Vísir - 11.06.1976, Page 17
vism Föstudagur
c
1. júní 1976.
)
Sjónvarp, kl. 20.40:
MIKLEY—EYJA ÍSLENDINGANNA
Þessi mynd er frá Mikley á Winnipegvatni, þar sem íslendingar hafa ráöiö rikjum undanfarna öld.
í annarri mynd sjón-
varpsins um íslendinga í
Kanada er fjallað um
eyju i Winnipegvatni/
sem heitir Mikley. En á
þeim slóðum hafa ís-
lendingar búið undan-
farna öld, eða frá því að
fyrstu landnemarnir
héðan stofnuðu á strönd
vatnsins smálýðveldið
Nýja island.
Winnipegvatn er eins og haf-
sjór yfir að lita, enda flatarmál
þess um það bil þriðjungur af
flatarmáli tslands. Veiði hefur
þar verið goð um árabil og land-
ar okkar vestra verið meðal
bestu fiskimanna á vatninu. —
SE
Þessi vigalegi kappi er einn
afkomenda islensku landnem-
anna við Winnipegvatn i
Kanada, Helgi Jónsson skip-
stjóri, sem fæddur er i Mikley
og hefur aliö allan sinn aldur
þar.
Helgi stundar fiskveiðar af
kappi og gerir út sinn eigin bát á
Winnipegvatni. Hann er einn
þeirra landa okkar, sem ólafur
Ragnarsson ræðir við I mynd-
inni i kvöld.
Sjónvarp kl. 21.35:
Atriði úr leikritinu Marat-Sade.
Morðið á Marat, sviðsett af
vistmönnum á geðveikrahœli
Leikritið Marat-Sade
eða „Ofsóknirnar og
morðið á Marat, sviðsett
af vistmönnum á
Charentonhælinu undir
stjórn de Sade mark-
greifa" er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld.
Leikritið gerist á geðveikra-
hæli i Charenton skammt frá
Paris 15 árum eftir frönsku
byltinguna. Vistmenn setja á
svið sýningu um byltinguna og
morðið á Marat. undir stjórn de
Sade , en við hann er sadisminn
kenndur.
Flytjendur leiksins eru
geggjaðir menn, sumir með
mjög þokukennda hugmynd um
hlutverk sitt og hættir til að
detta út úr rullunni.
A árunum 1787-1811 stóð for-
stöðumaður Charenton hælisins
fyrir reglulegum leiksýningum-i
spitalanum, sem voru liðir i
lækningameðferð á sjúklingum.
Það varð brátt tiska i Paris aö
heimsækja hæliö i Charenton,
bæði til að sjá hegöun sjúkling-
anna og sjálfar leiksýningarn-
ar. Þessar staðreyndir eru
grundvöllurinn, sem höfundur-
inn Peter Weiss, byggir á.
Peter Weiss er fæddur áriö
1916 og ólst upp i Þýskalandi og
Tékkóslóvakiu, en gerðist siðar
sænskur rikisborgari. Hann
lagði stund á listnám i Paris og
hefur haldið listsýningar i Svi-
þjóð.
Flest af þvi sem hann skrifaði
á fyrri árum er mótað af bölsýni
og nærri súrrealisma i tjáningu.
Leikritið Marat var frumflutt i
Berlin árið 1964.
Sjónvarpið sýnir i kvöld enska
uppfærslu á leikritinu og er leik-
stjóri Peter Brook. Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Leiksritiö
er ekki við hæfi barna.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
15.00 Miðdegistónleikar Diet-
rich Fischer-Dieskau syng-
ur lög eftir Robert Schu-
mann: Jörg Demus leikur á
pianó. Hans-Werner Watzig
og Sinfóniuhljómsveit út-
varpsins i Berlin leika
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Tónleikar.
17.30 Eruö þið samferða tii Af-
ríku? Ferðaþættir eftir
norskan útvarpsmann,
Lauritz Johnson. Baldur
Pálmason les þýðingu sina
(1).
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Danskur nútimahöf-
undur Ásthildur Erlings-
dóttir lektor talar um
Christian Kampmann.
20.00 Sinfónia nr. 23 I a-moll
op. 56 eftir . Nikolaj
Mjakovský Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins i Moskvu
leikur: Alexej Kovaljoff stj.
20.30 Sauðfjárrækt Agnar
Guðnason les gamalt erindi
eftir Helga Haraldsson á
Hrafnkelsstöðum.
21.00 Frá listahátið: Beint út-
varp úr Háskólabiói. Vest-
ur-þýzka söngkonan Anne-
liese Rothenberger syngur
við undirleik Gunthers
Weissenborns prófessors.
21.45 Ctvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (38).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.25 Hlutverk kirkjunnar i is-
lenzku nútimaþjóðfélagi.
Dr. Björn Bjarnason pró-
fessor flytur erindi.
23.00 Áfangar. Tónlistarþátt-
ur i umsjá Ásmundar
Sveinssonar og Guðna Rún-
ars Agnarssonar.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 tslendingar i Kanada II
Mikley — eyja tslending-
anna Sjónvarpsmenn öfluðu
efhis i þessa mynd i Mikley i
Winnipegvatni siðastliðið
sumar og haust, fylgdust
með mannlifi og lituðust um
á þessari eyju, þar sem Is-
lendingarhafa ráðið rikjum
undanfarna öld. Stjórn og
texti Ólafur Ragnarsson.
Kvikmyndun Om Harðar-
son. Hljóðupptaka og tón-
setning Oddur Gústafsson
og Marinó ólafsson. Klipp-
ing Erlendur Sveinsson.
21.15 Boðið upp í dansKennar-
ar og nemendur i Dansskóla
Heiðars Astvaldssonar sýna
nýjustu dansana. Stjórn
upptöku Egill Eðvarðsson.
21.35 Marat-Sade eða:
Ofsóknirnar og morðið á
Jean-Paul Marat, sviðsett
af sjúklingum á
Charenton-geðveikrahælinu
undir stjórn de Sade mark-
greifa. Leikrit eftir Peter
Weiss. Leikstjóri Peter
Brook. Aðalhlutverk:
Leikarar i The Royal
Shakespeare Company,
Patrick Magee, Ian
Richardson, Michael Willi-
ams, Clifford Rose, Glenda
Jacksono.fi.Leikritið gerist
á geöveikrahæli skammt frá
Paris 15 árum eftir frönsku
byltinguna. Vistmenn setja
á svið sýningu um bylting-
una og morðið á Marat, en
þá skortir einbeitni til að
halda sig við efnið. Sýnt i
Þjóðleikhúsinu árið 1967.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Leikritið er ekki við
hæfi barna.
23.30 Dagskráriok
Kennarar og nemendur Dansskóia Heiðars Ástvaldssonar sýna
nýjustu dansana i sjónvarpinu i kvöld. — Upptöku stjórnaði Egiil
Eðvarðsson.
Útvarp kl. 17,30:
Eruð þið samferða
til Afríku?
„Eruð þið samferða til
Afriku?" heitir þáttur
sem er á dagskrá út-
varpsins í kvöld.
Frásögn þessi er eftir kunnan
norkan útvarpsmann, Lauritz
Johanson, sem reyndar er af is-
lensku bergi brotinn og hefur
nokkrum sinnum komið hingað
til lands.
Hann fór ásamt konu sinni til
Afriku fyrir 20 árum og skrifaði
bók um förina. Þýðandi bókar-
innar Baldur Pálmason, sagði
okkur að höfundurinn lýsti bæði
landi og þjóð i þessari frásögn
sinni. Baldur sagði ennfremur,
aö hann teldi frásögnina eiga
fullt erindi til okkar islendinga
þótt liðin væru tuttugu ár siðan
hún var skrifuð.
Lesturinn hefst klukkan hálf
sex og stendur til 18.45.