Vísir - 28.09.1976, Page 10

Vísir - 28.09.1976, Page 10
10 Þriðjudagur 28. september 1976. VISIB VÍSIR (Jtgefandi: Iteykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Hitstjórar: Þorsteinn Fálsson, ábm. Olal'ur Hagnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson Fréttastj. crl. frétta: Guömundur Pétursson Blaðamenn: Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns- dóttir, Þrúður G. Haraldsdóttir. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. btlitsteiknun: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 8«61I Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Hitstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611.7 linur Askriftargjald 1006 kr. á mánuöi innanlands. 1 lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Upplýsingafullfrúa í kerfið Ýmis fyrirtæki og stofnanir hér á landi hafa i sinni þjónustu blaðafulltrúa# menn, sem annast fyrir- greiðslu við f jölmiðla og koma á framfæri fréttum og fróðleik um viðkomandi fyrirtæki. Slíkir tengiliðir fyrirtækjanna við f jölmiðlana og fólkið eru nauðsyn- legir ef f jölmiðlunin á að geta gengið snurðulítið fyrir sig. Opinberar stofnanir hafa yfirleitt ekki slíka starfs- menn i þjónustu sinni, en víða væri þörf á þvi. Blaða- menn gætu þá leitað upplýsinga á einum stað hjá þessum aðila og haft milligöngu um að koma þeim á framfæri. Þess eru allt of mörg dæmi að embættis- menn hins opinbera séu of önnum kafnir til þess að hafa tíma til að sinna f jölmiðlafólki og svara spurn ingum þess. Þess vegna m.a. gengur f jölmiðlunum oft illa að fá svör við þeim spurningum, sem brenna á vörum fólksins í landinu hverju sinni, en þær tengjast ekki einum málaflokki frekar en öðrum. Sú var tíðin, að ríkisstjórn Islands hafði starfandi á sinum vegum blaðafulltrúa, og þótt ekki hafi allt tekist vel hjá þeim siðasta, er þvi starf i gegndi, sýndi það sig, að þörf er fyrir slíkan aðila. Að vísu er starfandi blaðafulltrúi á vegum einnar stjórnar- deildarinnar, utanríkisráðuneytisins, en þjónusta hans snýr fyrst og fremst að erlendum frétta- mönnum, sem hingað koma. Þess er rétt að geta að nú i seinni tíð hafa ýmsir opinberir embættismenn leitast við að veita fjöl- miðlum greiðari aðgang en áður að gögnum og upp- lýsingum ýmiss konar og er það vel. En þessir skilningsríku menn, sem hafa tamið sér nútima hugsunarhátt í stað þess að vera forpokaðir og ríg- bundnir við gamlar leyndardómakreddur, eru því miður of fáir ennþá. Aftur á móti ber að þakka það, sem vel er gert og er i því sambandi skemmst að* minnast mjög lipurra samskipta fréttastofnana og dómarans í ávísanakeðjumálinu, sem markað hefur jákvæða og skipulega stefnu gagnvart fjölmiðlum. Eftir að settar verða fastar nútímalegar reglur um upplýsingaskyldu stjórnvalda væri mjög æskilegt að opinberar stofnanir kæmu á fót embætti blaða- fulltrúa, sem gæti að nokkru leyti létt af ýmsum embættismönnum stjórnsýslukerfisins þjónustunni við fjölmiðlana. Slíkir blaðafulltrúar ættu að hafa reglurnar sem bakhjarl og þeim ætti að vera treystandi til þess að út- vega tiltækar upplýsingar. Ef til vill hentaði betur að nefna þessa menn upplýsingafulltrúa og binda starfs- svið þeirra þá ekki eingöngu við miðlun til f réttastofn- ana heldur gætu þeir annast almenna upplýsinga- þjónustu ákveðinna stofnana og stjórnardeilda bæði fyrir einstaklinga, stofnanir og fjölmiðla. I ákveðnum tilvikum gætu upplýsingafulltrúarnir haft frumkvæði um birtingu upplýsinga með því að koma þeim til dæmis á framfæri við fjölmiðla, en einnig ættu þeir að útvega þær upplýsingar og þau gögn, sem beðið er um. Með þessu móti ætti upplýsingamiðlunin frá hinu opinbera kerfi að geta orðið mun fljótvirkari og auð- veldari en nú er, þegar treysta þarf í mörgum til- vikum á önnum kafna embættismenn, sem í mörg horn þurfa að líta, og erfitt er oft að ná tali af jafnvel dögum saman. EINLÆGUR UNN- ANDI LANDSINS Ljósmyndasýning Gunnars Hannessonar ó Kjarvalsstöðum (Einar Hákonarson, skrifar v — Gunnar Hannesson var gott dæmi um mann, er fékk köllun i lifinu, þaö geröist fyrir rúmlega tiu árum. Aö mála islenskt landslag var löngu þekkt fyrir- bæri frá frumherjum islenskrar myndlistar, margir hafa siöan fariö i þeirra farveg meö mis- jöfnum árangri. Gunnar haföi veriö unnandi islenskrar náttúru og feröast um landiö þvert og endilangt um árabil áö- ur en hann fékk sér fyrstu ljós- myndavélina. Þaö varö upphaf- iö aö þrotlausri myndatöku næstu tiu árin. Aö visu hlýtur Gunnar aö hafa átt viö ýmsa byrjunaröröug- leika aö striöa algjörlega ó- menntaöur I ljósmyndatækni. Fljótlega uppgötvar hann möguleika tækisins og fyrir meðfædda listgáfu og tilsögn góðra manna, fara myndir hans aö taka á sig æ sterkari svip þjálfaös atvinnumanns. Hann fer aö mála meö myndavélinni, ef svo mætti aö oröi komast, og býr yfir djúpri tilfinningu fyrir myndefnum, samfara næmi og þroska i myndbyggingu, og siöast en ekki sist sérstæðri og persónu- legri túlkun á landi okkar. Þaö færi betur ef fleiri menn bæru i brjósti slikar heitar tilfinningar til lands og þjóöar og Gunnar heitinn geröi um ævina. Hann reyndi aö lita bjartari hliöar til- verunnar og meö þvi að sáldra um sig jákvæöum viöhorfum til samferðamanna. Ég var svo heppinn aö starfa um stuttan tima meö Gunnari, viö sögu- sýninguna „ísland — Islending- ar, þjóðhátiöarárið 1974. Mér llður seint úr minni eld- legur áhugi hans, sifellt vakandi yfir nýjungum og hvernig hlutirnir mættu best fara. Og ekki tók hann nærri sér að standa I salnum og útskýra myndir sinar þrisvar I viku á annan mánuö, slikur var áhug- inn á aö opna fólki innsýn I töfraheim Islenskrar nátturu. Myndir Gunnars hafa farið viöa um heim og veriö mikiö notaöar til kynningar á okkar fallega landi, og þar kom aö honum var boðið aö sýna ljós- myndir eftir sig I sýningarsal Nikon House I New York siöast- liöinn vetur. Það er mikill heiö- ur og draumur flestra ljós- myndara. Þvi var þaö ánægju- legt aö Gunnari skyldi hlotnast þessi heiöur, áöur en hann kvaddi þetta jarölif. Hann hefur reist sér stórbrot- inn minnisvarða I formi Ijós- mynda sinna og ég vona aö hann verði varöveittur vel. Sýningin aö Kjarvalsstööum er gullfalleg og öllum til sóma, sem aö henni hafa staöiö. Heimaeyjargos Hljómskálinn i Reykjavik t * T-... Á i. _ lTi | no m i L&j Aí -i 7 * ** Sk*' S*" -"""r

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.