Vísir - 25.11.1976, Page 10

Vísir - 25.11.1976, Page 10
10 Fimmtudagur 25. nóvember 1976 VISIR LAfCS USsOR 60M H€Ð ER HENTUGAST FYRIR BYGGO BRTA ER N*EST A LAND.SEM ER FLATT EÐÁ HALiAR TÍL suouss fepÆGSt?* iM ER H£N| |«IR IBÚOARi NALÆGÐ VB UTW>| VISTAR3ÆÖ 5TR0ND, Á SÐA FJALL ER MIKLS METIN Skrifstofuvaldið og Bíldudalur Síðustu daga hefur mönnum oröið tíðrætt um hrun atvinnulífsins á Bíldudal. Þar hafa sannarlega gerst hrikalegir atburðir, er stefnt hafa afkomu fólksins í þorpinu í mikla tvísýnu. Ljóst er að gera þarf verulegt átak til þess að hefja þar viðreisn atvinnulífsins. En það alvarlegasta í þessu máli er þó, að svo virð- ist sem ibúar þessa þorps haf i verið leiksoppar misvit- urra valdaaðila, sem sitja á stjórnarskrifstofum í Reykjavík. Flokkspólitískt kukl í atvinnustarfseminni getur aldrei þjónað skynsamlegum hagsmunum. Það er oftast nær af hinu illa. Atvinnurekstur i sjávarþorpum stendur og fellur að öllu jöfnu með fiskvinnslunni. Fyrirtækið Boði hf. rak frystihús á Bíldudal frá 1972 og fram til ársins 1975. Þessi rekstur var undirstaða atvinnustarfseminnar i þorpinu. Fyrirtækið var rekið með nokkrum halla, sem var þó ekki meiri en svo að Byggðasjóður tapaði mun stærri upphæðum á því þriggja mánaða tímabili, sem hann hafði reksturinn með höndum. Talið er að sú sýnikennsla opinberra aðila hafi verið rekin með 10 til 14 millj. króna tapi. I framhaldi af sýnikennslu Byggðasjóðs var að undirlagi Fiskveiðisjóðs stofnað nýtt fyrirtæki um rekstur frystihússins. Upplýst hefur verið, að opin- berir aðilar hafá varið yfir 80 milljónum króna til endurreisnarstarfsins auk kaupa á báti. Þrátt fyrir þennan f járaustur hefur ekkert gerst eftir að stjórn- völd hófu bein afskipti af lífshagsmunum ibúanna á Bíldudal. Nú kemur það ekki á óvart, þó að flokkspólitískt skrifstofuvald í Reykjavík geti ekki rekið frystihús vestur á f jörðum. Þeirri spurningu er hins vegar ó- svarað, hvers vegna skrifstofu- og embættismanna- valdið í Reykjavík gekk fram i þvi af svo miklum á- huga, sem raun ber vitni um, að leysa upp rekstrar- fyrirtækið Boða hf. Þessari spurningu þurfa stjórn- völd að svara. Frystihúsbyggingin á Bíldudal hefur verið í eigu Fiskveiðisjóðs. Einn af forystumönnum í atvinnumál- um á Bíldudal, Eyjólfur Þorkelsson, hefur í grein hér í blaðinu upplýst, að Fiskveiðisjóður hafi á þeim tima, sem rekstur Boða hf. var i mestum blóma, beitt sér fyrir upplausn félagsins og stofnun nýs fyrirtækis um reksturínn. Ástæða er til að hlutaðeigandi stjórnvöld geri opin- berlega grein fyrir því, hvaða hagsmunum þau hafi veriðað þjóna með þessum aðgerðum. Það liggur ekki í augum uppi, að rekstrarleg sjónarmið hafi legið þar að baki. En hafi svo verið, þarf að gera grein fyrir þeim. Stjórnvöld þurfa einnig að svara þeirri spurningu, hvers vegna f lóðgáttir opinberra sjóða opnuðust fyrst eftir að skipt hafi verið um rekstraraðila og stjórn- endur. óhjákvæmilegt er að fullnægjandi skýringar verði gefnar á þessu atriði. Þegar á allar aðstæður er litið verður ekki annað séð en unnt hefði verið að halda uppi fullri atvinnu á Bíldudal. Þar eru dugandi athafnamenn, sem betur eru til þess fallnir að stjórna atvinnufyrirtækjunum en flokkspólitískt embættismannavald í Reykjavík. Hrunið á Bíldudal er einfalt skólabókardæmi um það, hvernig fer, þegar skrifstofuvaldið ætlar að taka fram fyrir hendurnar á athafnamönnum í héraðí Stjórnvöld eiga eftjr 2Ö SVSfS VGÍG3-;K(um sp'"n_ ingum um þetta mál og ^ r4ttu lagi ætti Alþingi að VIÐ VILJUM FA REYKVÍKINGA TIL AÐ TAKA ÞÁn f MÓTUN UMHVERFIS SINS — sagði borgarstjóri við opnun skipulags Skipulagssýning Reykjavikur var opnuö að Kjarvalsstööum i gærkvöldi. Aöalskipulag borg- arinnar var samþykkt áriö 1965 og siöan staöfest áriö 1967. Viö þetta aðalskipulag hafa sföan komiö fram fjölmargar breyt- ingartillögur sem hafa verið af- greiddar frá skipulagsnefnd, en auk þess eru margar tillögur um breytingar á deiliskipulagi i vinnsiu eöa fyrir skipulags- nefnd. Sýningin aö Kjarvalsstöðum gefur mjög gott yfirlit yfir skipulagsmál borgarinnar eins og þau eru i dag og hver þróunin á að verða i nánustu framtið. Þróunarstofnun Reykjavikur- borgar hefur unnið að skipulag- inu, en höfundar þess eru fjöl- margir. Hilmar Olafsson for- stöðumaður þróunarstofnunar- innar hefur haft yfirumsjón með uppsetningu sýningarinnar. Við opnun hennar i gær flutti Birgir Isleifur Gunnarsson borgar- stjóri ávarp og sagði meðal ann- ars: „Þróunarstofnun Reykjavik- ur hefur i mörg ár unnið að endurskoðun aðalskipulagsins frá 1965 undir yfirstjórn skipu- lagsnefndar Reykjavikur, sem hefur rætt allar tillögur og hug- myndir jafnóðum og þær hafa komið fram. Þótt talað sé um endurskoðun aðalskipulagsins, er réttara að segja, að hér sé nýtt aðalskipulag á ferðinni. Svo gagnger hefur endurskoðunin ■verið, auk þess sem nú eru kynntar hugmyndir að aðal- skipulagi alls þess lands, sem i dag er talið byggilegt innan marka borgarlandsins og fylgdi Hilmar ólafsson forstöðumaöur Þróunarstofnunar aö leggja loka- hönd á undirbúning. (Ljósm. Loftur) ekki með i skipulaginu frá 1965. Skipulagsnefnd borgarinnar hefur afgreitt hiö nýja aöai- skipulag að sinu leyti og nú er það borgarráðs og borgar- stjórnar að samþykkja það endanlega. Aður en það verður gert vilja borgaryfirvöld kynna borgarbúum þessar tillögur og hugmyndir, þannig að reykvik- ingar geti komið fram með sin- ar ábendingar og athugasemd- ir, áður en aðalskipulagiö verð- ur samþykkt. Þess vegna er þessi sýning haldin hér að Kjar- valsstöðum. Fátt mótar umhverfi borgar- búa meira en skipulagsákvarð- anir. Þvi er nauðsynlegt, að borgarbúar geti kynnt sér skipulagshugmyndirnar, áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Við viljum þvi hvetja reykvikinga til að koma að Kjarvalsstöðum þessar vikur, sem sýningin stendur yfir, kynna sé rækilega hin fram- lögðu gögn og hlýða á útskýr- ingar sérfræðinga, en þeir munu skýra einstaka þætti skipulags- ins á fyrirfram auglýstum tim- um. Umfram allt viljum við fá athugasemdir og ábendingar frá sýningargestum, sem gætu orðið borgarráði og borgar- stjórn til leiðbeiningar við endanlega afgreiðslu málsins. A þennan hátt viljum við fá reyk- vikinga til að taka þátt 1 mótun umhverfis sins I þeirri trú, að það leiði til aukinnar farsældar fyrir borgina”. Megin þættirnir Aðalskipulagið greinist i sjö megin þætti: 1. Tilhögun framtiðarbyggð- ar. 2. Endurnýjun eldri hverfa. 3. Miðbæjarsvæði. 4. Hafnarsvæði, iðnaðarsvæði og vörugeymslusvæði. 5. íbúðasvæði. 6. Opinberar stofnanir og úti- vistarsvæði. 7. Gatnakerfi aðalskipulags- ins. Eins og eðlilegt er hafa þessi i atriði fléttast mjög saman og I við vinnu við endurskoðunina hefur verið fjallað um þau þannig en ekki alltaf út af fyrir sig. Framtíðarbyggð við Ulfarsfell í núgildandi aðalskipulagi var gert ráð fyrir að framtiðar- byggö myndi þróast I suður á öllu höfuðborgarsvæðinu og Reykjavik, Kópavogur, Garða- hær oe ~ , _____i—..onjoröur myndu meira og minna byggjast sam- an i framtiðinni. Þessar hug- myndir hafa nú breyst og nú stefnir Reykjavik til austurs, að Mosfellssveit. Þróunarstofnunin hefur gert athugun á landi borgarinnar austan Grafarvogar allt að lög- sagnarmörkum Mosfellssveitar og þar hefur nú verið gerö til- VÍSIR (Jtgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: DavfOGuðmi ndsson. Kitstjórar: Þorsteinn Paisson, ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi:Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guftmundur Pétursson. Um- sjón meft helgarblafti: Arni Þórarinsson. Blaftamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guftfinnsson, Guftjón Arngrimsson, Kjartan L. Púlsson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur- eyrarritstjórn: Anders Hansen. tþróttir: Bjöm Blöndal, Gylfi Kristjánsson. (Jtlitsteiknun: Jón ósk- ar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteina Fr. Sigurftsson. Dreifingarstjóri: Sigurftur R. Pétursson. Auglýsingar: Hverfisgata 44.Sfmar 11660, 86611 Afgreiftsla: Hverfisgata 44. Sfmi 86611 Ritstjórn: Sfðumúla 14. Slmi 86611, 7 lfnur Akureyri.SImi 96-19806 Askriftargjald kr. 1100 á mánufti innanlands. Verð I lausasölu kr. 60 eintakið. Prentun: Blaðaprent hf. : kjósa rannsókn^;nefnt| tj| ag |<anna málavexti alla.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.