Vísir - 17.08.1976, Page 7

Vísir - 17.08.1976, Page 7
VÍSIR Þriöjudagur 17. ígúst 197« og Jón Björgvinsson ] Átti að bera mótur á stuðningsmenn Fords? Fyrrum rikisstjóri Illinois heldur þvl fram, að reynt hafi verið að bera fé á tvo kjörfulltrúa Repúblikanaflokksins og fá þá til að styðja heldur Ronald Reagan en Gerald Ford. Reagan, sem enn er talinn eiga möguleika á aö hljóta 'útnefningu flokksins — þótt Ford sé llklegri — neitaöi þess- um áburði þegar í gærkvöldi. „Þetta eru lygar. Ég held, að það sé einhver ólykt af þessu,” sagði þessi fyrrverandi rikis- stjóri Kaliforniu. Richard Ogilvie, sem er með- al stuðningsmanna Fords, neit- aði að láta uppi nöfn fulltrúanna tveggja, sem hann segir, að hafi fengiö mútutilboðin fyrir tveim vikum. Segist hann hafa kært málið til saksóknara i Kansas City, þar sem fiokksþing repúblikana stendur nú yfir. Síðar f gærkvöldi sagði Marie Goodlow fulltrúi frá Illinois, að henni hefði verið boðiö far i bif- reið af manni, sem þóttist stuðningsmaður Reagans. Hann hafði boðið henni 2,500 dollara greiðslu, ef hún breytti atkvæði sinu. — Hún kvaðst hafa af- þakkað. Þessar ásakanir voru bornar fram, þegar framámenn flokks- ins stéu i ræðustólinn hver á eft- ir öðrum i gær og ávörpuðu þingheim. — Var þar einkum gerður góður rómur að máli þeirra, sem hvað harðast veitt- ustað Jimmy Carter, frambjóð- anda Demókrataflokksins. Howard Baker, þingmanni Tennessee, var ákaft fagnað i ræðustólnum, en hann vék tal- inu að Watergate. — Baker stýrði þingnefndinni sem rann- sakaði Watergatemalið. — Sagði Baker, að Repúblikana- flokkurinn hefði hreinsað til hjá séreftir Watergatehneykslið, en röðin væri fyrir löngu komin að Demókrataflokknum að gera hreint i slnum skúmaskotum. Aðkoman var Ijót Þannig var aðkoman í flótta- mannabúðum palestfnuaraba i Tel al-Zaatar, þegar varnir heimamanna höfðu verið brotn- ar á bak aftur, varnarliðið strá- feilt og sigurvegararnir héldu inn i búðirnar. Hundruð llka lágu á götunum, og virðast verjendurnir hafa staðið við það heit sitt að „verj- ast til siðasta manns”. En eftir siðustu fréttum ann- ars staðar i Libanon virðist bar- áttuhugur palestinuaraba siður en svo hafa verið brotinn niður, þrátt fyrir fall Tel-al-Zaatar. HAMARKSHRAÐI OG DAUÐASLYS Dauðaslysum á veg- um í nágrenni Moskvu hefur fækkað, síðan há- markshraðinn í umferð- inni var lækkaður niður i 60 km/klst„ samkvæmt því sem fram kemur i ágústblaði Umferðar- tímarits Sovétríkjanna. Umferðarlöereglumaður skrifar þar, að á fyrri helm- ing þessa árs hafi 239 manns látið lifið i umferðarslysum i Moskvu, en á sama tima I fyrra fórust 298. Hámarkshraðinn i Moskvu var um tima hækkaður til þess að greiða úr umferðinni, sem er orðin mjög erfið i borginni. En þegar tiðni umferðarslysa jókst, var hámarkshraðinn lækkaður aftur niður i 60 km. 150 létust í snörpum jarðskjálfta Sjö milljóna byggð skalf í mínútu 150 manns að minnsta kosti létust er átta stiga jarðskjálfti reiöyfir syðstu eyjar Filippseyja- klasans i gærdag. Skjálftinn varð rétt eftir mið- nættiá staðartlma, klukkan rúm- lega fjögur á fslenskum tima. Syðsta og næst stærsta eyja Filippseyja, Mindanao, varö verst fyrir barðinu á þessum snarpa jaröskjálfta, en á eyjunni búa um 7 milljónir manna. Jarðskjálftinn átti upptök súi i Moro flóa, sem gengur inn i suð- vestanverða eyjuna og skalf eyjan öll I um minútu. Skjálftinn hrinti af stað um fimm metra hárri flóðbylgju. Hún skall á hafnarborgir á eyjunni Mindanao og smáeyjar undan strönd hennar. Það er erfitt að sjá, hvort klukkan er 5 minútur yfir 4, eða 25 mbiútur yfir 1, þegar hendur viðgerðarmannsins taka að sér hlutverk vlsanna. Sem betur ferþurfa þorpsbúar i Murfreesboro ekki oft að not- ast við slikt. Óttast er að dánartalan hækki þegar grafið verður I aurinn, sem flóöbylgjan skyldi eftir sig. Þeir sem fórust i skjálftanum urðu annað hvort undir húsum, sem hrundu, brúm sem létu undan átökunum eða drukknuðu i flóðbylgjunni.. t einni af stærstu borgum eyjarinnar, Davao, þustu ibúarn- ir út ágötur er skjálftinn varð rétt eftir miðnætti og rafmagnslaust varð um það bil hálftima. Smáir kippir fylgdu 1 kjölfar stærsta skjálftans. Skjálftinn i gær er sá mann- skæðasti, sem riður yfir Filipps- eyjar siðan 1968. Þá létust 321 maður, er ibúðarblokk hrundi i Manila af völdum snarps jarð- skjálfta. Söguleg mynd: Trotsky á leið i útlegð til Slberiu árið 1925. Ætla að rannsaka morðið a Trotsky Trotskyistar i Bret- landi ætla að setja á laggirnar alþjóðlega rannsókn á morði Leons Trotskys i Mexikó fyrir 36 árum. Það hefur alla daga verið grunur trotsky- ista, að ungi maðurinn, sem myrti frumherja þeirra með Isexi á heimili hans i útlegðinni i Mexikó, hafi verið út- sendari erlends rikis. Trotsky fyrrum vopnabróðir Lenins komst i andstöðu viö aðra byltingarleiðtoga Sovétrlkjanna og neyddist til þess að flýja land. Hefur þvi af ýmsum verið haldiö fram, að þeir hafi fyrirkomiö honum. Alex Mitchell, ritstjóri mál- gagns trotskyista i Bretlandi, sagði á blaðamannafundi I gær: „Viö trúum þvi ekki, að leyndar- málið hafi verið upplýst til fulls. Við teljum, að rannsóknir okkar muni fletta ofan af þessu mesta samsæri aldarinnar. Afhjúpan- irnar verða hrikalegar”. Hann sagöi, að I rannsóknar- nefndinni mundu einnig eiga sæti utanflokksmenn. „Margir, sem komu við sögu þessa máls, eru enn á lifi og kunna að vera tilleiðanlegir til þess að segja sögu sina i dag,” sagði Mitchell. Harold Robins, bandarikja- maður, sem var lifvörður Trotskys, þegar moröið var framið, er nú staddur I London til aðstoðar við nefndarskipunina Hann sagði á þessum fundi með blaðamönnum i gær: „Éf þið viljið finna, hver gerði þaö, þá grafiðupp, hverhagnaöist á þvi” Neita að yfirgefa eldfjallaeyjuna Fimmtiu gamalmenni neituðu að yfirgefa heimiii sin á Guadeloupe-eyju I Vestur-- Indium, þótt yfir þeim gnæfi eldfjallið Soufriere, sem þegar er byrjað að spúa ösku. Allir aðrir eyjaskeggjar (72 þúsund talsins) hafa tekið varn- aðarorð vísindamanna alvar- lega og flutt yfir á tviburaeyj- una Grande Terre. — Þvi er páð, að eldfjallið kunni að springa i loft upp og eyjan með, likt og gerðist um aldamótin á eyjunni Martinique, þegar 35 þúsundir fórust._____________ Gamalmennin hafast við i tjöldum, þótt nú sé úrhellisrign- ing, en þau vorulátin flytjastúr heimaþorpunum, sem standa I sjálfri fjallshliöinni. — Meðal þeirra er aldraður sóknarprest- ur þeirra sem ekki viil yfirgefa kirkju sina. Miklir kippir fóru um eyjuna Proper I gær, og þá myndaðist geipimikil rifa i hlið Soufriere (nafnið þýðir Brennisteinsnám- an) og gaus þar upp askan. Franskir visindamenn, sem fylgst hafa með fjallinu, hafa spáð þvi, að það eigi eftir aö springa með afli, sem svari til 30 megatonna kjarnorku- sprengju. Yfirvöld hafa lokaö svæðinu i næsta nágrenni fjallsins, en stökumaður reynir að snúa aft- ur til að bjarga meira af eigum sinum, sem ekki varð komist með I asanum i fyrradag. Hafa lögreglumenn orðið að munda skotvopn sin til aö halda þeim aðgangshörðustu i skefjum. ótt- astþeir gripdeildir, ef einhverj- ir komast i yfirgefin þorpin.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.