Vísir - 06.08.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 06.08.1976, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 6. ágúst 1976. 3 Grjófjötunsmálið er nú komið til ríkissaksóknara Grjótjötunsmálið svonefnda hefur nú verið sent rikissaksókn- ara til umfjöliunar. Erla Jóns- dóttir, fulltrúi hjá Sakadómi Reykjavikur varðist allra frétta af málinu er Visir náði tali af henni. „Málið er komið úr minum höndum, og þar af leiðandi tjái ég mig ekki um það” sagði Erla. Mjög erfitt hefur verið að afla upplýsinga um þetta mál, og er Erla var innt eftir hverju það sætti, kvað hún rannsóknina hafa verið mjög umfangsmikla, og vinna við hana hefði þvi verið mjög mikil. ,,Þvi vildi ég hafa sem bestan vinnufrið, og hann hefur alls ekki verið nægur”, sagði hún að lokum. Þórður 'Björnsson rikissak- sóknari er erlendis i frii um þess- ar mundir, og gegnir Hallvarður Einvarðsson vararikissaksóknari starfi hans á meðan. „Málið hefur verið bókað hjá okkur, en annað get ég ekki sagt um það, enn hefur ekki gefist timi til að kanna hvort ástæða er til frekari aðgerða,” sagði Hallvarð- ur er Visir náði tali af honum. Hann kvaðst ekki geta sagt til um hvenær málin færu að skýrast, en það tæki þó alltaf talsverðan tima að kynna sér slik mál. Að lokum sagði Hallvarður að enn væri ekki ákveðið hver hafa myndi yfirumsjón með rannsókn málsins af hálfu embættisins. — AH Hefur setið í 16 dogo vegna rann- sóknar f íknief namóls „Það er unnið að rannsókn málsins af fulium krafti, og þvf miðar áleiðis”, sagði Arnar Guð- mundsson fulltrúi hjá Ávana- og fikniefnadómstólnum i morgun. Enn situr einn maður inni vegna þcssa hassmáls, og hefur hann setið inni siðan 21. júli. Mál- ið snýst einkum um dreifingu á ýmsum kannabisefnum, en að sögn Arnars er rannsókn ekki það langt komið að unnt sé að skýra frá magni efna eða öðru i sam- bandi við málið. Arnar kvað málið mjög um- fangsmikið, og við „marga væri að tala”. — AH OKKAR FOLK Á ÓLAFSFIRÐI Sala Visis úti á landi hefur stóraukist á þessu ári og stööugt bætast við nýir áskrifendur. Visismenn eru að vonum ánægðir með þessar auknu vin- sældir blaðsins og eru þessar móttökur lesenda starfsliði blaösins hvatning til að gera blaðið betra með hverjum nýj- um útgáfudegi. Ekki þýöir þó að skrifa og prenta gott blað nema að þaö komist fljótt og vel til lesenda og þá kemur til kasta dreifingar- fólksins. Visir nýtur þess að hafa gott fólk viö dreifingu blaðsins og þar er Ólafsfjörður engin und- antekning. A Ólafsfirði eru það þrir frisk- ir krakkar sem færa áskrifend- um Visi og eru þau ánægð með árangurinn þvi áskrifendum hefur fjölgað úr 19 i 60 frá þvi að þau byrjuðu að dreifa blaöinu. Ljósmyndari Visis á Ólafs- firði Jóhann Freyr hitti þau þar sem þau voru að bera út og tók þá þessa mynd af þeim. En þau heita Magnús Ólason, Guðrún Jóhannsdóttir og Helgi Jóhannsson. Tíunda helgarblaðið fylgir Vísi á morgun Enn er að koma helgi og þá fylgir Helgarblaöið að sjálf- sögðu ókeypis með Visi, sem sagt meö blaðinu á morgun. Lescndur geta eins og fyrr verið vissir um aö þeir finni eitthvað viðsitthæfiiblaðinu, enda er að þvi stefnt að Helgarblað Visis verði helgarblað fjölskyldunnar allrar. Sagt er frá heimsókn Visis i sendiráð islands i Stokkhótmi, þar sem aðailega er spjallað við Guðmund i. Guðmundsson, sendiherra, og fyrrum utan- rikisráðherra. Hann segist sjá nýja hiið á sendiráðunum nú, þegar hann ber starfsemina saman viö kynni sin af utan- rikisþjónustunni og sendiráðun- um á meðan hann gegndi ráð- herrastarfi. Þá er birt allitarlegt viðtal við Óskar Gíslason, nestor is- lenskrar kvikmyndagerðar, um kvikmyndagerð hans fyrr á ár- um og Ijósmyndanám og myndatöku, en hann hélt á dögunum sýningu á Ijósmynd- um á Kjarvalsstöðum. Fjallað er um gömul hús I Þingholtunum i Reykjavik, poppmálefni, matreiðslu, meö- lerð barna og málningarrúllur. og birt krossgáta, myndasögur i litum, og fjölmargt fleira. Reykjavíkurborg og verkfrœðingarnir Pósthólf notuð til verkfallsbrota an siðasti fundur var með sátta- semjara og ef hann fylgdi lögun- um út i æsar, ætti hann að halda fund þá. Hins vegar hefði það stundum dregist hjá honum i nokkra daga, enda tilgangslaust að mæta á fundi, það sem allir segðu að þeir hefðu ekkert að segja. Meðalviðstaða 14 mán- uðir Gunnar sagðist hafa gert úttekt á þvi, hve löng viðstaða almennra verkfræðinga hefði verið hjá borginni undanfarin ár. I ljós hefði komið að meðal viðstaða hefði verið 14 mánuðir, enda hefðu menn farið þangað sem betra kaup væri greitt. Þeir sem þraukuðu i sjö ár væru ánægðir með vinnuaðstöðuna. auk þess sem þeir fengju þá skárri laún. - Rj „Það hafa verið framin marg- föld verkfallsbrot af hálfu borg- arstarfsmanna," sagði Gunnar Gunnarsson, forsvarsmaður verkfræðinga sein vinna á vegum borgarinnar, i viðtali við Visi í morgun. „Við erum bara svo fámennir, að við eigum þess ekki kost að spyrna gegn þessu. Verkfalls- brotin eru fólgin i þvi að teikning- ar eru sendar til samþykktar hjá borginni i gegn um pósthólf, þannig að þeir verkfræðingar sem standa vörð hér i Skúlatúni, fá ekki rönd viö reist. Raunverulega eru þessi verk- fallsbrot ekki ósvipuð þvi eins og ef þessir verkfallsbrjótar færu að grafa skuröi, ef verkamenn færu i verkfall og hætta væri á að bygg- ingaframkvæmdir stöðvuðust.” Aðspurður hvernig launamál- in stæðu, sagði Gunnar að n.k. mánudag væru fjórtándagar sið- Rannsóknarlögreglu- maðurinn laus úr gœsluvarðhaldi Rannsóknarlögreglumaðurinii sem var fyrir stuttu úrskuröaður i allt að 20 daga gæsluvaröhald liefur verið látinn laus. Ilaföi hann þá setið inni i 10 daga. Rannsókn á ávisanafalsi sem hann hefur játað á sig mun nú að mestu lokið, en þó munu enn vera ókomnar inn nokkrar ávisanir sem talið er að hann hafi gefið út. — AH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.