Vísir - 16.09.1976, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 16. september 1976.
11
16% sparifjár kmdsmanna í sparisjóðum
Á nýafstöðnum aðal-
fundi Sambands is-
lenskra sparisjóða kom
fram að hagur is-
lenskra sparisjóða er
yfirleitt góður og að
aukning á innstæðum i
sparisjóðum landsins
var 31,5% á siðasta ári.
Innlán i sparisjóðum
landsins nema nú um
8,1 milljarði króna eða
um 16% af heildarinn-
lánum bankakerfisins.
í landinu eru nú starf-
andi 43 sparisjóðir en
þeir eru mjög misjafn-
lega stórir. Þannig eru
þrir sparisjóðir með
nálega helming af öll-
um innlánum i spari-
sjóðum en hinir 40
skipta hinum helm-
ingnum á milli sin.
Fundarmenn voru
sammála um að spari-
sjóðirnir hefðu mikla
þýðingu fyrir mörg
byggðarlög og að þeir
ættu sama rétt á sér
um þessar mundir og
þegar fyrsti sparisjóð-
urinn var stofnaður
fyrir 108 árum.
Óánœcjia með taxta
öryggiseftirlitsins
Mikil óánægja er rikjandi
meðal aðstandenda ýmissa
smærri fyrirtækja vegna mik-
iilar hækkunar á gjaldskrá
öryggiseftirlits rikisins.
Gjaldskráin hefur verið endur-
skoðuð reglulega og hún hækkuð
til samræmis við aðrar hækkan-
ir á vöru og þjónustu, en með
nýrri gjaldskrá sem tók gildi
siðast liðið vor var bætt á nýju
gjaldi, sem kemur verst við
smærri fyrirtæki.
Tekiö var upp fast aukagjald
að upphæð krónur 8000 þúsund
sem fyrirtækjum sem flytja,
framleiöa eða geyma hættuleg
efni verða að greiða. Aöaukier
fyrirtækjum þessum gert aö
greiða tvöfalt peráónugjald sem
lagt er á fyrirtæki i samræmi
við starfsmannafjölda þeirra.
í þeim tilvikum að öryggis-
eftirlitið þurfi að heimsækja
fyrirtæki oftar en tvivegis
vegna sama atriðis er þvl gert
aö greiöa 8000 krónur fyrir
hverja heimsókn öryggiseftir-
litsins til viöbótar.
Hjá öryggiseftirliti rikisins
fékk Visir þær upplýsingar aö
starfsmenn þar heföu oröið var-
ir viö mikla óánægju vegna
gjaldsins en innheimta þess er
ekki i höndum öryggiseftirlits-
ins heldur tollstjóra. Töldu
starfsmenn eftirlitsins aö gjald-
skrárbreytingar þær sem gerð-
ar heföu veriö I vor kæmu verst
niöur á litlum fyrirtækjum.
JOH.
Fœreyskur fyrirlesari
Færeyski rithöfundurinn HEÐ-
IN BRÚ heldur fyrirlestur I Nor-
ræna húsinu I kvöld, fimmtudags-
kvöld 16. sept. kl. 20:30. Fyrirlest-
urinn nefnir hann: Det nationale
arbejde pá Færöerne.
Heöin Brú hefur undanfarið
dvalist i Reykjavik og býr hann i
ööru gestaherbergi Norræna
hússins. Hann er íslendingum aö
góöu kunnur, m.a. af skáldsögu
sinni Feögar á ferð, sem kom út
1941 i ísl. þýöingu Aöalsteins
Sigmundssonar, en auk þeirrar
skáldsöguhafa verið þýddar eftir
hann smásögur, sem birst hafa i
ýmsum blöðum og timaritum.
Heðin Brú notar i skáldskap
sinum mörg orö, sem hann hefur
tekið úr Sandeyjar-mállýsku, og
hann þykir skrifa m jög fagra fær-
eysku.
NORRÆN SUNDKEPPNI FYRIR
FATLAÐA HALDIN í HAUST
Einnig ákveðin norrœn keppni fyrir fatlaða í
göngu, skokki og hjólastólaakstri nœsta ár
Fundur samstarfsnefndar um
iþróttir fatlaðra á Norðurlönd-
um var haldinn um siðustu helgi
i Reykjavik og var i umsjá
iþróttasambands islands.
Fundinn sóttu alls 19 fulltrúar: 3
frá Danmörku, 2 frá Finnlandi ,
5 frá Noregi 4 frá Svlþjóð og 5
frá tslandi. Fundinn setti Gisli
Halldórsson forseti ÍSÍ, en
fundarstjórar voru Guðm. Löve
og Bengt Hollén frá Sviþjóð og
fundarritarar Magnús H. ólafs-
son og Arve Magnset frá Nor-
egi.
Megin viðfangsefni fundarins
var að fjalla um stofnun
iþróttasambands fatlaðra á
norðurlöndum, en það mál hefur
verið á dagskrá undanfarin 4 ár.
Á fundinum hér var formlega
gengiö frá stofnun sambandsins
lög þess samþykkt og tilnefnt i
fyrstu stjórn.
Skv. 1. gr. laga hins nýja sam-
bands er tilgangur þess að
skipuleggja og vinna að eflingu
iþrótta fyrir fatlaða á Norður-
iöndum. Aðildarsamtök eru sér-
samböndin i iþróttum fatlaðra I
hverju landi, hér á landi ÍSÍ
meðan sérsamband er ekki
stofnað.
Þaö kom i hlut Danmerkur að
tilnefna fyrstu stjórn sam-
bandsins til næstu tveggja ára.
Formaður er Bodil Eskesen,
yfirlæknir og auk hennar eru i
stjorn Steffen Andersen, ásamt
fuiltrúa fra Blindrasamtökum
Danmerkur, er tilnefndur verð-
ur innan tiöar.
Auk stofnunar hins nýja i-
þróttasambands samþykkir
fundurinn að efna til norrænnar
sundkeppni fyrir fatlaða i
nóv./des. n.k. i göngu og skokki
og hjóiastólaakstri i sept./okt.
1977.
Sýnd var kvikmynd frá Vetr-
ar-Olympiuleikum fatlaðra I
Sviþjóð s.l. vetur og rætt var
ýtarlega um nýlega afstaöna
Olympiuleika fatlaðra i Toronto
I Kanada.
Meðan fundurinn stóð yfir
nutu fulitrúar gestrisni forseta
islands, menntamálaráðherra,
Fiugleiða h/f, iþróttabandalags
Reykjavíkur, Sjálfsbjargar-
landssambands fatlaðra,
Reykjalundar og Borgaryfir-
valda
A fundinum aö Hótel Loftleið-
um var formlega gengið frá
stofnun íþróttasam bands
fatiaðra á Norðuriöndum.
FYRIRLESTUR UM
NÍNU TRYGGVADÓTTUR
í kvöld klukkan 20.30 flytur Hrafnhildur
Schram listfræðingur fyrirlestur i húsi Listasafns
íslands við Suðurgötu. Fyrirlesturinn fjallar um
Ninu Tryggvadóttur og list hennar.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur, meðan
húsrúm leyfir. _^H
Pólskur róðherra
kemur í heimsókn
Utanrikisráðherra Póllands, Stefan Olszowski
og frú, koma i opinbera heimsókn hingað til
lands mánudaginn kemur, 20. september, og
dvelja hér á landi til miðvikudags, 22. september
1976.
Með heimsókn sinni er póiski utanrikisráðherr-
ann að endurgjalda heimsókn Einars Ágústsson-
ar, utanrikisráðherra, til Póllands i mai mánuði
1973.
Guðjón Matthiasson meðnýju nótnabókina. Ljósmynd VIsis Helena.
„Fólk var að koma
og biðja um nótur"
segir Guðjón Matthíasson, sem gaf þó
bara út nótnabók
„Fólk var oft að koma til min
og biðja mig að gefa sér nótur af
lögum eftir mig. Þetta var sein-
legt þvi' ég þurfti að skrifa upp
nóturnar f hvertskipti, svo ég af-
réö bara að gefa út bók meö nót-
um af lögum eftijr mig,” sagöi
Guðjón Matthiasson harmónikku-
leikari þegar Visir ræddi viö
hann.
1 bók Guðjóns eru 25 danslög,
þar af erutextar viö 21. Mörglag-
anna hefur Guöjón samiö sjálfur.
Guðjóner löngu kunnur af tónlist-
ariðkan sinni oghefur hann leikið
bæöi i sjónvarp og útvarp. Mörg
laganna i bókinni eru þekkt úr
óskalagaþáttum útvarpsins og
' einnig hafa sum þeirra hlotið
verðlaunasæti i danslagakeppn-
um.
Guðjön sagöi að sér hafi þótt
veraskortur á góöum nótnabók-
um fyrir danslög. „Þessi bók er
fyrir fólk sem hefur áhuga á létt-
ari músik,” sagöi hann. — EKG