Vísir - 05.11.1976, Blaðsíða 1
Sjálfstætt vandaó
03 hressilegtijgt^
Uad /Jtew
Síld seld út í dreif-
ingarumbúðum fyrir
fimmtíu milljónir?
Ekki er óliklegt aö samningar
takist um sölu á sykursaltaöri
sild til Finnlands i dreifingar-
umbúöum fyrir allt aö 50 mill-
jónir íslenskra króna til af-
greiöslu á fyrrihluta næsta árs.
En samningar standa nú yfir
milli finnskra sildarinnfilytj-
enda og Sildarútvegsnefndar
um sölu á verulegu magni af
sykursaltaöri sild i tiu kilóa um-
búðum. Nú er ennfremur i
undirbúningi að senda út sfld i
dreifingarumbúðum til Banda-
rikjanna og fleiri landa.
Langmestur hluti saltsildar-
innar er seldur út sem fullunnin
neysluvara. Kryddsildin er aft-
ur á móti að mestu leyti tekin til
frekari vinnslu. I Sviþjóö er hin
venjulega saltsíld og i Finnlandi
sykursildin ýmist send i versl-
anir i sildartunnum eöa pökkuð I
mismunandi stórar dreifingar-
umbúðir i þvi ástandi sem Mun
kemur úr tunnunum.
Hugmyndin er að halda áfram
tilraunapökkun á sild i dreifing-
arumbúðir, og þá á vegum Sild-
arútvegsnefndar. Takist hún vel
er ætlunin að hún verði fram-
kvæmd á þeim sildarsöltunar-
stöövum sem hafa góða aöstöðu
til slikrar vinnslu.
—EKG
„Vœri ekki hér til
frásagnar ef ég hefði
lagt frá mér könnuna"
sagði Elín Ingvarsdóttir, sem slapp
naumlega út þegar gassprenginginn
varð í húsi SS í morgun
„Ég var aö hella upp á kaffi
fyrir okkur þegar ég sá eidinn
koma og kaliaöi þvi upp og hljóp
út meö kaffikönnuna i annarri
hendinni og ketilinn i hinni”,
sagði Elin Ingvarsdóttir, sem
var stödd þar inni sem gas-
sprengingin varö i húsi SS við
Skúlagötu I morgun.
„betta munaði svo litlu, að ef
ég hefði gefið mér tima til að
leggja frá mér könnuna og ketil-
inn væri ég ekki hér til frásagn-
ar.
Sprengingin varð um leið og
ég þaut út. Glerbrotunum rigndi
yfir mig og stór vifta sem var i
loftinu rifnaði frá og skall rétt
við hælana á mér.
begar ég kom út var ég enn
með kaffikönnuna og ketilinn i
höndunum og þá uppgötvaöi ég
að húfan sem ég var með á höfð-
inu hafði fuðrað upp við spreng-
inguna.
Við vorum fleiri þarna inni, en
sluppum öll ómeidd. bað mátti
samt ekki muna sekúndubroti
þvi að þetta geröist allt svo
skyndilega.” —klp —
GASSPRENGING HJÁ SS
Fimm menn björguðust naumlega út úr sláturfélagshúsinu
Mesta hættan í sambandi við brunann I húsi Sláturfélags Suðurlands i morgun varð er eidurinn læsti sig i þann hluta sem gaskútarnir voru geymdir. bar inni voru á milli 50
og 40 kútar. Hér má sjá einn slökkviliðsmanninn bera kútana frá húsinu en hinir dæla vatni á félaga sína sem inni eru og haniast við aö koma gaskútunum út. Ljósmynd LA
mestur. bar inni voru meðal
annars sviðin svið, kjötsöltun og
ýmislegt annað.
Sprengingin varð þegar unnið
var við að svíða kindahausana
rétt eftir klukkan átta i morgun.
Voru þrir gaskútar tengdir við
logsuðutækin og mun öryggis-
ventill á einum þeirra hafa bil-
að, og gas lekið út.
Náði eldurinn að læsa sig i
gasið og varð þá mikil spreng-
ing. Sprengingin var það kröft-
ugað fólk i nærliggjandi húsum
vaknaði, og öll álman þar sem
sprengingin varð lék á reiði-
skjálfi.
A öðrum stað i álmunni var
fjöldi fólks við vinnu og þaut það
út til aðathuga hvað um væri að
vera. Kallaöi það þegar á
slökkviliðið, en fór sjálft i að
bjarga um tuttugu tonnum af
kjöti, sem geymt var i álmunni.
begar slökkviliðið kom á
staðinn var mikill eldur og
reykur i húsinu. begar var haf-
ist handa við um að slökkva eld-
inn og bjarga út gaskútum, sem
þarna voru inni. Var talið að
þeir væru á milli 30 til 40 talsins.
Gekk það verk ótrúlega vel
miðað við hvað vont var að
komast að kútunum, og einnig
gekk vel að ráða niðurlögum
eldsins. Var búið að slökkva all-
an eld rétt fyrir klukkan niu i
morgun, en slökk viliðið var
samt enn á staðnum laust fyrir
hádegi og við öllu búið.
— klp —
„Ég þori ekki aö segja neitt
um hvaö tjóniö hefur oröið mik-
iö þvf ég hef enn ekki haft tæki-
færi til aö fara þarna inn og
skoöa verksummerkin. En þaö
skiptir örugglega milljónum”
sagöi Vigfús Tómasson sölu-
stjóri hjá Siáturfélagi Suöur-
lands er viö náöum taii af hon-
um um þaö leytisem búiö var aö
slökkva eldinn er varö eftir gas-
sprengingu i vesturálmu húss
SS viö Skúlagötu i morgun.
„Maður þakkar bara sinum
sæla fyrir að ekki skuli hafa orð-
ið stórslys á fólki, en það mun-
aði svo sannarlega ekki miklu.
bað voru i það minnsta fimm
manns þarna inni þegar spreng-
ingin varð, og sumt af þvi fólki
slapp naumlega út”, bætti Vig-
fús við.
Eldurinn kom upp i vestur-
álmu hússins Skúlagötumegin.
bar hefur að undanförnu verið
unnið að ýmsum lagfæringum
og breytingum á neðri hæðinni,
eða þar sem eldurinn var hvað