Vísir - 17.08.1976, Blaðsíða 8
8
VÍSIR
Ctgefandi: Heykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Hitstjórar: Horsteinn Pálsson, ábm.
Alafur Ragnarsson
Hitstjórnarfulltrúi: Hragi Guöinundsson
Fréttastj. ei I. frétta: Guðmundur Pétursson
Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir,
Einar K. Guöfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Olafur
Hauksson, Oli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir.
tþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
útlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Aúglýsingar: Hverfisgötu44.Simarll6«08«6Il
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla l4.Simi86611.7 linur
Askriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.
1 lausasölu áó kr. eintakið. Hlaöaprent lif.
Tvö meginmarkmið
i kjördæmamálinu
Eftir siðustu kosningar gáfu talsmenn flestra
stjórnmálaflokkanna út yfirlýsingar um nauðsyn
breytinga á kjördæmaskipaninni. Margt bendir
til að nú sé fyrir hendi pólitiskur grundvöllur
fyrir breytingum á þessu sviði.
Umræður þær, sem fram fóru um þetta efni á
siðasta vetri sýna, að sú krafa á verulegan hljóm-
grunn meðal almennings, að komið verði i veg
fyrir þann ójöfnuð, sem nú rikir milli kjósenda i
einstökum landshlutum. Jöfnun kosningaréttar
hlýtur þvi að vera eitt meginatriði væntaniegra
breytinga á kjördæmaskipan.
Gildi atkvæða i Reykjavik og i Reykjaneskjör-
dæmi er miklu minna en réttlætanlegt er. Á það
er einnig að lita, að íbúar i Norðurlandskjör-
dæmi eystra búa einnig við nokkurn ójöfnuð i
þessum efnum. Margsinnis hefur verið á það bent
iþessum umræðum, að kjósendur á Vestfjörðum
ráða fjórfalt gildari atkvæðum en kjósendur á
Reykjanesi. Slik mismunun er að sjálfsögðu óþol-
andi.
Engum vafa er þvi undirorpið að leggja verður
mikla áherslu á jöfnun kosningaréttar. Það er
ekki nóg, að stjórnmálaflokkarnir fái þingmenn
nokkurn veginn i réttu hlutfaili við kjörfylgi.
Kjósendur verða einnig að hafa sömu áhrif hvar á
landinu sem þeir búa.
Stór hópur kjósenda á Reykjanesi hefur með
undirskriftum skorað á Alþingi að hraða úrbótum
á þess sviði. Það er þvi alveg ljóst, að krafa borg-
aranna er um jafnræði kjósenda. Gamla kenning-
in um mismunandi kosningarétt á ekki sama
fylgi að fagna og áður.
Það er til marks um breytt viðhorf i þessum
efnum, að samtök ungra manna i þremur stjórn-
málaflokkum hafa á undanförnum mánuðum
unnið að greinargerð um kjördæmamálið með
það i huga, að leggja grundvöll að sameiginleg-
um tillögum um nýskipan þessara mála. Með
hliðsjón af þeim miklu átökum, sem ævinlega
hafa átt sér stað i tengslum við kjördæmabreyt-
ingar, er þetta samstarf einkar athyglisyert.
Við óhjákvæmilegar breytingar á kjördæma-
skipaninni er einnig nauðsynlegt að taka mið af
öðrum markmiðum en jöfnun kosningaréttar.
Kemur þar fyrst og fremst til álita að persónu-
binda kjör til Alþingis meir en verið hefur við nú-
verandi kerfi. Eins og nú háttar til geta kjósendur
nær einvörðungu valið á milli stjórnmáiaflokka.
Kosningakerfið gerir ekki ráð fyrir, að kjósendur
velji einstaklinga á þing, heldur aðeins þá menn,
sem flokkarnir hafa ákveðið.
Einu undantekningarnar frá þessu eru próf-
kjörin, sem stjórnmálaflokkarnir hafa tekið upp i
nokkrum mæli. Þau eru þó engan veginn viðun-
andi lausn á þvi vandamáli, sem fyrir hendi er i
þessu efni. Þátttaka i þeim gefur þó eindregið til
kynna, að almenningur hefur verulega mikinn
áhuga á að taka þátt i að velja þá einstaklinga,
sem sitja eiga á Alþingi.
Ýmsar leiðir eru að sjálfsögðu færar til þess að
ná þessum markmiðum. Mikilvægast væri þó að
stjórnmálaflokkarnir gætu sameinast um úrbæt-
ur. Margt bendir til þess að meiri möguleikar séu
á slikri samstöðu nú en oft áður. Fyrir þær sakir
er brýnt að málið verði ekki látið daga uppi.
Fram til þessa hefur verið of litil hreyfing á
máli þessu i æðstu valdastofnunum flokkanna.
Kippirnir skóku
undirstöður efna-
hagslífs Kína
Linurnar er smám saman aö
skýrast um áhrif jaröskjálftanna
iKIna,eftirþvf sem nánarifréttir
berast af jaröskjálftasvæöunum.
Þaö dylst ekki lengur, aö jarö-
skjálftinn, sem svipti þúsundir
heimilum sfnum, ollí miklu
manntjóni og öörum skaöa, lætur
eftirsig um tfma aö minnsta kosti
ör á efnahagslifi og útflutnings-
verslun landsins. Má mikiö vera,
ef ekki þarf til meiriháttar breyt-
ingará áætlunum til aövinna upp
tapiö.
Jaröskjálftarnir, sem eru
mestu náttúruhamfarir, er yfir
alþýöulýöveldiö hafa duniö á 27
ára sögu þess, gátu naumast sótt
verr aö. Allt siöasta ár hefur for-
ysta landsins veriö f óvissu vegna
fráfalla fyrri leiötoga, veikinda
formannsins.pólitískrar togstreitu
skoöanahópa og klofnings innan
miöstjórnar flokksins.
Aö visu hefur Hua Kuo-feng,
hinn nýi forsætisráöherra, sýnt
sig aö þvf aö vera dugandi maöur,
en hann hefur naumast verið
nógu lengi til þess aö geta heitiö
öruggur i sessi. Enn sem komiö er
veröur hann að fara bil beggja og
dansa á lfnunni mitt á milli hinna
strfðandi fylkinga, annarsvegar
róttækra og hinsvegar hægfara-
sinnaðri, og hefur ekki enn tryggt
sin völd til þess ab geta boðið
hvorum, sem hann vill, byrginn.
A meðan svo varir, er ekki úti-
lokaö, aö snögg umskipti geti orö-
iö, áður en minnst varir. —
Baráttan um, hver erfa skuli sæti
Maos formanns, sem nú er orðinn
84 ára, er hvergi nærri til lykta
leidd.
Hinn mikilvægi borgaþrf-
hyrningur Hopei-héraösins,
Tangshan-Tientsin-Peking, skilar
af sér um 10% af heildariönaöar-
framleiöslu Kina. Afleiöingarnar
af jarðskjálftanum voru breyti-
legar i hverri þessara borga. Allt
frá minniháttar raski upp i gjör-
eyöileggingu eins og i Tangslían.
Þaö munar um minna skakka-
fall, og mætti jafna til þess, ef Is-
lendingar misstu úr fiskfram-
leiðslu sinni allan afla Vest-
mannaeyjabáta.
Nú er þess aö gæta, að vegna
fjölbreytts iðnaöar, sem dreift er
á öll landshom, stendur Kfna bet-
ur af sér slfkt áfall, heldur en ef
islendingar missa vertiöarafla
sinn eöa ef þjóðverjar væru á
einu bretti sviptir Ruhr-héruðum,
En kinverjar höföu nýlega veitt
miklu fjármagni einmitt I þann
landshlutann, sem harðast varö
úti i jarðskjálftanum. Þar var aö
byggjast upp þriöji stærsti
Flokksleiötogar stappa stálinu i járniönaöarmenn I stálverk
smiöju i Tientsin.
iönaðarkjarni Kina, næst á eftir
Shanghai og Liaoning i
Mansjúrlu.
Stærsti iðnaöur Tangshan var
kolavinnslan. Stærstu kolanám-
ur Kina, Kailuan, gáfu af sér ár-
lega 25 milljónir smálesta af kol-
um, eða 6% af kolaframleiöslu
Kfna.
Kfnverjar hafa veriö sparir á
upplýsingar frá jaröskjálfta-
svæðunum, en kvisast hefur
samt, að mikið jarösig hafi orðiö
á þessum slóöum. Námagöng
hafa fallið saman og lokast. Frést
hefur af þvi, aö á einum vettvangi
hafi jöröin gleypt heilt sjúkrahús
og iárnbrautarlest á ferö. Það
þarf þvi ekki auöugt imyndunar-
afl til þess aö gera sér i hugar-
lund, hvernig slikar jaröhræring-
ar hafa farið meö námuveggina.
1 opinberum fréttum getur aö
lita fjálglegar lýsingar á drýgö-
um hetjudáöum einstaklinga á
jaröskjálftasvæðinu, og má af
þeim sjá, aö mámuvinnsla mun
hafin aftur og endurreisnarstarf-
ið komið i gang. En jafnvel þótt
gert veröi ráö fyrir kraftaverk-
um, þarf ekki aö búast viö þvi, aö
námugröfturinn gefi af sér nema
brotabrot næstu mánuöina miöaö
viö það sem áöur var.
1 Tangshan voru raforkuver,
þar sem varmaorku jaröhitans
var breytt i rafmagn. Þessi orku-
ver sáu Tientsin og Peking fyrir
raforku. Mikil spjöll uröu á þess-
um orkuverum. Meöal annars
gjöreyöilagðist 750 megawatta
orkuver, sem aö hluta til var
komið I gagnið, en var enn á
byggingarstigi. Hefur frést af
skemmdum þess vegna þess, aö
viö þaö unnu japanskir tækni-
fræðingar. Auk þess aö mann-
virki hafa orðið fyrir spjöllum,
má við þvf búast, að hverirnir,
sem gáfu varmann, hafi sumir
horfið i hræringunum og borholur
eyöilagst. — Óupplýst hverfi i
höfuðborginni gefa nokkra vis-
bendingu um, hver vandræöi
munu skapast af orkuskortinum,
sem þetta leiöir af sér. Á þaö jafnt
viö orkufrekan iðnaö sem og dag-
lega neyslu ibúanna þegar vetur
sækir aö.
Gæöakolin, sem komu áöur frá
Tangshan, voru talin nægja til
þess aö framleiöa tfu milljónir
smálesta af stáli, en þaö er um
helmingur stálframleiöslu Kina.
Hinar stóru stálverksmiöjur
Peking hafa áreiöanlega sótt sin
kol I þennan brunn, en veröa nú
aö sækja annaö.
Þá var Tangshan mikilvægur
hlekkur i járnbrautarlinunni, sem
tengir Peking við hafnarborgina
Chinwangtaou og Mansjúriu i
norðri. Nú fyrst sextán dögum
eftir versta jarðskjálftann ku
vera búiö aö gera viö um 240 km
af teinum, sem jarðhræringarnar
settu úr skorðum, og hefur þó
áreiðanlega veriö vel haldiö á
spööunum.
Þaö er þvi námuvinnslan,
stáliönaöurinn, samgöngur og
dreifing, sem jarðskjálftarnir
koma illa niöur á, en einmitt
þessir þættir i atvinnulifi Kína
áttu hvaö erfiöast uppdráttar,
áöur en ósköpin dundu yfir.
Einn af flokksforkólfum Hopei-heraðsins sækir heim bændur á akrana.