Vísir - 16.09.1976, Blaðsíða 24
VÍSIR
Fimmtudagur 16.september 1976
Sverrís-
braut
lokuð
Vegarspotta Sverris
Runólfssonar hefur nú
verið lokað.
Að sögn Snæbjörns Jónassonar,
verkfræðings hjá Vegagerð rikis-
ins, var veginum lokaö til þess að
viðgerð á honum gæti farið fram.
Sagði hann að mikið hefði verið
kvartaö yfir ástandi vegarins og
hefðu menn talið að sumar
holurnar væru orðnar svo djúpar
að hætta væri á þvi aö þær gætu
valdið skemmdum á hjólbörðum
og jafnvel bilunum sjálfum.
Til að byrja með sagði Snæ-
björn aö ætlunin væri að fylla i
holurnar, en ekki heföi enn veriö
tekin ákvörðun um frekari við-
gerð.
-SJ
ENN EINN í
SÍÐUMÚLANN
Sjómaðurinn sem gekk ber-
serksgang á Hornafirði á
sunnudagsmorguninn og
skaut þá á allt sem fyrir hon-
um varð úr haglabyssu, var i
gærkvöldi úrskurðaöur i 30
daga gæsluvarðhald og til aö
sæta geörannsókn.
Verður hann i dag fluttur tii
Reykjavikur, þar sem klefi i
Siðumúlafangeisinu er laus
fyrir hann, a.m.k. næstu 30
daga.
— KLP.
Hjálpsamir
veg farendur
Stálu 190 þúsund
krónum af manni
sem dottið hafði í
götuna um leið og
þeir hjálpuðu honum
á fœtur
Tveir þekktir veskjaþjófar
komust i feitan bita um miðjan
dag I gær, er þeim tókst að ræna
veski af manni sem falliö haföi i
götuna niðri við Austurvöll.
Maðurinn var þar á gangi, er
honum varð fótaskortur og féll
við. Tveir menn voru þar nær-
staddir og brugðu skjótt við og
hjálpuöu honum á fætur.
Um leið og þeir gerðu það náði
annar þeirra að læða hendinni I
vasa mannsins og hirða af honum
veskið, en i þvi voru hvorki meira
né minna en 190 þúsund krónur I
peningum.
Eftir að hafa náð veskinu hurfu
þeir á brott, en skömmu siðar
komst maðurinn aö þvi að veskið
var horfið.
briðji vegfarandinn var vitni að
þessu, og gat hann gefiö lögregl-
unni lýsingu á þjófunum og
kannaöist hún strax viö þá. Náði
hún i annan þeirra siöar um dag-
inn, og haföi hann þá I fórum sin-
um 10 þúsund krónur.
Hinn var hvergi sjáanlegur á
þeim stöðum þar sem lögreglan
leitaöi, en lýsing af honum var
send öllum lögreglustöðvum i
Reykjavik og nágrenni i gær-
kvöldi.
— KLP.
Starfsmenn Sjónvarps í setuverkfalli í morgun
Getur haft
óhrif á út-
„Vertu
eklrí
nem-
endum
hlýðim
og
undir-
gefinn"
Þeir fengu aldeilis yfirhal-
ingu, busarnir i Menntaskól-
anum i Hamrahlíð í gær. Þann
dag vigöu eldri nemendur þá
formfega inn i skólann með
pompi og pragt.
Mikið var drukkið af kaffi niðri i Sjónvarpshúsi i morgun og litiö
annað aðhafst. — Visismynd LÁ
rólegheita en fram kom að
óánægja með kaup og kjör
dagskrár- og tæknimanna er
megn og mikil samstaða hefur
skapast meðal starfsmanna
Sjónvarpsins.
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarps, sagði
visismönnum að rólegheit
starfsmanna Sjónvarpsins I dag
gætu haft áhrif á útsendingar
Sjónvarpsins á morgun þvi I dag
hefði staðið til að taka upp
ýmiss konar efni til sýningar
seinna. Pétur vildi engu spá um
framhald þessara aðgerða hjá
starfsmönnum né ræða hugsan-
leg viðbrögð stjórnenda
stofnunarinnar.
Kröfur fréttamanna sjón-
varpsins eru aö kjör þeirra
verði lagfærð til samræmis við
fréttamenn dagblaðanna.
Starfsmenn sjónvarpsins
kvörtuðu undan stifni fjarmála-
ráðuneytisins og töldu að stór
þáttur i þvi hvernig málum væri
komið væri um að kenna óvirkni
ráðuneytisins á sviði kjara-
mála. JOH.
Eldri nemendur blésu í herlúðra og börðu bumbur á meöan þeir réðust
Slik busavigsla er orðinn fast-
ur liður I skólalifinu I öllum
menntaskólum landsins. Þó til-
tækin séu nokkuð misjöfn bera
athafnirnar þó nokkurn svip
hver af annarri. Allar eiga þær
það sameiginlegt að i þeim felst
undirgefni nýnema við þá eldri,
sem eldri nemendur reyna að
undirstrika með táknrænum
hætti.
Busavigslan i MH fór ekki
fram með friðsamlegum hætti
frekar en i öðrum Menntaskól-
um. Voru busar hinir böldnustu
til atlögu við nýnema.
Ljósmynd Visis Jen
og streittust á móti böðlum sin-
um.
En uppi á öskjuhlið uröu þeir
þó allir að hneigja sig I auðmýkt
og hljóta koss á kinn til staðfest-
ingar um að þeir væru komnir
inn i skólann og áminningar um
undirgefnina. —EKG.
sendingar
vinnu í dag”, sögðu
starfsmenn sjón-
varpsins þegar visis-
menn bar þar að garði i
morgun. ,,Þetta er
ekkert skipulegt en
okkur þykir trúlegt að
deilur okkar við fjár-
málaráðuneytið um
kaup og kjör hafi
dregið alla vinnu-
löngun úr fólki”.
1 morgun mættu starfs-
menn sjónvarpsins til
vinnu eins og vanalega, en engin
hafði hafið störf þar laust fyrir
hádegi. Starfsmennirnir vildu
engu spá um framhald þessara
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarps, var á
fundi með öðrum yfirmönnum
stofnunarinnar.
1000 MAL BIÐU AFGREIÐSLU
RÍKISSAKSÓKNARA í VOR
,/Nálægt 1000 mál lágu
óafgreidd hjá rikissak-
sóknara um mánaðamótin
apríl-mai i vor, þegar Al-
þingi var að ræða um
dómsmálin".
Þessar upplýsingar
komu fram hjá Ellert
Schram á Varðarfundi um
dómsmálin á þriðjudaginn,
en hann er formaður alls-
herjarnefndar Neðri deild-
ar sem fjallaði um dóms-
málin.
Þeim er þar ræddu mál-
in, bar saman um að or-
sök þessa væri fyrst og
fremst mannfæð og erfiö
aðstaða sem embætti rikis-
saksóknara á við að búa.
Ekki reyndist unnt að fá
uppgefið hjá ríkissaksókn-
ara í morgun, hve mörg
mál bíða þar afgreiðslu
núna. Er því ekki vitað
hvort þeim hefur fjölgað
eða fækkað frá því i for.
— AH