Vísir - 06.08.1976, Side 17
Kvikmyndin í kvöid:
Eitt af afkvœmum Howard Hughes
Joan Collins i myndinni „Guys
And Dolls” frá 1955.
Miölungsgamanmyndin, seni
sjónvarpiö sýnir I kvöld heitir í
frummálinu „Affair With A
Stranger”. Þar segir frá
krakka, sem ættleiddur er al
William Biakeley leikritahöf
undi og konu hans, til aö reyna
aö bjarga hjónabandinu.
„Affair With A Stranger” var
framleidd af RKO áriö 1953, en
RKO var á sinum tima eitt af
fimm stærstu kvikmyndafyrir-
tækjunum i Hollywood, og er
enn þekkt af John Ford mynd-
unum „The Informer” og Fort
Apache” og hamfaramyndinni
v.iöfrægu „King Kong”, sem nú
er veriö aö endurgera.
RKO fór á hausinn áriö 1953
og voru stúdió fyrirtækisins i
Hollywood seld Desilu sjón-
varpsfy rirtækinu.
„Affair With A Stranger” er
merkilegust fyrir þær sakir, að
hún var siðasta myndin sem
RKO fyrirtækið framleiddi.
SiðustU' fimm árin i sögu
fyrirtækisins hafði milljónerinn
nýlátni Howard Hughes verifi
aðaleigandi þess og var myndin,
sem sjónvarpið sýnir i kvöld
framleidd undir handleiðslu
hans.
Leikstjóri myndarinnar var
Roy Rowland. Rowland vann
sig upp i gegnum handritadeild-
ina hjá þeim i MGM I Hollywood
og leikstýrði nokkrum stuttum
Jane Darwell. Móöurlega brosií
hennar hefur birst I ótölulegum
fjölda mynda.
myndum áður en hann fór að
halda um stjórnvölinn i löngum
kvikmyndum frá árinu 1934.
Rowland leikstýröi myndum
fyrir MGM115 ár en hætti þá og
fór að vinna fyrir Howard
Jughes og aðra.
Rowland var atvinnumaður i
faginu sinu, fjölhæfur og oft á
tiðum gamansamur I myndum
sinum. Engin mynda hans ris þó
það mikið upp úr meðalmennsu-
unni að taki þvi að nefna hana.
Hann leikstýrði um 30 mynd-
um á ferli sinum sem stóð
til um 1967. Bæði voru
þetta vestrar, stirðlegar
söngvamyndir og þrúgandi
glæpamyndir.
Annað aðalhlutverkið I mynd-
inni i kvöld er leikið af
Victor Mature, eitt af
þessum andlitum, sem við
könnurqst við eftir að hafa séð
það i nokkrum . annars flokks
myndum i gegnum árin.
A móti honum leikur breska
leikko nan J ean Simmons, sem á
að baki sér öllu viðurkenndari
feril. Hún hóf kvikmyndaleik
sinn I Englandi ekki eldri en 14
ára og þegar hún flutti
til Hollywood þrjátíu ára gömul,
gerði hún samning við Howard
Hughes og er myndin „Affair
With A Stranger” ein af
fjórum myndum, sem hún geröi
Bæöi þau Victor Mature og
Joan Collins hafa ieikiö f kvik-
myndum allt fram á þennan
dag. Hér er Victor Mature i
myndinni „Every I.ittle Crook
and Nanny” frá órinu 1972.
fyrir hann.
Jean Simmons hefur ávallt
sýnt að hún býr yfir miklum
leikhæfileikum, þegar efni kvik-
myndanna hefur gefið henni til-
efni til, en það hefur þvi miður
ekki verið mjög oft.
Þekktustu myndir hennar eru
„Great Expectations” undir
stjórn David Lean og „Happy
Ending” undir stjórn
Richard Bróoks, sem hún
er nú gift. Báðar þessar
myndir komu Jean Simmons i
undanúrslit við Óskarsverð-
launaafhendingu. Af öðrum
myndum hennar má nefna
„Guys” and Dolls” og Divorce
American Style”.
Þeir setn gera sér það ómak i
kvöld að horfa á kvikmyndina i
sjónvarpinu fá einnig að sjá þá
gömlu góðu Jean Darwell, sem
vegna undirhakanna sinna
tveggja og vingjarnlega andlits-
ins hefur leikið lifsreyndar
mæður i ótölulegum fjölda kvik-
mynda. Þekktustu myndir
hennar voru „Þrúgur reiöinn-
ar” (óskarsverðlaun fyrir leik I
aukahlutverki), „A hverfanda
hveli” og „Mary Poppins”.
— JónB
Útvarp í kvöld kl. 22.15:
Slœmar fréttir í fjölmiðlum?
Þátturinn ,,Til
umræðu” er á dagskrá
útvarpsins i kvöld.
I þessum ætti verður fjallað
um fjölmiðla og þá einkum,
hvernig islenskir fjölmiðlar
rækja fréttahlutverk sitt og
hvernig fréttamat þeirra er.
Þá verður fjallað um þá
spurningu, hvort dagblöðin
dragi ekki upp of neikvæða
mynd af þjóðfélaginu og rætt
um rannsóknar- eða aðhalds-
hlutverk fjölmiMa.
Einnig verður rætt um, að hve
miklu leyti það sé hlutverk fjöl-
miðla að grafast fyrir um eða
koma i veg fyrir spillingu I þjóð-
félaginu.
Trúlega verður eitthvað fjall-
aö um, hvort fjölmmiðlar geti
verið frjálsir og óháðir og
hvernig það tengist eignarform-
um.
Stjórnandi þáttarins er Bald-
ur Kristjánsson og mun hann
ræða við Arna Gunnarsson rit-
stjóra Alþýðublaðsins, Frey-
stein Jóhannsson ritstjórnar-
fulltrúa á Timanum og Ólaf
Ragnarsson ritstjóra á Visi.
Þátturinn hefst að loknum
veðurfregnum klukkan 22.15 og
stendur I rúman hálftima.
— SE
Arni Ólafur og Freysteinn ræöa um blöö og fréttaþjónustu i þætti
Baldurs Kristjánssonar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 íþróttir. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
20.00 Sinfóniutónleikar. Flytj-
endur: Kammerhljómsveit-
in i Stuttgart. Stjórnandi:
Wolfgang Hofmann. Ein-
leikari á óbó: André Lar-
drot. a. Konsertserenaða i
Es-dúr op. 20 eftir Ignaz
Pleyel. b. Sinfónia i D-dúr
eftir Francois Joseph Goss-
ec. (Hljóðritun frá útvarp-
inu i Stuttgart).
20.40 Viödvöl i sumarbúöum
KFUK i Vindáshlíö. Gisli
Kristjánsson ritstjóri ræðir
við gesti og forstöðufólk.
21.00 Einsöngur.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan
úr Svartaskógi” eftir
Guömund Frimann, Gisli
Halldórsson leikari les (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Til um-
ræöu. Baldur Kristjánsson
sér um þáttinn.
22.55 Áfangar. Tónlistarþátt-
ur í umsjá Asmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
breska oturinn, en hann er
mjög var um sig og er mest
á ferli á næturnar. Þýðandi
og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
21.30 Frá ólympiuleikunum
22.15 Tekst, ef tveir vilja
(Affair With A Stranger)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1953. Aðalhlutverk Jean
Simmons og Victor Mature.
William Blakley er þekktur
leikritahöfundur. Sú saga
kemst á kreik, að hann ætli
að skilja við konu sina, og
gerir slúðurdálkahöfundur
einn sér mat úr þeirri sögu.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
23.40 Dagskráriok.
Útvorp í kvöld kl. 22.55:
SUNGIÐ UM PÚKAOG RIDDARA
GIsli Rúnar Agnarsson og Asmundur Jónsson umsjónarmenn þátt-
arins „Afangar”.
Afangar I umsjá Ásmundar
Jónssonar og Guöna Rúnars
Agnarssonar eru á dagskrá út-
varpsins i kvöid klukkan 22.55.
Strákarnir reyna yfirleitt að
léika aðra tegund tónlistar en
leikin er i dægurlagaþáttum út-
varpsins. Það er án efa vel
þegið meðal fólks sem er orðiö
þreytt á að heyra sifellt sömu
„vinsælu” lögin.
Gisli Rúnar tjáði okkur, að i
kvöld yrðu meðal annars leikin
tvö frumsamin lög i þjóðlagastil
eftir Peter Bellamy af plötu
háns „Oak, ash and thorn”.
Bæði titill plötunnar svo og
textar laganna eru samdir að
einhverju leyti upp úr smásög-
um breska rithöfundarins
Ruyards Kiplings sem lengi bjó
á Indlandi.
í öðru laginu sem er samið
upp úr sögu Kiplings, „Púkinn á
hæðinni” segir frá systkinum
sem hitta púka, sem gefur þeim
vald til að skynja hluti sem öðru
fólki er ekki mögulegí.
Siðara lagið sem Bellamy
syngur heitir „Sir Richard’s
song” og er eftir sögunni
„Young men of the manor”.
Þessi saga er um norskan ridd-
ara i liði Vilhjálms Bastarðs
sem sigraði engilsaxa við
Hasting árið 1066 og fékk að
launum yfirráð yfir Sussex hér-
aði.
Þá sagöi Gisli Rúnar okkur,
að leikið yrði lag sem þeir John
Abercrombie og nafni hans
Hammers léku. Sá siðarnefndi
var eitt sinn meðlimur i „Maha
Visnu Orchestra”, en Aber-
crombie er höfundur lagsins
sem þeir félagar ætla að flytja
og heitir lagið þvi einfaida nafni
„Love song”.
Einnig fáum við að heyra i
hljómsveitinni „Street
walkers” sem stofnuð er af
Roger Chapman og Charlie
Witney fyrir einu og hálfu ári
siðan. Þeir voru áöur kjarninn i
hljómsveitinni „Family” sem
var mjög vinsæl á sinum tima.
Annars eru kapparnir Chap-
man og Witney einna
kunnastir fyrir,, hvað þeim
gengur illa að halda mannskap i
hljómsveitum sinum. Nýlega
ráku þeir til dæmis bæði
trommuleikarann og bassaleik-
arann úr hljómsveitinni og kom
það öllum á óvart, bæði þeim
sem reknir voru svo og aðdá-
endum hljómsveitarinnar.
— SE
Föstudagur
6. ágúst
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Oturinn Bresk fræðslu-
mynd um þetta fallega og
fjörlega dýr, sem unir sér
jafnt I vatni sem á landi. 1
mörgum löndum Evrópu er
oturinn horfinn með öllu, og
I Bretlandi eru mjög fá dýr
eftir. Taliö er, að þetta sé
fyrsta heimildamyndin um
FÖSTUDAGUR
6. ágúst
' 12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blóm-
ið blóðrauða” eftir Johann-
es Linnankoski. Axel Thor-
steinson les (4).
15.00 Miðdegistónieikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 „í leit að sólinni”. Jónas
Guðmundsson rithöfundur
rabbar við hlustendur (1).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.