Vísir - 23.09.1976, Side 24
VÍSXR
Fimmtudagur 23. september 1976
j iin ii.- i ii yn i i »
Guðjón Styrkórsson:
Gefur upp
nafn í ávís-
anamálinu
— segir sig úr stjórn
Húsbyggingasjóðs
Framsóknarflokksins
,,Ég hef ekki hugleitt þaö enn,”
sagöi Guöjón Styrkársson þegar
Vísir spuröi hann i morgun hvort
hann ætiaöi aö taka siöar sæti I
stjórn Húsbyggingasjóös Fram-
sóknarflokksins.
Guöjón sendi Húsbygginga-
sjóðnum bréf siðasta miðviku-
dag, þar sem hann segir sig úr
stjórninni. Guðjón hefur til þessa
verið formaður sjóðsins. Astæö-
urnar sem Guðjón gefur upp eru
þær að hann hafi verið borinn
röngum sökum i sambandi við
ávisanakeðjumálið sem nú er I
rannsókn. Kveðst Guðjón óttast
að þessar sakargiftir i sinn garö
kunni að skaða Framsóknar-
flokkinn.
,,Ég er ekki og hef ekki verið i
neinni ávisanakeðju”, segir Guð-
jón i bréfi sinu til Húsbygginga-
sjóðsins. ,,Hins vegar hefur nafn
mitt veriö bendlað við þetta mál
sökum framsala á þremur ávis-
unum frá einum þeirra þriggja
aðila, sem talinn er vera undir
rannsókn, þ.e. Jóni Ragnarssyni,
veitingamanni i Valhölí”.
Guðjón vildi ekki tjá sig frekar
um þetta mál er Visir ræddi viö
hann i morgun, sagði að menn
yrðu að biða frekari nið-
urstaðna i rannsókn ávisana-
málsins.
—EKG
Sigurvegararnir i cocktail-
keppninni i gær, Björn Olsen og
Viðar Ottesen. I.jósmynd Loft-
ur.
Black Jack og Kína
í fyrstu sœtunum
Ilundruö reykvíkinga og ann-
arra fara trúlega á stúfana
næstu daga til aö bragöa á cock-
teilum þeim sem tólf af þekktari
barþjónum iandsins sendu fram
i cocktailkeppni Barþjóna-
klúbbs islands i gær.
Var keppni þessi háö i Att-
hagasal Hótel Sögu og stóð yfir
hátt á fjórða tima. Var þarna
um að ræða tvennskonar
keppni, þar sem bornir voru
fram þurrir og sætir cocktailar.
Sá sem hlaut fyrstu verð-
launin i keppni þeirra „sætu”,
var Viðar Ottesen á Naustinu
með cocktail sinn „Black Jack”
og i keppni þeirra þurru varð
sigurvegari cocktailinn „Kina”
sem Björn Olsen I Klúbbnum
var höfundur að.
Eftir svona keppni er mikiö
um að fólk fari á veitingastaö-
ina og fái að smakka á þeim
cocktailum, sem keppt var um.
í kvöld verður t.d. opið hús i
Óðali, þar sem ólafur Laufdal
mun verða m.a. með á boðstól-
um „Emmanuelle” sem hlaut
þriöja sætið i keppninni og
„Lonli Blú” sem varð I fjóröa
sæti. Þá mun hljómsveitin Lónli
Blú Bojs kynna þar lög á nýju
hljómplötu sinni.
Verður sjónvarpsútsending í kvöld þótt fimmtudagur sé?
Sjónvarp getur hafist á
ný ef gengið er að skil-
yrðum um nefndarskipan
SJÓNVARPSTÆKJASMYGUÐ:
„Ef gengið verður aö þeim
skilyröum sem viö settum I
sambandi viö skipun væntan-
legrar nefndar eöa starfshóps,
sé ég ekkert þvi til fyrirstööu af
starfsmannanna háifu aö sjón-
varpaö veröi strax i kvöld, þótt
fimmtudagur sé. Ilins vegar er
þaö stjórnar stofnunarinnar aö
ákveða þaö,” sagöi Eiður
Guönason formaöur samninga-
nefndar Starfsmannafélags
sjónvarpsins. i samtali viö Visi i
morgun.
t gær sátu fulltrúar starfs-
mannafélagsins þrivegis á fundi
með menntamálaráðherra. Að
loknum þeim fundi barst starfs-
mannafundi bréf frá mennta-
málaráöherra þar sem hann
áréttar eindregin tilmæli sin að
störf hef jist þegar við sjónvarp-
ið. Ségist hann siðan munu
halda áfram viðræðum við full-
trúa starfsmannanna. Jafn-
framt að hann muni beita sér
fyrir skipun nefndar eða vinnu-
hóps, er ljalli um stöðu
stofnunarinnar og starfsfólks
hennar innan rikiskerfisins.
t svarbréfi sinu taldi starfs-
fólkið að ákveðnum tilteknum
skilyrðum, sem menntamála-
ráðherra sé kunnugt um, þurfi
að vera fullnægt i sambandi viö
skipun nefndar eöa starfshóps
áður en breyting geti orðið á
núverandi ástandi.
Framhaldsviðræður i
dag
Eiður Guðnason taldi I morg-
un fremur liklegt aö áframhald
yrði á viðræðunum i dag. Ekki
Sjónvarpsmönnum hafa borist stuöningsyfirlýsingar frá félögum og samtökum bæöi innan lands og ut-
an og hafa þær veriö hengdar upp I sjónvarpshúsinu. Þar tók Jens Aiexandersson, ljósmyndari VIsis,
þessa mynd I morgun er starfsmenn voru aökynna sér efni nýjustu stuöningsyfirlýsinganna.
vildi hann tilgreina i hverju
skilyrði starfsfólksins væru
fólgin, en sagði að þau væru
þess eðlis að ákaflega auðvelt
væri fyrir rikiö að ganga að
þeim.
Meðal fjölmargra stuðnings-
yfirlýsinga sem starfsfólkið hef-
ur borist er yfirlýsing frá
starfsmannafélagi sænska út-
varpsins og sjónvarpsins.
í yfirlýsingunni lýsir félagið,
sem i eru 4.000 félagsmenn,
samstöðu með starfsliði
islenska sjónvarpsins og út-
varpsins og réttmætum kröfum
þeirra til betri launa og starfs-
kjara.
Segir þar að það hafi si og æ
komið greinilega i ljós að
sjónvarps- og útvarpsstarfs-
menn á íslandi skipi alltof lágan
sess i launastiganum saman-
borið við starfsmenn annarra
norrænna stöðva. Þá séu starfs-
kjörin einnig lakari á Islandi
samanborið við hin Noröurlönd-
in.
—SJ
Hvers vegna var ekki
skipaður umboðsdómari?
Árangurinn af mjög
svo umræddri ferð
þeirra Hauks Guð-
mundssonar, Kristjáns
Péturssonar og Sveins
Björnssonar, út á Sel-
tjarnarnes, varð meðal
annars sá að eitt lita-
sjonvarpstæki var tek-
ið i vörslu iögreglunnar
og tveir menn voru
teknir til yfirheyrslu.
Lögregiumönnunum koma
þvi nokkuð spánskt fyrir sjónir
yfirlýsingar um að gögn þeirra
hafi verið veigalftil.
„Ég heföi helst ekki viljað
ræða málið i fjölmiölum á þessu
stigi”,sagði Haukur, þegar Vis-
ir hafði samband viö hann i
morgun. „En það hafa komið
fram svo villandi upplýsingar,
að mig langar til aö leiðrétta
nokkur atriöi.
Engin húsrannsókn
„Guðmundur L. Jóhannesson,
fulltrúi bæjarfógetans i Hafnar-
firði, hefur gefið Tfmanum (22.
sept.) mjög villandi upplýsing-
ar”, sagöi Haukur. „Nokkur
atriði eru helber ósannindi. Það
er haft eftir Guðmundi aö viö
hefðum komið og óskað eftir að
fá aö halda áfram rannsókn
málsins og gera húsleitir.”
„Þetta er rangt. Við fórum
aldrei fram á húsleitarheimild
og töluöum ekki einu sinni við
fulltrúann. Við höfðum sam-
band beint við Svein Björnsson.
Það var lang-eölilegast, enda er
þannig staöiö aö, þegar farið er
inn i önnur umdæmi. Þetta var
aöeins lögreglurannsókn á
frumstigi og við höföum þvi ekki
ástæðu til að leita húsleitar- eða
annarra heimilda hjá fulltrúan-
um.”
„I frétt Timans segir að við
höfum gert húsleitir á nokkrum
stöðum á Seltjarnarnesi. Mér
vitanlega var hvergi gerð hús-
leit i umdæmi Hafnarfjarðar.
Við höfðum tal af fólki i nokkr-
um húsum, en það var engin
húsleit gerð.”
Enginn getur bannað
mér athuganir
„Timinn segir á einum staö,
að það næsta sem Guðmundur
hafi frétt af okkur Kristjáni hafi
verið að viö værum komnir út á
Seltjarnarnes, og heföi Sveinn
Björnsson, rannsóknarlögreglu-
maður, farið á eftir okkur.
Þarna er verið að gefa i skyn að
Sveinn hafi verið á einhverjum
hlaupum á eftir okkur. Þetta er
alrangt. Sannleikurinn er sá aö
við Kristján höfðum mælt okkur
mót við Svein á lögreglustöðinni
á Seltjarnarnesi, kl. 12.30 á
mánudag. Við gerðum ekkert
nema undir stjórn og I samráöi
við Svein.”
„Þá hefur Timinn eftir Þóri
Oddssyni, rannsóknardómara
Sakadóms, aö þaö sé alger ó-
hæfa ef við séum að rannsaka
mál, jafnhliða Sakadómi
Reykjavikur. Þórir getur haft
sinar skoðanir á þessu án þess
aö ég geri þaö að umfjöllunar-
efni núna. En að minu viti getur
hvorki hann né nokkur annar
bannaö mér að gera
ATHUGANIR á meintum lög-
brotum, hvar sem er á landinu,
ef ég geri það I minum fritima,
eins og i þessu tilfelli.
Sparningar til sak-
sóknara.
„Meöferö þessa máls er á
margan hátt undarleg. Það er
margt sem við vildum gjarnan
fá skýringu á, og þar á ég sér-
staklega viö þá ákvörðun sak-
sóknara að fela Sakadómi
Reykjavikur meðferö málsins
13. september siðastliðinn. I þvi
sambandi þarf að fá svör við
nokkrum spurningum:
1) Hafði saksóknari, Þóröur
Björnsson, vitneskju um að
maður nokkur hafði verið úr-
skurðaður i gæsluvarðhald i
Keflavik, og að þar lágu fyrir
gögn i málinu?”
„2) Var Þórður Björnsson
(visvitandi) leyndur þessum
staðreyndum?
3) Var saksóknara, Þórði
Björnssyni, kunnugt um það
þegar hann tók framangreinda
ákvörðun, að máliö tók til að
minnsta kosti fjögurra lögsagn-
arumdæma?
4) Hversvegna varð fyrir val-
inu Sakadómur Reykjavikur,
þar sem starfsmenn hafa sagst
vera yfirhlaðnir verkefnum.
Hversvegna voru ekki geröar
ráðstafanir til að skipa umboðs-
dómara i málinu?"
Ég fæ vonandi svör við þessu
þegar saksóknari kemur til
landsins. Ég vonast einnig til að
geta síðar gert grein fyrir þessu
máli og aðild „ýmissa em-
bættismanna” f þágu rannsókn-
ar þess.”
— ÓT
— klp —