Vísir - 06.08.1976, Blaðsíða 13

Vísir - 06.08.1976, Blaðsíða 13
SENDUM I POSTKROFU ELLE BOLIR I OLLUM GEROUM, LITUM OG STÆRÐUM Tekst þeim að komast í úrslit? Tveir leikir voru leiknir i gærkvöidi á Noröuriandamóti drengja 14 til 16 ára sem fram fer hér á landi þessa dagana. A Akra- nesi léku finnar og norðmenn og lauk þeim Icik meö jafntefli 1:1 — og i Kópavogi léku svíar og danir og þar varö einnig jafntefli 2:2. Siöustu leikirnir fyrir úrslitakeppnina veröa i kvöld, þá leika islendingar viö norö- menn á Laugardaisvellinum kl. 19:00 og f Hafnarfiröi leika vestur-þjóöverjar og sviar kl. 19:00. Staöan i riölunum er nú þessi: A-riöill Finnland 2 0 2 0 2:2 2 lsland 1 0 1 0 1:1 1 Noregur 1 0 1 0 1:1 1 B-riöUI Danmörk Sviþjóð V-Þýskaland Eins og sést á töflunni þá á islenska liöiö góöa möguleika á aö komast i úrslit, en til aö svo geti orðið þarf liöið aö sigra norðmenn I kvöld. A sunnudaginn veröur svo leikiö um endan- lega röö liöanna. — BB Setti heimsmet á Ermasundi! Tina Bischoff, 17 ára stúlka frá Banda- rikjunum setti I gær nýtt heimsmet I sundi yf- ir Ermasund þegar hún synti vegalengdina frá Dover til Frakkiands (um 30 km.) á 9 klst. og 3 minútum. Eldra metiö var 9 klst. og 35 minútur, sett af bretanum Barry Watson 1964. Þetta var önnur tilraun Tinu Bischoff til þess aö synda yfir Ermasund, i fyrra reyndi hún, en varð þá aö gefast upp eftir 9 klst, og 25 minútur, en þá átti hún eftir um 2 kiló- metra. gk. Niki Lauda er Læknar við spitalann i Mannheim I V-Þýskalandi sem annast austurrlska heims- meistarann I kappakstri, Niki Lauda til- kynntu i gær aö hann væri á góöum batavegi. Lauda, sem hefur barist fyrir Iifi slnu eftir að Ferrari bill hans lenti I árekstri og brann um helgina, er nú talinn úr allri llfshættu, og læknar þeir sem annast hann telja jafnvel inöguleika á aö hann eigi eftir aö keppa á ný. Það er þó taliö undir þvl komiö aö vinstra auga hans veröi gott á ný, en hann meiddist illa á þvi i árekstrinum. t beinu framhaldi af þessum árekstri Lauda hafa Ferrari verksmiöjurnar ákveðiö aö draga alla Ferrari bila út úr keppninni um heimsmeistarabikarinn* gk. Aukasýning hjó fimleikahópnum „Fyrir einstakan velvilja þeirra, þá tókst okkur aö fá þau til þess aö hafa eina aukasýn- ingu” sagöi Asgeir Guömundsson form. Fim- leikasambands tslands viö Visi I morgun. Þaö hefur sem sagt veriö ákveöiö , aö sovéski fimleikaflokkurinn sem hérhefur haldiö tvær sýningar viö geysilega hrifningu áhorfenda haldi aukasýningu á morgun kl. 18. Forsala miöa á þ.a sýningu hefst i Laugardalshöllinni kl. 15 á morgun. Þriöja sýnmg sovésku snillinganna er I kvöld, og er enn hægt aö fá miöa I stæöi á þá sýningu. — Þaö er lika vert aö geta þess, aö Nelli Kim, hinn margfaldi gullverðlaunahafi frá Montreal er búin aö ná sér eftir veikindi sin og sýnir nú allar slnar æfingar. gk. Víkingar hœttir að vinna leiki! Sigurinn tryggöur. Guömundur Ingvason sést hér skora sföara mark KR I leiknum gegn Viking I gær- kvöldi. Hann fékk fyrirgjöf frá Jóhanni Torfasyni og skoraöi auöveldlega, enda vikingsvörnin illa á veröi. Ljósmynd Einar. Föstudagur 6. ágúst 1976. VISIR Umsjón: Björn Blöndal og Gylfi Kristjánsson m ■ VISIR Föstudagur 6. ágúst 1976. ..--------------------------------------- .. v' -• - . r - , "•■•' ' Björgvin hefur tekið forustunq — íslandsmeistarinn þrjú s.l. úr hefur tvö högg í forskot á nœsta mann þegar íslandsmótið er hálfnað i Em mesta afrekskona sem keppt hefur I frjálsum iþróttum, Irena Szewinska frá Póllandi, sigrar hér 400 metra hlaupinu á Ólympluleikunum I Montreal. — þeir hafa ekki unnið í 1. deildinni síðan 24. júní — og töpuðu fyrir KR-ingum í gœrkvöldi 1:2 Loks kom aö þvi aö áhangendur KR gátu fagnaö sigri liös sins I 1. deildinni. KR-ingar sigruöu afar slakt liö Vlkings I gærkvöldi meö tveimur mörkum gegn einu, en þaö var enginn glæsibragöur né ( STAÐAN ) Staöan i 1. deild tslandsmótsins i knattspyrnu er nú þessi: Vikingur:KR 1:2 Valur 12 7 4 1 34:12 18 Fram 12 7 3 2 18:14 17 Akranes 11 5 4 2 15:13 14 Víkingur 11 6 1 4 15:14 13 Breiöabl. 11 5 2 4 13:13 12 KR 13 3 5 5 19:18 11 ÍBK 12 5 1 6 17:17 11 FH 11 1 4 6 6:18 6 Þróttur 12 1 2 9 7:25 4 Markhæstu leikmenn eru: Guömundur Þorbjörnsson Val 10 Hermann Gunnarsson Val 9 IngiBjörn Albertsson Val 9 Jóhann Torfason KR 6 Kristinn Jörundsson Fram 6 Teitur Þóröarson ÍA 6 Næstu leikir I 1. deild eru á morgun. Þá leika Akranes og Valur á Akranesi, og FH og Fram i Hafnarfirði. Siöan er einn leikur á sunnudag, Breiöablik og ÍBK leika I Kópavogi. nokkurt öryggi yfir þeim sigri. Þaö var ekki nema þrivegis sem undirritaöur sá ástæöu til þess aö lyfta minnisbókinni I ieiknum i gærkvöldi, þaö var þeg- ar mörkin voru skoruö. Annars fór leikurinn aö langmestu leyti fram á miöjunni, þar var oft á tiöum hart barist, oftast af meira kappi en forsjá. Það hlýtur aö vekja furöu manna hversu mikið liöi Vikings hefur farið aftur i siðustu leikjum sinum. Að visu varð liöið fyrir miklu áfalli þegar það missti Stefán Halldórsson, en það skýrir ekki það hversu öðrum leik- mönnum virðist hafa fariö aftur. Og leikgleðin sem var svo áber- andi hjá liðinu i fyrri umferðinni virðist horfin. KR-ingar léku þennan leik mjög svipað og þeir hafa gert i sumar. Að visu hafa þeir átt leik og leik sem þeir hafa leikiö mjög vel, þótt uppskeran hafi ekki ávallt verið samkvæmt þvi. Þeir hafa oft náð góöri forustu i leikj- um sinum, en tapaö henni niöur og leikjunum þar með. Og það sama virtist ætla að eiga sér stað i leiknum i gær. Þeg- ar Vikingur Iminnkaöi muninn I 1:2 var sem allt færi i „kerfi” hjá KR-ingum, og þaö var eingöngu þvi aö þakka fyrir þá, að Víkings- sóknin var vita bitlaus, annars hefði illa fariö. Fyrsta mark leiksins var skor- að á 31. minútu. Þá átti Adolf Guömundsson misheppnaða sendingu til Diöriks Ólafssonar i markinu — Jóhann Torfason komst á milli og skoraði með föstu skoti framhjá Diörik Ólafs- syni i Víkingsmarkinu. A 10. minútu i síðari hálfleik var Jóhann aftur á ferðinni viö mark Vikings Hann lék laglega upp aö endamörkum hægra meg- in og gaf fyrir markið. Þar kom Guðmundur Ingvason að og renndi boltanum auöveldlega inn — 2:0. En aöeins fjórum minútum slð- ar skoraöi Vikingur.Helgi Helga- son renndi boltanum þá laglega inn i vítateig KR-inga, beint fyrir fætur Óskars Tómassonar sem lék á Magnús Guðmundsson i markinu og skoraði siðan. Eftir markið áttu vikingar öllu meira i leiknum, en þeim tókst ekki að skapa sér hættulegt marktækifæri utan þess aö Eirikur Þorsteinsson átti einu sinni góöan skalla á markið en Magnús bjargaöi vel. En þessi leikur var tæplega miölungsleikur miðaö viö aðra 1. deildarleiki i sumar, og hafa þó margir þeirra veriö ansi slakir. Ekki vantaöi baráttuna og kraft- inn oft á tiðum, en það virðist gleymastaö hugsa áöur en fram- kvæmt er gk-. Meistaramót tslands I frjálsum iþróttum, þaö fimmtugasta i röö- inni, fer fram á Laugardalsvellin- um um helgina og er þetta eitt fjölmennasta meistaramót sem haldiö hefur veriö, og verða þátt- takendur um 140 talsins. Fjórir sovéskir frjálsiþróttamenn veröa meöal keppenda á mótinu, og eru þeir væntanlegir til landsins i dag.enekki hefurenn tekistaö fá nöfn þeirra gefin upp. „Við erum búnir aö senda mörg skeyti til aö reyna að fá upp- lýsingar um hvaða menn þetta eru, en án árangurs,” sagði Stefán Jóhannsson þjálfari Ar- manns iviðtali við Visi t morgun, en það eru ármenningar sem sjá um mótið að þessu sinni. Stefán sagði að þeir hefðu svo fengið skeyti i gær, þar sem til- kynnt var komu fjögurra frjáls- iþróttamanna með flugvél frá Kaupmannahöfn siðar i dag, og það væri það eina sem þeir vissu um þá sovésku. „Við viljum beina þeim tilmæl- um til keppenda að þeir keppi i sinum félagsbúningi. Það hefur viljað brenna við á mótum hér að keppendur séu i annarra þjóða búningum, en slikt verður ekki liðið og sjáum við slikt verður hinum sömu umsvifalaust visað úr keppninni”. — BB Owens sœmdur œðstu orðunm* Ford ba nda rikja fo rs et i sæmdi i gær fyrrverandi ólympiumeistara Jesse Owens æöstu oröu sem borgaralegur maöur getur hlotiö I Bandarikj- unum — oröu friöarins. Þetta var gert I hófi sem Ford hélt bandarisku keppendunum á Ólympiuleikunum i Montreal I Hvita húsinu . Viö þetta tækifæri minntist Ford á frábæran árangur Owens á Ólympiuleikunum i Berlln 1936, en þar vann Jesse fern gullverölaun. Hitler var vanur aö óska ólympiumeistur- unum til hamingju, en þegar rööin kom aö Owens aö taka viö slnum verölaunum hraöaöi Adoif sér á brott. „Þarna tókst frjálslþrótta- manni aö gera nokkuö sem engum stjórnmálamanni eöa hershöföingja tókst nokkru sinni aö gera, en þaö var aö fæla Hitler I burtu”, sagöi Ford. —BB. Sport iiir den Mann im Mann DÁM SJOSTANGA- VEIÐIVÖRUR tslandsmeistarinn i golfi þrjú s.l. ár, Björgvin Þorsteinsson frá Golfklúbbi Akureyrar hefur nú tekiö forustuna I íslandsmótinu sem stendur yfir á Grafarholts- vellinum þessa dagana. Eftir fyrsta dag keppninnar haföi Ragnar Ólafsson GR forust- una, en Björgvin lék I gær á 76 höggum og tókst aö komast fram úr Ragnari sem lék þá á 79 höggum. En besta skorinu I keppninni I gær náöi þó ungur kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, Magnús Halldórsson. Hann lék á 73 höggum, og skaust viö þaö upp I þriöja sætiö i keppninni i m.fl.. Björgvin Þorsteinsson stóð þvi bezt að vigi I gærkvöldi þegar keppni lauk, en þá var mótið hálfnað. Svo litill munur er þó á efstu mönnum i m.fl. að segja má að ekkert megi útaf bera hjá þeim efstu, slæm spilamennska á nokkrum holum getur auðveld- lega sett strik I reikninginn. En staða efstu manna I gærkvöldi var þessi: 1. Björgvin Þorsteinsson GA 74+76 =150 2. Ragnar Ólafsson GR 73+79 _ 152 3. Magnús Halldórsson GK 81 + 73 _ 154 4. Sigurður Thorarensen GK 78+78 156 5. Sigurður Péturs- son GR 76+81 _ 157 6. Óskar Sæmundsson GR 77 + 81 _ 158 7. Agúst Svavarsson GK 81 + 78 _ 159 8. Atli Aðalsteinsson GV 77 + 82 _ 159 19. Einar Guðnason GR 84 + 76 _ 160 10. Július Júliusson GK 80 + 81 _ 161 11. Loftur Ólafsson NK 81 + 80 _ 161 11. flokki karla er hörkukeppni milli þeirra efstu sem eru Knútur Björnsson GK og Ómar 0. Ragnarsson GL. Þeir eru báðir á 166 höggum eftir 36 holur. Siðan kemur Gisli Sigurðsson GK á 170 höggum, og Kjartan Pálsson NK á 171 höggi. Við fengum ekki réttar upplýs- , ingar þegar okkur var tjáð að Gunnar Finnbjörnsson væri i 3. flokki. Það rétta er, að hann er I 2. flokki. Ólafur Marteinsson form. forgjafarnefndar GK hafði sam- band við Visi i morgun út af rétt- inni hér i blaðinu I gær, og bað um að þetta kæmi fram. „Gunnar er kylfingur i mikilli framför, og það er fylgst með forgjöf hans af forgjafarnefnd GK”, sagði Ólafur. En hvað um það, Gunnar hefur örugga forustu i 2. fl. hann er á 162 höggum eftir 36 holúr, en næsti maður sem er Einar Guð- laugsson Golfklúbb Luxemborgar er á 179 höggum. Hrólfur Hjaltason hefur örugga forustu I 3. flokki. Hann er á 181 höggi, en næstur er Ástráður Þórðarson á 191 höggi. Þeir eru báðir úr GR. Islandsmeistarinn frá i fyrra, Kristin Pálsdóttir GK, hefur forustuna I kvennaflokki. Hún er á 174 höggum, en Jakobina Guð- laugsdóttir GV er i öðru sæti á 178 höggum. Siðan koma Jóhanna Ingólfsdóttir GR og Hanna Aðal- steinsdóltir GK á 185 höggum: Agústa Dúa Jónsdóttir GR hefur forustu I 1. flokki kvenna á 202 höggum, en i 2.-3. sæti eru Lilja Eiriksdóttir GR og Karólina Guðmundsdóttir GA á 207 höggum. Eins og fyrr sagði lýkur mótinu á morgun, og er reiknað með að efstu menn i m.fl. fari út um kl. 14, og ljúki keppni um kl. 19- gk- ABU VEIÐIVÖRUR Fjórir sov- éskir keppa # / «fi i Trmlsinn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.