Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 3
VISIR Þriðjudagur 17. ágúst 1976
3
KVIKMYNDAVtR
Á STRÖNDUNUM
Sjónvarpið vinnur nú
að gerð kvikmyndar
eftir Hrafn Gunnlaugs-
son norður i Djúpuvik á
Ströndum. Ber kvik-
myndin heitið ,,Blóð-
Unnið að kvikmyndatökunni í Djúpuvlk. Leikararnir Róbert Arnfinnsson og Helgi Skúiason koma inn i
þorpið. Sigurliði Guðmundsson kvikmyndatökumaður við vélar slnar.
Helgiog Róbert ræðast við. Eins og sjá má er umhverfið allt hið Iff-
iausasta, enda er ætlunin að svo sé imyndinni.
rautt sólarlag”.
„Það er allt gott að frétta af
kvikmyndatökunni, þetta hefur
gengið ágætlega hjá okkur”,
sagði Björn Björnsson leik-
myndateiknari sem var nyröra
er við ræddum viö hann i morg-
un.
Kvikmyndunin hefur gengið
vel, veðrið verið sæmilega hag-
stætt og áætlum viö að ljúka
myndatöku I lok þessarar
viku”.
Þrfr leikarar eru i myndinni.
Þeir Róbert Amfinnsson, Helgi
Skúlason og Rúrik Haraldsson.
Rúrik er nú kominn til
Reykavikur þar sem hans þætti
er lokið. Róbert veröur væntan-
lega búinn i dag en Helgi Skúla-
son verður út vikuna.
Að sögn Björns á myndin aö
gerast í eyðiþorpi þess vegna
var Djúpavik valin til þess að
vera Hollywood Islands um
stund. En i Djúpuvik er mikið af
gömlum auðum húsum frá þvi
að uppgangur rikti þar.
12 til 15 manns starfa i allt viö
gerð myndarinnar. En áður er
búið að taka hluta hennar við
Geitháls. Upptöku stjórnar
Egill Eðvarðsson.
— EKG/SE
VERÐ Á FISKIMJÖll LÁGT
EN GÓÐAR HORFUR Á AD
ÞAD HÆKKI MED HAUSTINU
Verð á fiskimjöli hefur farið
iækkandi i Evrópu að undan-
förnu og kostar tonnið I dag 413
doliara, en komst i 475 dollara,
þegar best lét i sumar.
Að sögn Haralds Haraldsson-
ar. útflytjanda, má rekja þessa
lækkun til sumarleyfanna, sem
hafa lamað markaðinn i júli og
byrjun ágúst. Ekki væri ósenni-
legt að verðið yrði hagstæðara I
byrjun september.
Þurrkarnir i Evrópu koma
sennilega til með að valda
hækkun á mjölinu og vegna
hitabylgju i Perú er ósennilegt
að mikiö verði um veiðar perú-
manna i haust. Auk þess fer
verð fiskimjölsins eftir
soja-uppskerunni, þannig að
erfitt er að spá um, hvemig
verðlagi á mjölinu verði háttað
i haust, þótt flest bendi til þess
að það verði hagstætt.
Haraldur gat þess að lokum
að litið framboð á mjöli myndi
lika valda hækkun, —RJ
Flytja 10,000 pílagríma
Loftieiöir hafa undirritað
samning um flutning a.m.k.
10.000 pilagrima milli Nígerfu og
Saudi-Arabiu i nóvember og
desember, en milli þeirra staða
eru rúmlega tvö þúsund sjómilur.
Flugferðirnar milli Kano og
Jeddah, en það heita staðirnir
sem flogiö verður á milli, verða á
bilinu 90-120 og verða tvær
DC-8-63 þotur notaðar til flutning-
anna. Sjö áhafnir munu sjá um
flutningana.
1 framhaldi af leiguflugi milli
Saudi-Arablu ogNigeríu s.l. vetur
hafa Flugleiðir hf. haldið sam-
bandi við opinbera aðila i Nigeriu
vegna væntanlegra flutninga á
þessari flugleið siðar meir.
Siðastliðið vor auglýstu nigeriu-
menn eftir tilboðum i pilagrima-
flugin milli Kano og Jeddah og er
tilboðhöfðu verið opnuð 1. júni sl..
var nokkrum viðkomandi flugfé-
lögum boðið tilfundar iKano. Þar
fóru frekari samningar fram og
tilhögun flutninganna var rædd. 1
siðustu viku voru siðan undirrit-
aðir i Lagos samningar um að
Loftleiðir tækju að sér að flytja aö
minnsta kosti 10 þúsund pila-
grima. Sú tala er hins vegar ekki
bindandi og gætu þessir farþegar
orðið mun fleiri.
— RJ
Krafla:
„Vonum ennþá að stöðin geti
farið í gang um áramótm"*^;;
„Það væri fjarskalega mikil
óheppni ef við hefðum ekki
næga gufu um áramótin til þess
að stöðin gæti farið i gang,”
sagði Jakob Björnsson orku-
málastjóri i viðtali við VIsi.
Að undanförnu hefur komið
fram mikil svartsýni á að virkj-
unin viö Kröflu standist neinar
áætianir. Jakob sagði að við
boranavirkjanir væri aldrei
hægt að ganga að neinu sem
visu, en þó væri vonast til að um
áramótin yrði búið að bora 5
holur á þessu ári viö Kröflu.
Ekki annar
valkostur betri
,,Ég hygg að þegar ákvöröun
var tekin um Kröfluvirkjun hafi
ekki veriö annar valkostur betri
á Noröurlandi”, sagöi Jakob.
„Siöan hefur tvennt gerst sem
ekki var hægt að sjá fyrir. Af
þeim þrem holum, sem boraðar
voru fyrst, gáfu tvær gufu, en
önnur þeirra eyöilagðist af ýms-
um samverkandi orsökum.
Hin holan var til að byrja með
5-6 megavött, en eftir að eld-
gosið kom upp i nágrenninu
minnkuðu afköstin smátt og
smátt og eru nú komin niöur
fyrir 1 megavatt.
Nú er verið að bora fyrstu hol-
una á þessu ári og kemur
væntanlega i ljós um næstu
mánaöamót hvað kemur út úr
henni. Við erum byrjaðir á
anarri holunni og eigum von á
fleiri borum, svo þaö ætti að
verða hægt að standast áætlun.
Við vonum ennþá að stöðin geti
farið i gang um áramót.
Hitt er annað mál hvort við
fáum næga orku til að framleiða
30 megavött, eins og æskiiegast
er til þess að hægt sé að ljúka
prófunum. En rafmagnsnotend-
ur nyrðra hafa ekki þörf fyrir
svo mikið, svo stöðin kemur
þeim aðnotum þótt þessu marki
verði ekki náð.” —SJ