Vísir - 06.08.1976, Blaðsíða 23
FÆST UM
LAND ALLT
'“Sfcfterkfea $
Tunguhálsi 11/
sími 82700
Leyfið
Sverri
aðprófa
betur
Stefán Jónsson, Stokkseyri, skrif-
ar:
Eftir að hafa fylgst með baráttu
Sverris Runólfssonar, við kerfið,1
og hlýtt á erindi hans, um daginn
og veginn, i rikisútvarpinu i önd-
verðum júlimánuði, hef ég eftir
farandi tillögu fram að færa.
Semjið við Sverri samkvæmt
föstu tilboði hans um blöndun á
staðnum á veginn frá Núps-
vötnum, að Skeiðará, og fjár-
magnið fyrirtækið með eitt þús-
und króna aukaskatti á hvern út-
svarsgjaldanda i lándinu á ári,
uns tilboðsupphæðinni er náð, tel
ég að enginn myndi sjá eftir þús-
undkallinum, fyrir góðan veg, á
þessum slóðum. Geti Sverrir
sýnt, að hans aðferð dugi betur og
sé ódýrari en aðferð Vegagerðar-
innar, þegar hann getur nýtt öll
þau tæki, sem hann telur nauð-
synleg til verksins, finnst mér
ekkert áhorfsmál að rjúfa þann
einokunarhring, sem Vegagerð
rikisins hefur hingað til haldið öll-
um vegamálum landsins i, frá
upphafi vega. Sýni sig hins vegar,
að Sverrir geti ekki staðið við sín
orð, þá er vissa fengin fyrir þvi,
að hann hefur ekki farið með rétt
mál, og má þá afskrifa aðferð
hans, eftir raunhæfa tilraun, en
ekki að óreyndu, eins og nú er
gert, eftir stæði þó góður spotti af
hringveginum með varanlegu
slitlagi, sem almenningur gæti
notað eftir þörfum, meðan hann
entist, og hafa áreiðanlega mörg
mistök i vegagerð, verið greidd
hærra verði á umliðnum árum, og
það, þó að færri hefðu not af þeim,
en af umræddum spotta.
*
í;
!
GOSBRUNNURINN ER TILBREYT-
INGALAUS OG LEKNNLEGUR
Ingibjörg skrifar:
Gosbrunnurinn i Tjörninni
hefur valdið mörgum reykvik-
ingum vonbrigðum. Ég er ein
þeirra sem hugði gott til þeis að
fá þetta gos, en útkoman var öll
önnur og lakari en ég hafði gert
mér vonir um.
Það er i algerri mótsögn við
allt það sem við islendingar eig-
um að venjast, að bunan skuli
standa þarna upp i loftið án
nokkurra tilbrigða. Við njótum
þess að horfa á breytileika haf-
öldunnar við ströndina. Foss-
arnir okkar gefa lika tilefni til
skoðunar timunum saman.
Sist af öllu likist þessi gos-
brunnur i neinu þeim náttúrlegu
gosum sem við eigum að venj-
ast. Það getur ekki kostað mjög
mikinn aukabúnað að láta gos-
brunninn breyta sér eitthvað,
svo hann falli betur að islensk-
um smekk.
Þá eru það ljósin i brunninum.
Þau eru öll einlit, sem ekki er þó
sérlega ámælisvert. Hitt er
verra, að þau njóta sin engan
veginn i björtu. En i hvert sinn
sem ég hef átt leið þarna fram
hjá að kvöldi til hefur gosbrunn-
urinn ekki verið i gangi. Það fer
þvi litið fyrir ljósadýrðinni.
Þegar allt kemur til alls, held
ég að ég verði að fallast á sjón-
armið þeirra sem voru þvi mót-
fallnir að þessi gosbrunnur væri
yfirleitt nokkurn tima settur
upp.
Margseinkað fíuginu
til Kaupmannahafnar
Móðir hringdi:
Ég er ekki allskostar sátt viö
það sem blaðafulltrúi Flugleiða
sagði um áætlunarferðirnar til
Kaupmannahafnar á lesendasið-
unni um daginn, að þær stæðust
með sérstökum ágætum og engar
tafir’.
Dóttir min var að fara til Kaup-
mannahafnar siöastliðinn laugar-
dag. Vélin átti að fara kl.sex sið-
degis samkvæmt áætlun, og ég
keyrði hana suðureftir. Við
kvöddumst og hún fór inn i fri-
höfn.
•*-------------m.
Borgin viö sundið: Fluginu
þangaö er seinkaö aftur og aftur
segir móöir, sem segist hafa
reynsluna.
Þegar hún var þangað komin
var tilkynnt að vélinni seinkaði og
hún færi ekki fyrr en klukkan átta
um kvöldið. Nokkru seinna var
svo enn tilkynnt seinkun til klukk-
an niu.
Við fengum að ræöast við og
kom saman um að það væri ekki
um annað að gera fyrir hana en
biða. Hún átti að taka lest kl. 12 á
miðiiætti i Kaupmannahöfn, til aö
fara þvert i gegnum Þýskaland.
Það var að visu útséö um að hún
næði henni, en semsagt, ekki um
annað að ræða en fljúga, þótt
seint væri. Við kvöddumst og ég
fór heim. Svo hringdi hún til min
úr frihöfninni og sagði að nú hefði
verið tilkynnt að ekki yrði farið
fyrr en hálf tiu i fyrsta lagi.
♦
Ég veit ekki hvernig það var, en
býst við að farið hafi verið á þeim
tima, þvi ég heyrði ekki aftur i
henni.
Vegna lestarferðarinnar ræddi
ég við starfsfólk Flugleiða, en það
gat ekkert sagt mér um aðrar
lestar. Ég er siðan búin að kom-
ast að þvi að hún hefur þurft að
biöa á brautarpallinum i Kaup-
mannahöfn til kl. 6.45 um morg-
uninn. Þetta hefur verið ó-
skemmtileg biö fyrir hana, og þá
ekki siöur fyrir fólkiö sem ætlaði
að taka á móti henni I Þýskalandi.
Enn ein seinkun.