Vísir - 20.12.1976, Page 19
vism Mánudagur 20. desember 1976
23
,iSamvískufangar eni
ekkí fœni en ein mifljón
segir Seán Mac Bride friðarverðlaunahafi
,,Ég vona að Amnesty Inter-
national á islandi verði okkur
eins konar vitaminsprauta. Þið
hafið engan her og enga póli-
tiska fanga og þvi ætti islands-
deildin aö geta gengið fram
fyrir skjöldu i málum sem
snerta ofbeldi,” sagði Seán Mac
Bride, friðarverðlaunahafi og
aðstoðaraðalritari Sameinuðu
þjóðanna á blaðamannafundi
sem hann hélt á fimmtudag.
Sagðist Mac Bride meta
mikils öll þau ráð, frumkvæði og
álit sem héðan kæmu.
Meginverkefni samtakanna
sagði hann að væru að reyna að
vernda þá sem yrðu fyrir
slæmri meðferð og að hafa áhrif
á almenningsálitið, þar sem það
væri sérlega áhrifarikt i öllum
tilraunum til að bæta vinnu-
aðferðir rikisstjórna hvar sem
væri i heiminum.
„Amnesty International
einbeitir sér að þvi að fá lausa
samviskufanga, þá sem sviptir
hafa verið frelsi sínu vegna
skoðana sinna, trúarlegra eða
pólitiskra, án þess að hafa beitt
ofbeldi,” sagði hann.
„Þessir fangar eru ekki færri
en ein milljón i heiminum i dag
og ef allir pólitiskir fangar eru
meðtaldir eru þeir mun fleiri.
Auk þess að reyna að fá þá
lausa, reynum við að sjá til þess
að þeir fái bærilega og réttláta
meðhöndlun. Dauðarefsingum
erum við algerlega á móti.
Hlutleysi.
Samtökin eru hlutlaus gagn-
vart öllum stjórhmála-
skoðunum og vinna gegn mis-
réttinu, hvort sem um hægri eða
vinstri stjórn er að ræða.
„Rikisstjórnir ásaka okkur
oft um að við skiptum okkur af
innanrikismálum þeirra. Og
vissulega gerum við það. En
aðeins i þeim tilgangi að hamla
gegn óréttlátri meðferð fanga.”
Umtalsverður árangur
Mac Bride sagði aö samtökin
hefðu náð miklum árangri i
baráttu sinni. Til dæmis hefðu
þau fengið lausa hundruð
þúsunda fanga i kommúnista-
löndunum, sem verið hefðu i
haldi frá Stalinstimanum.
„Við beinum athygli heimsins
að þessum föngum. Við gerum
okkur engar gyllivonir um að
geta alveg komið i veg fyrir
pyndingar, en við getum dregið
úr þeim.”
Ástandið verst í Indónesíu.
Af þeim rikjum sem hefðu
samviskufanga i haldi sagði
Mac Bride að Indónesia væri
verst. Þar hefðu 70 til 80 þúsund
fangar verið i haldi án réttar-
halda i 12 ár og hefðu þúsundir
þeirra dáið af völdum pyndinga.
Einnig væri ástandið mjög
slæmtiBrasiliu og Chile, Grikk-
landi, Portúgal og til skamms
tima á Spáni, en þar hefðu
þessir hlutir breyst mjög til
batnaðar að undanförnu.
I Suður-Afriku heföu pynd-
ingar aukist mikið eftir óeirð-
irnar sem þar hafa orðið á þessu
ári og væru þær sérlega
miskunnarlausar. í siðustu viku
hefði 16. fanginn verið sagður
hafa framið sjálfsmorð, en auk
þess hefðu 17 fallið út um glugga
á 5. hæð.
Að lokum sagði Seán Mac
Bride að flest væru brotin i
einræðisrikjum-og lýðræðis-
rikjum færi þvi miður fækkandi.
Þvi ætti almenningsálitiö aö
geta unnið gegn.
—SJ.
Seán Mac Bride: „islandsdeildin ætti að geta gengið fram
fyrir skjöldu i baráttunni.” Ljósm. LA.
BÆKURNAR ÚR LJÓÐHÚSUM
Ölíkar persónur
eftir Þórberg Þórðarson
Verð: kr. 3000 + sölusk.
Sigur í Víetnam
eftir Richard West
Verð: kr. 1600 + sölusk.
LJÓÐHÚS
Laufásvegi 22
Reykjavik
Pósthólf 629
Sími 17095, 35724.
emmuelle LAUGAVEG 26 SÍMI 11506 .