Vísir - 16.09.1976, Blaðsíða 1
Siddegisblaó fyrir
fjöiskyiduna
Ma /jcggaw^^as
NATO-œfingar stððva allt
blindflug til Norðfjarðar
Áætlunarflug til Norð-
fjarðar hefur truflast
nokkuð vegna heræfinga
NATO á Norður-Atlants-
hafi. Þetta eru umfangs-
miklar æfingar, sem
bæði skip og flugvélar
taka þátt i, þar á meðal
flugvélar frá varnarlið-
inu i Keflavik.
Ernst Gislason hjá
flugumferðarstjórn
sagði Visi i morgun að
æfingasvæðið næði allt
vestur að þrettándu
gráðu. Það er alveg upp
i landi og nær yfir að-
flugsleið að Norðfirði.
Afleiðingin er sú aö
bannað er að fljúga
blindflug til Norðfjarð-
ar. Hinsvegar má fljúga
þangað sjónflug, ef veð-
ur leyfir. Bann þetta
gildir til 23. september
næstkomandi.
Þetta hefur meðal
annars komiö mður á
nemendum Flensborg-
arskóla sem fóru i hóp-
ferð austur á firði. Það
var samið við Flugfé-
lagið um að flytja liðið
og sækja til Egilsstaða.
Áætlunin breyttist og
var Flugfélagið beðið að
sækja fólkið til Norð-
fjarðar. Það var auðsótt
mál i fyrstu, en svo
komu fyrrnefndar tak-
markanir i ljós og var þá
fólkinu tilkynnt um það
og þvi bent á að best
væri að fara til Egils-
staða aftur.
Haustslikja
Göngur og réttir eru í algleymingi þessa dagana og
fjárrekstrar algeng sjón víðs vegar um landið.
Haustiðer fariðað segja til sín, gulleitri slikju slær á
svæði, sem nýlega voru fagurgræn. Þá sjón, sem hér
ber fyrir augu hef ur getið að líta á hverju hausti f rá
því að land byggðist og má því segja að þetta sé tákn-
ræn haustmynd. Það var Gunnar Hannesson, Ijós-
myndari, sem tók þessa mynd í námunda við Heklu,
en í kvöld verður einmitt opnuð sýning á Kjarvals-
stöðum á völdum myndum úr hinu geysimikla lit-
myndasafni hans.
Atvinnufyrirtæki hér á landi
verja mjög litlu fé til rann-
sóknastarfsemi miöaö viö fvrir-
tæki i nágranna löndum okkar.
Aftur á móti koma 86% af þvi
fjármagni, sem variö er til
rannsóknastarfsemi hér á landi
úr opinberum sjóöum. Þessar
upplýsingar koma fram i þætti
Keynis Hugasonar, verkfræö-
ings, framfarir og tækniþróun,
á 9. siöu Vísis í dag.
Reynir segir, að forsenda þess
aö islensk atvinnufyrirtæki geti
staöist harönandi erlenda sam-
keppni sé, aö þau geti sifellt
komiö meö nýjar og endurbætt-
ar vörur á markaðinn, sem séu
tæknilega fullKomnari og ódýr-
ari en erlendu vörurnar. Þess
vegna þurfi atvinnufyrirtækin
aö stunda verulega rannsóknar-
og þróunarstarfsemi. Niöur-
staöa hans er sú, aö tifalda þurfi
framlögin til rannsóknarstarf-
semi ef islenskur iönaöur og
mannvirkjagerö eigi. aö geta
eflst aö marki á næstu árum.
—ÓR.
„Atvinnufyrirtœki verja
of litlu fé til rannsókna"