Vísir - 25.11.1976, Síða 1
Sjálfstætt vandaé
rtfci
Fimmtudagur 25. nóvember 1976 ~ 288. tbl. 66. árg.
y
Jakob Björnsson orkumólastjóri um Kröflu:
„Efnasamsetning gufunnar virðist
valda tœringu í holufóðringum"
„lsumum holunum hefur orð-
iö vart viö efni sem viröast
valda tæringu i fóörun og fóöur-
rörum. Þaö er ekki búist viö aö
þessi efni hafi nein áhrif á túr-
binurnar sjálfar, en þau geta
valdiö erfiöleikum áöur en guf-
an kemur i túrbinurnar,” sagöi
Jakob Björnsson orkumáia-
stjóri þegar Visir spuröist fyrir
um þaö hvort efnasamsetning
gufunnar á Kröflusvæöinu væri
talin óhentug fyrir vélar
stöövarinnar.
Þessarar tæringar hefur oröið
vart m.a. i holu 3, sem nú er
ve.riö aö ihuga viðgerð á. Sagði
Jakob að vonir stæðu til að sú
viðgerð tækist.
Sumar holurnar
treggæfar
Visir skýrði i gær frá þeirri
skoðun jarðfræðinga að ástæöur
fyrir tregu aðstreymi aö bor-
holunum gætu verið of mikill
þéttleiki bergsins og suða vatns-
ins i þvi.
Orkumálastjóri sagði að sum-
ar holurnar væru treggætar
miðað við það sem gerðist ann-
ars staðar. Virtist þar vera um
að ræða þétt berg, en einnig réði
það miklu um tregðuna hvers
konarblanda vatns og gufu væri
i berggöngunum að holunum.
„Við viljum fá sem mesta
gufu, en það er slæmt ef mót-
staðan gegn blöndunni er svo
mikil að gufumagn holanna
verði litið. Við erum vanir þvi
að fá nánast tómt vatn inn i
holurnar.
1 einni holunni, holu 10, grun-
ar okkur að sé eintómt vatn. Sú
hola hefur byggt upp nokkuð há-
an þrýsting. Það er eftir að setia
útblástursstút á hana og þvi hef-
ur hún ekki verið mæld, en við
höfum ekki orðið varir við svo
háan þrýsting i annarri holu.”
Að lokum sagöi orkumála-
stjóri að nú væri svolitil bið-
staða i málinu, en þegar kæmi
fram I desember færi að koma
fram heildarmynd af svæðinu
og þá færi árangurinn að koma i
ljós.”
— S.I
Fjárveitingar fást ekki til tœkni-
legrar upplýsingaþjónustu - sjá bls. 8
Félagsmiðstöðin
Bústaðir vigð í dag
t dag klukkan 15.30 veröur
vigð stórglæsileg félagsmiöstöö,
Bústaöir, i kjallara Bústaða-
kirkju. Það er Reykjavikurborg
sem tekur húsnæöiö á leigu af
safnaðarnefnd Bústaöakirkju
og kostar allar innréttingar.
t félagsmiöstöðinni er stór
samkomusalur, föndur- og
fundaherbergi og rými til leikja,
auk eldhúss. Æskulýðsráð borg-
arinnar mun reka þessa félags-
miðstöðog þarna rúmast um 200
gestir i senn. Stærð húsnæöisins
er samtals 425 fermetrar.
Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Æskulýðsráðs,
sagði i samtali við Visi I
morgun, að Bústaðir væru fyrst
og fremst ætlaðir fyrir fólk i
næsta umhverfi. Félags-
miðstöðin verður opin ákveðna
daga vikunnar og reynt veröur
að halda uppi sem fjölbreytt-
ustu starfi. Hliðstæð miðstöð er
nú rekin i Fellahelli og nýtur
mikilla vinsælda.
Karl Einarsson, bygg-
ingameistari, hefur haft yfir-
umsjón með innrétingum og
hafa framkvæmdir staðið yfir
nær allt þetta ár.
— SG
Karl Einarsson byggingameistari ásamt startsmonnum slnum aö Ijúka viö innréttingar i morgun.
(Ljósm. Loftur)
Tímasprengja á
hafsbotni - bls. 4
Allir virðast hafa fjarvistar-
sannanir vegna Kröflumálsins:
„Yerða kokkarnir
að axla niðurlagið?"
,,Nú er ekki vitað, hvernig fer
um Kröfluvirkjun, þaö er: hvort
gýs eða hvort næg gufa fyrir-
finnstþar. Gerist annaö tveggja
verða einhverjir teknir i karp-
húsiö.
Þar sem allir viröast hafa
fjarvistarsannanir frá ábyrgö-
inni á verkinu veröur helst aö
álita aö kokkarnir viö Kröflu
muni þurfa aö axla niöurlagiö.”
Þannig kemst Svarthöföi aö
oröi i pistli sinum i dag á blaö-
siðu tvö, en hann ber yfirskrift-
ina: ,,Allt til nema orkan”.
Sýning á nýju
aðalskipulagi
Sýning á aöalskipulagi
Reykjavikurborgar hcfur verið
opnuö aö Kjarvalsstööum.
Skipulagiö var staöfest áriö
1967, en siðan hafa veriö geröar
á þvi miklar breytingar svo
segja má aö búiö sé aö vinna
nýtt aðalskipulag.
Skipulagshópar og fjölmargir
sérfræðingar hafa unnið að
þessu verkefni og vafalaust eiga
borgarbúar eftir að fjölmenna á
sýninguna og kynna sér þessar
skipulagsáætlanir. Fjölmörg
greinargóó kort með skýringa-
textum sýna fyrirhugaðar
breytingar og gestum er vel-
komið að skila athugasemdum
og tillögum til breytinga, enda
er ekki búið að fjalla um málið i
borgarstjórn. Þeir sem vilja fá
ýtarlegri upplýsingar en þarna
koma fram er velkomið að
koma i Þróunarstofnun Reykja-
vfkurborgar og fá þar svör viö
spurningum sinum. Sjá bls.
10-11.
— SG