Vísir - 25.11.1976, Síða 10
10
Fimmtudagur 25. nóvember 1976 VISIR
LAfCS USsOR 60M H€Ð
ER HENTUGAST
FYRIR BYGGO
BRTA ER N*EST A
LAND.SEM ER FLATT
EÐÁ HALiAR TÍL
suouss
fepÆGSt?*
iM ER H£N|
|«IR IBÚOARi
NALÆGÐ VB UTW>|
VISTAR3ÆÖ 5TR0ND,
Á SÐA FJALL ER
MIKLS METIN
Skrifstofuvaldið og
Bíldudalur
Síðustu daga hefur mönnum oröið tíðrætt um hrun
atvinnulífsins á Bíldudal. Þar hafa sannarlega gerst
hrikalegir atburðir, er stefnt hafa afkomu fólksins í
þorpinu í mikla tvísýnu. Ljóst er að gera þarf verulegt
átak til þess að hefja þar viðreisn atvinnulífsins.
En það alvarlegasta í þessu máli er þó, að svo virð-
ist sem ibúar þessa þorps haf i verið leiksoppar misvit-
urra valdaaðila, sem sitja á stjórnarskrifstofum í
Reykjavík. Flokkspólitískt kukl í atvinnustarfseminni
getur aldrei þjónað skynsamlegum hagsmunum. Það
er oftast nær af hinu illa.
Atvinnurekstur i sjávarþorpum stendur og fellur að
öllu jöfnu með fiskvinnslunni. Fyrirtækið Boði hf. rak
frystihús á Bíldudal frá 1972 og fram til ársins 1975.
Þessi rekstur var undirstaða atvinnustarfseminnar i
þorpinu.
Fyrirtækið var rekið með nokkrum halla, sem var
þó ekki meiri en svo að Byggðasjóður tapaði mun
stærri upphæðum á því þriggja mánaða tímabili, sem
hann hafði reksturinn með höndum. Talið er að sú
sýnikennsla opinberra aðila hafi verið rekin með 10 til
14 millj. króna tapi.
I framhaldi af sýnikennslu Byggðasjóðs var að
undirlagi Fiskveiðisjóðs stofnað nýtt fyrirtæki um
rekstur frystihússins. Upplýst hefur verið, að opin-
berir aðilar hafá varið yfir 80 milljónum króna til
endurreisnarstarfsins auk kaupa á báti. Þrátt fyrir
þennan f járaustur hefur ekkert gerst eftir að stjórn-
völd hófu bein afskipti af lífshagsmunum ibúanna á
Bíldudal.
Nú kemur það ekki á óvart, þó að flokkspólitískt
skrifstofuvald í Reykjavík geti ekki rekið frystihús
vestur á f jörðum. Þeirri spurningu er hins vegar ó-
svarað, hvers vegna skrifstofu- og embættismanna-
valdið í Reykjavík gekk fram i þvi af svo miklum á-
huga, sem raun ber vitni um, að leysa upp rekstrar-
fyrirtækið Boða hf. Þessari spurningu þurfa stjórn-
völd að svara.
Frystihúsbyggingin á Bíldudal hefur verið í eigu
Fiskveiðisjóðs. Einn af forystumönnum í atvinnumál-
um á Bíldudal, Eyjólfur Þorkelsson, hefur í grein hér í
blaðinu upplýst, að Fiskveiðisjóður hafi á þeim tima,
sem rekstur Boða hf. var i mestum blóma, beitt sér
fyrir upplausn félagsins og stofnun nýs fyrirtækis um
reksturínn.
Ástæða er til að hlutaðeigandi stjórnvöld geri opin-
berlega grein fyrir því, hvaða hagsmunum þau hafi
veriðað þjóna með þessum aðgerðum. Það liggur ekki
í augum uppi, að rekstrarleg sjónarmið hafi legið þar
að baki. En hafi svo verið, þarf að gera grein fyrir
þeim.
Stjórnvöld þurfa einnig að svara þeirri spurningu,
hvers vegna f lóðgáttir opinberra sjóða opnuðust fyrst
eftir að skipt hafi verið um rekstraraðila og stjórn-
endur. óhjákvæmilegt er að fullnægjandi skýringar
verði gefnar á þessu atriði.
Þegar á allar aðstæður er litið verður ekki annað séð
en unnt hefði verið að halda uppi fullri atvinnu á
Bíldudal. Þar eru dugandi athafnamenn, sem betur
eru til þess fallnir að stjórna atvinnufyrirtækjunum
en flokkspólitískt embættismannavald í Reykjavík.
Hrunið á Bíldudal er einfalt skólabókardæmi um það,
hvernig fer, þegar skrifstofuvaldið ætlar að taka
fram fyrir hendurnar á athafnamönnum í héraðí
Stjórnvöld eiga eftjr 2Ö SVSfS VGÍG3-;K(um sp'"n_
ingum um þetta mál og ^ r4ttu lagi ætti Alþingi að
VIÐ VILJUM FA
REYKVÍKINGA
TIL AÐ TAKA
ÞÁn f MÓTUN
UMHVERFIS SINS
— sagði borgarstjóri við opnun skipulags
Skipulagssýning Reykjavikur
var opnuö að Kjarvalsstööum i
gærkvöldi. Aöalskipulag borg-
arinnar var samþykkt áriö 1965
og siöan staöfest áriö 1967. Viö
þetta aðalskipulag hafa sföan
komiö fram fjölmargar breyt-
ingartillögur sem hafa verið af-
greiddar frá skipulagsnefnd, en
auk þess eru margar tillögur
um breytingar á deiliskipulagi i
vinnsiu eöa fyrir skipulags-
nefnd.
Sýningin aö Kjarvalsstöðum
gefur mjög gott yfirlit yfir
skipulagsmál borgarinnar eins
og þau eru i dag og hver þróunin
á að verða i nánustu framtið.
Þróunarstofnun Reykjavikur-
borgar hefur unnið að skipulag-
inu, en höfundar þess eru fjöl-
margir. Hilmar Olafsson for-
stöðumaður þróunarstofnunar-
innar hefur haft yfirumsjón með
uppsetningu sýningarinnar. Við
opnun hennar i gær flutti Birgir
Isleifur Gunnarsson borgar-
stjóri ávarp og sagði meðal ann-
ars:
„Þróunarstofnun Reykjavik-
ur hefur i mörg ár unnið að
endurskoðun aðalskipulagsins
frá 1965 undir yfirstjórn skipu-
lagsnefndar Reykjavikur, sem
hefur rætt allar tillögur og hug-
myndir jafnóðum og þær hafa
komið fram. Þótt talað sé um
endurskoðun aðalskipulagsins,
er réttara að segja, að hér sé
nýtt aðalskipulag á ferðinni. Svo
gagnger hefur endurskoðunin
■verið, auk þess sem nú eru
kynntar hugmyndir að aðal-
skipulagi alls þess lands, sem i
dag er talið byggilegt innan
marka borgarlandsins og fylgdi
Hilmar ólafsson forstöðumaöur Þróunarstofnunar aö leggja loka-
hönd á undirbúning. (Ljósm. Loftur)
ekki með i skipulaginu frá 1965.
Skipulagsnefnd borgarinnar
hefur afgreitt hiö nýja aöai-
skipulag að sinu leyti og nú er
það borgarráðs og borgar-
stjórnar að samþykkja það
endanlega. Aður en það verður
gert vilja borgaryfirvöld kynna
borgarbúum þessar tillögur og
hugmyndir, þannig að reykvik-
ingar geti komið fram með sin-
ar ábendingar og athugasemd-
ir, áður en aðalskipulagiö verð-
ur samþykkt. Þess vegna er
þessi sýning haldin hér að Kjar-
valsstöðum.
Fátt mótar umhverfi borgar-
búa meira en skipulagsákvarð-
anir. Þvi er nauðsynlegt, að
borgarbúar geti kynnt sér
skipulagshugmyndirnar, áður
en endanlegar ákvarðanir eru
teknar. Við viljum þvi hvetja
reykvikinga til að koma að
Kjarvalsstöðum þessar vikur,
sem sýningin stendur yfir,
kynna sé rækilega hin fram-
lögðu gögn og hlýða á útskýr-
ingar sérfræðinga, en þeir munu
skýra einstaka þætti skipulags-
ins á fyrirfram auglýstum tim-
um. Umfram allt viljum við fá
athugasemdir og ábendingar
frá sýningargestum, sem gætu
orðið borgarráði og borgar-
stjórn til leiðbeiningar við
endanlega afgreiðslu málsins. A
þennan hátt viljum við fá reyk-
vikinga til að taka þátt 1 mótun
umhverfis sins I þeirri trú, að
það leiði til aukinnar farsældar
fyrir borgina”.
Megin þættirnir
Aðalskipulagið greinist i sjö
megin þætti:
1. Tilhögun framtiðarbyggð-
ar.
2. Endurnýjun eldri hverfa.
3. Miðbæjarsvæði.
4. Hafnarsvæði, iðnaðarsvæði
og vörugeymslusvæði.
5. íbúðasvæði.
6. Opinberar stofnanir og úti-
vistarsvæði.
7. Gatnakerfi aðalskipulags-
ins.
Eins og eðlilegt er hafa þessi
i atriði fléttast mjög saman og
I við vinnu við endurskoðunina
hefur verið fjallað um þau
þannig en ekki alltaf út af fyrir
sig.
Framtíðarbyggð við
Ulfarsfell
í núgildandi aðalskipulagi var
gert ráð fyrir að framtiðar-
byggö myndi þróast I suður á
öllu höfuðborgarsvæðinu og
Reykjavik, Kópavogur, Garða-
hær oe ~ ,
_____i—..onjoröur myndu
meira og minna byggjast sam-
an i framtiðinni. Þessar hug-
myndir hafa nú breyst og nú
stefnir Reykjavik til austurs, að
Mosfellssveit.
Þróunarstofnunin hefur gert
athugun á landi borgarinnar
austan Grafarvogar allt að lög-
sagnarmörkum Mosfellssveitar
og þar hefur nú verið gerö til-
VÍSIR
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: DavfOGuðmi ndsson.
Kitstjórar: Þorsteinn Paisson, ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi:Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guftmundur Pétursson. Um-
sjón meft helgarblafti: Arni Þórarinsson. Blaftamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guftfinnsson,
Guftjón Arngrimsson, Kjartan L. Púlsson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. tþróttir: Bjöm Blöndal, Gylfi Kristjánsson. (Jtlitsteiknun: Jón ósk-
ar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteina Fr. Sigurftsson. Dreifingarstjóri: Sigurftur R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgata 44.Sfmar 11660, 86611
Afgreiftsla: Hverfisgata 44. Sfmi 86611
Ritstjórn: Sfðumúla 14. Slmi 86611, 7 lfnur
Akureyri.SImi 96-19806
Askriftargjald kr. 1100 á mánufti innanlands.
Verð I lausasölu kr. 60 eintakið.
Prentun: Blaðaprent hf. :
kjósa rannsókn^;nefnt| tj| ag |<anna málavexti alla.