Vísir - 11.06.1976, Síða 24

Vísir - 11.06.1976, Síða 24
VISIR Föstudagur 11. júní 1976.. ...1,1.......... & Mörg hassmál í gangi Óvenju mikiö hefur verið um tilraunir til að smygla hassi hingað til lands á undanförnum vikum. Asgeir Friðjónsson dómari sagði við Visi i morgun aö það væri nokkuö tilviljunum háð hve mörg mál væru til með- ferðar i einu, þessi alda að und- anförnu þyrfti ekki endilega að tákna stóraukinn innflutning á fikniefnum. Nú munu þrjú mal vera i gangi, og sitja fimm menn i gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á þeim. Þar af er einn i fangelsi á Spáni. Siðast i gær voru tveir ungir menn úr- skurðaðir i gæsluvarðhald i Keflavik. Ásgeir tjáði Visi ennfremur að þegar um væri að ræða inn- flutning á fikniefnum tií dreif- ingar mætti fastlega gera ráð fyrir fangelsisdómum yfir þeim er að þvi stæðu. Raunar hefðu þegar fallið slikir dómar, en As- geiri var ekki kunnugt um hvort viðkomandi hefðu afplánað refsinguna. —AH Eldur í Norrœna húsinu Eldur kviknaði i kjallara Nor- ræna hússins i gærkvöldi. Mun eldurinn hafa komið upp i her- bergi sem notað er sem bóka- geymsla. Allmikill reykur varð, og komst hann að einhverju leyti upp á hæðina. Greiðlega gekk þó að slökkva eldinn og munu skemmdir hafa verið óveruleg- ar. — AH Réttindalaus w a stolnumbíl Bil var stolið fyrir utan hús nokkurt á Húsavik i nótt. Var þar á ferð ungur maður, nokkuð ölvaður, og hafði hann áður misst ökuleyfið. Ok hann bif- reiðinni út fyrir bæinn, en þar fékk ökuferðin skjótan endi, þar sem bifreiðin festist i malar- gryfju. 1 morgun var ekki búið að kanna skemmdir á bifreiðinni. —AH Milljónir ó númer 7852 Dregið var i (i. flokki Happ- drættis Háskóla íslands i gær. 9450 vinningar voru dregnir að fjárhæð 123.9B0 krónur. Hæsti vinningurinn ein milljón, kom á miða nr. 7852. 500 þúsund króna vinningur kom á miða nr. 33098 en 200 þúsund króna vinningur kom á nr. 39725. VORU EKKI FRÁ UPPTÖKUHEIMILINU Unglingarnir setn lentu i ryskingum á Illemmtorgi i fyrradag og sagt var frá I blað- inu i gær, voru ekki l'rá Upp- tökuheimilinu i Kópavogi. Þeir sem þar búa eru nú úti á landi, og gátu þvi ekki verið þarna á ferð. Umsjónarmenn heimilisins tóku hinsvegar við öðrum piltinum, og mun það liafa valdið misskilningnum i l'rásögn lögreglunnar. — AH STYRJALDARÁRIN FRÁ SJÓN- ARHÓLI ELLEFU ÁRA DRENGS „Myndin fjallar um f jölskyldu i litlu sjávarþorpi á tslandi i lok styrjaldarinnar. Einkum er reynt að draga fram viðhorf barna til strfðsins”, sagði Agúst Guðmundsson i samtali við Visi. En hann leikstýrir mynd þeirri um striðsárin á tslandi, sem sjónvarpið vinnur aö um þessar mundir. „Hugmyndin er upphaflega fengin frá hinum Norðurlöndun- um, en þar er einnig unnið að gerð mynda sem lýsa þvi hvernig börn lita á striðið”, sagði Agúst. Aðspurður sagði Agúst, að þetta yrði eins konar mynda- flokkur og yrðu þær allar sýnd- ar saman. Hver mynd er um hálftima löng og verða þetta alls tiu myndir, þvi að hin Norður- löndin gera þrjár myndir hvert. Ágúst kvaðst hafa komið heim i april sl. til að vinna við mynd- A fjörukambinum fyrir framan Brúsastaði er að risa mikið fallbyssuvirki. Vlsismyndir JA. ina, en hann hefur dvalið er- lendis við nám, og er þetta i fyrsta skipti sem hann leikstýrir kvikmynd. Myndin um striðsárin er aö mestu leyti tekin við bæinn Brúsastaði I Hafnarfirði. Myndin er mest öll tekin i Hafnarfirði, i bænum Brúsa- stöðum og i nágrenni hans. Þeg- ar eru hafnar framkvæmdir við byggingu fallbyssuvirkis á fjörukambinum framan við Brúsastaði. Aðspurður sagði Agúst, að leikarar i myndinni væru alls 43 og væru allir áhugamenn. Aðal- hlutverkið leikur Halldór Jörg- en Jörgenson, nemandi i Voga- skóla. Sjónvarpið fær alla herbún- inga frá fyrirtæki i Bretlandi, sem „leigir búninga um allan heim. „Eina vandamálið, ef vandamál skal kalla, er i sam- bandi við hárgreiðsluna. Það þarf að klippa alla karlmennina — og hermennina sérstaklega vel”, sagði Agúst. „Hugmyndin var upphaflega sú, að gera mynd fyrir börn þeirra sem voru börn á striðs- árunum. Siðan gæti fjölskyldan horft saman á myndirnar og rætt um þær á eftir. Frá þessari hugmynd höfum við ekki hvik- að”, sagði Agúst ennfremur. Kvikmyndin er gerð eftir handriti Stefáns Júliussonar. — SE Mikil áhersla er lögð á að likja nákvæmlcga eftir mannvirkjum frá striðsárunum. RALLAÐ Á MORGUN önnur raliy-keppnin síi.nar svipuðu sniði og i fyrra, bilarnir tegundar hér á landi fer fram á verða ræstir með um einnar morgun. Lagt verður af stað frá minútu millibili, og verða tveir Hótel Loftleiöum kl. 13, og búist ökumenn i hverri bifreið. er við að fyrstu bilarnir komi Há peningaverðlaun eru i aftur i bæinn rétt fyrir klukkan boði, 1. verðlaun eru 80 þús. 19. Leiðinni sem ekin verður að krónur, 2. verðlaun 45 þúsund og þessu sinni er haldið leyndri þar 3. verðlaun 25 þúsund krónur. til keppnin hefst, en að sögn for- Auk þess fær sigurvegari svarsmanna keppninnar er hún farandbikar, og ökumenn um 250 km löng. Er það um 100 þriggja efstu bifreiða fá allir km lengri leið en farin var i verðlaunapening. fyrra. 1 gær var dregið um rásnúmer Vegna þess hve leiðin er erfið á ritstjórnarskrifstofum Visis, sem ekin er að þessu sinni var en röð fyrstu keppenda er þó ákveðið að útiloka jeppa frá miðuð við árangur i keppninni i keppni, þar sem talið var að fyrra. Röð tiu fyrstu keppenda þeir myndu hafa of mikla yfir- er þessi:. 1. Halldór Jónsson 2. burði. Keppendum hefur þvi Hallgrimur Marinósson 3. nokkuð fækkað frá þvi i' fyrra, Halldór Sigurþórsson, 4. Vilmar en þá voru þeir um fjörutiu tals- Þ. Kristinsson, 5. Karl H. ins. t ráði mun hins vegar að Sveinsson, 6. Jón R. Sigmarsson halda aðra keppni siðar i sum- 7. Finnbogi Ásgeirsson 8. Hall- ar, með þátttöku jeppa ein- grimur Axelsson, 9. Magnús göngu. Helgason og sá tiundi i röðinni Keppnin verður annars með verður Garðar Eyland. — AH Sigriður Egilsdóttir, blaðamaður hjá Visi, dregur hér um rásnúmer keppenda i rallinu, að viðstöddum fulltrúum FIB, þeim Arna Arna- syni, og Sveini Oddgeirssyni. Myndina tók Jens Alexandersson Ijósm. Visis á ritstjórnarskrifstofum blaðsins.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.