Vísir - 20.12.1976, Side 31
35
vism Mánudagur 20. desember 1976
(
Vffl fá
atyinnu
á íslandi
Joe Valentine Fernando frá
Sri Lanka skrifar:
Þetta bréf sendi ég ykkur i
þeirri von aö ég geti einhvers
staöar fengiö vinnu á íslandi.
Þar sem slæmt ástand rikir
hér varöandi atvinnu, þá horfi
ég ekki fram á mjög bjarta
framtiö. Satt aö segja viröist
framtiö min heldur vonlaus á
minum heimaslóöum. Þess
vegna yröi ég mjög þakklátur
ef mér tækist að fá atvinnu á
Islandi.
Ég hef meðal annars próf i
reikningi, bókhaldi og ensku.
Ég gef sjálfum mér bestu
meðmæli hvaö viðkemur
hegðun og skaplyndi. Ég hef
meira en þriggja ára reynslu i
akstri og er tilbúinn i hvers
kyns vinnu, svo sem versl-
unarvinnu, akstur og fleira.
Ég er fæddur 13. janúar 1952
og heimilisfang mitt er: 109,
St. Benedict á Street —
Colombo 13, — Sri Lanka.
Ég væri þeim mjög þakklát-
ur sem teldi sig hafa þörf fyrir
starfskraft minn.
Mó ekki segja
meira frá yngrí
flokkunum?
Ein ung skrifar:
íþróttafréttaritarar! Ég
skrifaði ykkur um daginn og
fékk þá svar. En það svar
fannst mér ekki nógu gott, svo
ég skrifa bara aftur.
Þaö var þetta meö yngri
flokkana í handboltanum. Mér
finnst það mætti skrifa meira
um þá. Ég fékk þaö svar aö þiö
heföuð ekki nóg starfsfólk tii
aö fylgjast meö leikjunum hjá
þeim yngri. En er ekki hægt aö
biðja þá sem eru viö klukkurn-
ar á meðan á leikjunum stend-
ur aðhafasambandviöblööin
aö loknum leikjum?
tþróttafréttaritarar svara
þessu: Þvi miður hefur okkur
gengið afar illa aö fá upplýs-
ingar um „meiriháttar” leiki i
flestum fþróttahúsunum —
hvað þá þegar yngri flokkarn-
ir eru annarsvegar.
Leikskýrslur úr leikjum
berast svo oftast seint og siöar
meir til HSI og þvi er ekki á
eina bókina lært að afla sér
upplýsinga um allan þann
fjölda leikja sem fram fara I
hinum ýmsu flokkum. Við er-
um sammála bréfritara um aö
meira mætti segja frá leikjum
yngri flokkanna, en þaö er
ekki hægt á meðan þetta fyrir-
komulag ríkir.
Velkomin í holurnar!
Ásta Dóra Egilsdóttir, Selja-
landsvegi 40, Isafiröi;
Mig langar til aö segja ykkur
svolitiö frá Seljalandsvegsófær-
unni. Hér áöur fyrr var mikiö
ritað um Þorlákshafnarveginn.
en þessi vegur okkar slær þó öll
met.
í sumar sem leið var byrjaö
aö grafa og ýta, vegurinn skyldi
lækka og þaö geröi hann lika svo
sannarlega. En þeir góöu menn
hugsuðu bara ekki um hvernig
vesalings ibúar húsanna ættu að
komast út.
Meiripartinn af sumrinu höf-
um viö mátt hoppa og stökkva
og klifra yfir girðingar til þess
að komast út úr húsunum. Verst
af öllu var þegar klóakiö úr hús-
unum rann stöðugt út á götu i
heilan mánuö og börnin voru að
leika sér i sóðaskapnum.
Jæja, nú lagaöist þaö, en þá
tók ekki betra viö. Þaö var boriö
ofan i veginn og ofaníburöurinn
var sá yndislegasti. Rykiö var
svo djöfullegt aö bilar þurftu að
aka meö ljósum. Þaö var ekki
hægt aö opna glugga þvi
mökkurinn var svo gifurlegur.
Svo fer að rigna. Þá veröur nú
heldur en ekki nammi namm.
Þá breyttist þessi dýrlegi
ofaniburður i hræöilegt drullu.-.
svað. Drullan var bvo mikil að
ég varð að fara i stigvél til þess
að komast yfir i næsta hús, og
hafa mig alla viö aö festast
hreinlega ekki i svaðinu.'
Nú, siðan kemur frost i allt
saman. Og þá kemur þaö al-
versta. Holurnar verða svo
skuggalegar að ófriskum kon-
um er alls ekki óhætt að aka i
bil, án þess aö eiga á hættu aö
missa fóstur, alveg eins og tekiö
var til orða meö Þorlákshafnar-
veginn.
Þaö kveöur svo rammt aö
þessu með holurnar að bilar, já
meira að segja vörubilar festa
sig I þeim, svo eru þær hrika-
legar.
Svo kemur rúsinan I pylsu-
endanum. Auðvitað voru ljósa-
staurarnir fjarlægðir þegar
framkvæmdir hófust. En sá var
bara galli á gjöf Njarðar aö þeir
eru ókomnir aftur. Að visu
komu þeir. Einn góðan veður-
dag koma menn með stóra. Við
fórum að lita bjartari augum til
vetrarins. Mikil ósköp, staur-
arnir voru settir niður. Nokkr-
um dögum siöar koma menn á
gröfu til aö gera svolitiö fint i
kringum okkur, greyin, sem
höfum mátt stökkva og hoppa
Og klifra i allt sumar.
En þá urðu staurarnir aö
vikja fyrir þeim framkvæmd-
um. Þá dimmdi skyndilega i
sálum okkar, og sú spurning
vaknaði: Skyldum viö fá bless-
aða staurana okkar aftur. Þaö
var þó betra að sjá þá, þótt ekk-
ert ljósið sæist á þeim.
Staurarnir komu aftur, en þaö
er ekkert ljós komið á þá enn.
Hvað skyldum viö þurfa lengi að
paufast áfram i myrkri, hálku
og drullu? Þetta er i fáum orðum
saga Seljalandsvegarins, sem
er aðalgata bæjarins. Aöur en
komið er inn i bæinn, er skilti
sem stendur á Velkomin til tsa-
fjarðar. Þar ætti aö heldur að
standa: Velkomin i holurnar!
Löngu eftir viðtöku gjafarinnar, þá mun yðar minnst af ánægðum eiganda.
Frábær að gerð og lögun, PARKER er sá penni, sem verður notaður og
glaðst yfir um árabil og er hugljúf minning um úrvals gjöf um leið og hann er notaður.
PARKER pennar eru lofaðir af fagmönnum fyrir hið stílhreina útlit,
þekktir heimshornanna á milli fyrir bestu skrifhæfni.
Veljið PARKER penna til gjafa (eða eignar). PARKER penni er lífstíðareign.
PARKER pennar kosta frá kr. 590 .- til kr. 17.780.
PARKER eftirsóttasti penni heims.
O