 CC/HOW DARE YOU MERCURY/F ACO (A+)_____________ 10CC eru án alls efa einbesta og fjölhæfasta hljómsveit sem uppi er i heiminum i dag. Plata þeirra „Sheet music” sannfærði tónlistar- unnendur og gagn- rýnendur um getu þeirra, sú næsta i röð- inni, „Original sound- track”, skipaði þeim öruggan sess i tón- listarheiminum. Á „How dare you”, heyrum við I hljómlistarmönnum sem geta gert góða hluti enn betur, þeim viröist ætia að takast að þróa tónlist slna óendanlega. Tónlist þeirra hér er hnitmiðuö, tæknilega fullkomin og þaö eina sem mætti finna að, er aö fullkomleikinn gerir tónlistina á köflum helst til vélræna. Textar gefa tónlistinni ekkert eftir, þeir standa einir sér. Sér- staklega eftirtektarveröir eru textarnir „Headroom”, „Don’t hang up” og „I wanna rule the world. ” En þyki manni tónlistin á köflum vélræn, þá sjá bráð- skemmtilegar raddanir i mörg- um laganna, þó sérstaklega „Headroom”, „I wanna rule the world” og „Rock’n roll lullabye” til þessaðfá tónlistina á eðlilegt svið. En slik fullkomnum sem er aö finna i þessari plötu er dýr- keypt, og sjálfsagt eiga aðdá- endur 10 CC erfitt meö að skynja það sem fram er að fara viö fyrstu heyrn, tónlistina má flokka undir mjög þunga og þró- aða tónlist, að þvi leyti til, að spila þarf plötuna oft áður en tónlistin kemst til skila. Viö fyrstu heyrn verkar hún jafnvel fráhrindandi. En gefi maður sér nægan tima til þess að melta „How dare you” þá á maður varla skemmtilegri plötu. "

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.