Vísir - 20.12.1976, Blaðsíða 18
22
Mánudagur 20. desember 1976
visœ
##
KREBS
##
Málningarsprautur eru jáfn handhægar og
máhingarpenslar/ en margfalt hraövirkari og
gefa slétta áferð og möguleika að þekja fléti
sem ekki er hægt að snerta á annan hátt.
Fljótlegt að skipta um liti.
40 votta 4 mm. stimpill, ofköst 9 Itr. klst.
60 votto 5 mm. stimpill, ofköst 12 Itr. kls.
80 vatta 5 mm. stimpill, afköst 18 Itr. kls.
Þrýstingur við spiss 70 kg. sm
Sveinn Egilsson h/f#
Skeifan 17, Iðngörðum
Jólamarkaður
Ingólfsstrœti 6
Mikið úrval af leikföngum og
gjafavörum ó mjög góðu verði
Leikföng
daglega eitthvað nýtt
Alls konar spil
frá kr. 535.-
Púsluspil frá kr. 320.-
Stórar dúkkur frá kr. 1.945.-
Stórir járnbilar frá kr. 1.265.-
Föndursett alls konar frá kr. 1.820.
Mikið úrval af modelum frá
Matchbox og Airfix frá kr. 200.-
og margt fleira.
Oc^arm
Gjafavörur
sem fóst ekki annars staðar
Kerti, keramik
postulinsstyttur, jóladúkar,
jólakort, jólapappir og margt
fleira.
S. Sigmannsson og Co
Jólamarkaður, Ingólfsstrœti 6
Ragnar Júliusson form. útgerðarróðs BÚR
Ósennilegt að Spánar-
togurunum verði breytt
fyrir svartolíu
„Eftir þær umræöur sem urðu
iborgarstjórn um þetta mál.tel
ég ósennilegt aö ákveöiö veröi
aö breyta Spánartogurum Bæj-
arútgeröarinnar fyrir svartoliu
á þessu stigi”, sagöi Ragnar
Júliusson. formaöur útgerðar-
ráðs Bæjarútgerðar Reykjavik-
ur. í samtali við Visi.
Breytingar þessar hafa veriö
til umræðu i útgerðarráði frá
þvi snemma i vor. Samkvæmt
skýrslu svartoliunefndár var
kostnaður við breytingar eins
togara áætlaður 3,5 milljónir
króna. Jón B. Hafsteinsson
skipaverkfræðingar var einnig
beðinn um að skila álitsgerð og
kom fram i henni að kostnaður-
inn yrði milli 15 og 20 milljónir
króna.
Jafnframt kom þar fram að
þegar dæmið væri gert endan-
lega upp væri svartolian ekki
hagkvæmari en gasolia þótt dýr
sé.
Sigurjón Pétursson bar upp
þá tillögu á fundi útgerðarráðs i
byrjun desember að breytingar
yrðu gerðar, en hún far felld meö
5 atkvæðum gegn tveim.
A fundi borgarstjórnar i sið-
ustu viku urðu nokkrar umræð-
ur um málið en siðan samþykkt
að vfsa þvi til borgarráðs og
annarrar umræðu I borgar-
stjórn. Má búastvið að málið fái
endanlega afgreiðsla i janúar
n.k.
Ragnar sagði að þó borgar-
stjórn ákvæði að fara ekki út i
þessararbreytingar nú muni út-
gerðarráð taka þetta aftur til
athugunar þegar meiri reynsla
væri komin á brennslu svartoliu
i skipum og betri tæki væru
komin á markaðinn. Sagði hann
að þvi miður væri ekki unnt að
nota þriðju oliutegundina, mar-
indieseloliu, þar sem hún er
ekki fáanleg frá Rússlandi.
Þessa oliu gætu skipin þó tekið i
erlendum höfnum, þar sem
sömu velarnar gætu brennt
henni. Marindieselolia er minna
hreinsuð en gasolia og þvi ódýr-
ari. —SJ
Fjöldi aukaferða flug-
félaganna innanlands
og milli landa
Hér á eftir fara upplýsingar
um flugferöir innanlands og ut-
an fram aö jólum og um hátfö-
arnar.
Mánudaginn 20. desember eru
áætlaðar 17 ferðir frá Reykja-
vik, þ.e. venjuleg áætlun ásamt
aukaferðum til Isafjarðar, Eg-
ilsstaða, Vestmannaeyja. Sauð-
árkróks og Akureyrar. Þriðju-
daginn 21. desember veröa
aukaferðir til ísafjaröar, Vest-
mannaeyja, Egilsstaða, Húsa-
vikur og Akureyrar. Miðviku-
dag 22. desember verða auka-
feröir til Akureyrar, Sauðár-
króks, Egilsstaöa og Isafjarðar.
Ef að vanda lætur verður Þor-
láksmessa einn annasamasti
dagurinn i innanlandsfluginu
fyrir jól. Þann dag veröa 18
ferðir frá Reykjavik, sam-
kvæmt áætlun og aukaferðir til
Patreksfjaröar, Isafjarðar,
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Föstudag 24. desember að-
fangadag, verður flogiö sam-
kvæmt áætlun en flugi flýtt til
nokkurra staða þ.e. til Sauöár-
króks,Húsavikur, Þingeyrar,
Egilsstaða og til Hornafjarðar.
Aðrir staöir sem flogið verður
til á aðfangadag jóla veröa
Vestmannaeyjar, Isafjörður og
Patreksfjöröur. Ráðgert er að
flugi veröi lokiö um kl. 16.20. A
jóladag verður ekkert flogið
innanlands. Milli jóla og nýárs
verður flogið samkvæmt áætl-
un. Föstudag 31. desember,
gamlársdag, verður flugáætlun
hagað með sama hætti og á að-
fangadag. A nýársdag verður að
vanda ekki flogiö innanlands, en
2. janúar hefst áætlunarflug aö
nýju.
1 sambandi við pakkasending-
ar innanlands er æskilegt að
fólk hafi fyrra falliö á, þvi
venjulega hleðst allmikið upp
slðustu daga fyrir jól.
Vegna mikils álags siðustu
daga fyrir jól, er ekki hægt að
tryggja að vörur sem berast eft-
ir 19. desember komist leiöar
sinnar fyrir hátiðar.
Slðustu ferðir til íslands fyrir
jól frá viðkomustööum islensku
flugfélaganna erlendis eru sem
hér segir: Frá London 21.
desember, frá Glasgow 22.
desember, frá Kaupmannahöfn,
Osló og Luxemborg 23. desem-
ber og frá New York og Chicago
að morgni 24. desember. A jóla-
dag verður ekkert millilanda-
flug.
Annan jóladag, 26 desember,
kemur Loftleiðaþota frá Lux-
emborg og heldur áfram vestur
um haf.
Fyrsta þota frá New York eft-
ir jól kemur til Keflavlkurflug-
vallar að morgni 27. desember
og heldur áfram til Luxemborg-
ar og sama morgun fer þota
Flugfélags Islands til Glasgow
og Kaupmannahafnar fram og
aftur.
Milli Nassau og Luxemborgar
eru samkvæmt vetraráætlun
International Air Bahama þrjár
feröir I viku,en frá 16. desember
verða daglegar ferðir á þessari
flugleið.
Milli jóla og nýárs verður
flogið samkvæmt áætlun. A
gamlársdag kom tvær Loft-
leiðaþotur vestan um haf til
Keflavlkur og halda áfram til
Luxemborgar. Þær koma aftur
til Keflavlkur siödegis á nýárs-
dag og fljúga þaðan til New
York. A gamlársdag og nýárs-
dag verður hinsvegar ekkert
flogið til Bretlands og Norður-
landa,en flug þangað hefst sam-
kvæmt áætlun 2. janúar.
Jungs
Óáfengt vín
Rauðvín Hvítvín
Kampavín
veitir
Gleðilega Hátíð
án eftirkasta
Fæst í næstu matvörubúð