Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 15
15
JÓLABLAÐ VÍSIS
„Hér er um sömu höfuðskepnu
að ræða — vatn — svo að
þarna eru náin tengsl í huga
ungs drengs. Þér sjáið það, er
það ekki?“
Hann varð allt í einu þungt
hugsi, bjóst ekki við svari, að
því er virtist, heldur greip um
hökuna oð strauk hana um hríð.
Eg hugði, að bezt mundi nú að
þegja, ef það gæti orðið til þess,
að samræðurnar féllu niður við
niðurstöðu þá, sem maðurinn
hafði komizt að. Eg þóttist
akilja, að hann mundi vera með
„lausa skrúfu“, að því er
drauma snerti.
Eg hallaði mér út í hornið
góða, og lokaði augunum og
aetlaði að látast vera kominn
yfir í draumalandið. En um
3eið og eg lagði augun aftur, sá
eg út undan mér, að maðurinn
vatt sér að mér, ijómandi að
endurnýjuðum áhuga, og sagði
um leið:
„Heyrið þér annars, má eg
ekki gjalda yður í sömu mynt
— segja yður draum, merki-
legan draum, að mínum dómi.
Eg tek fram, að mig dreymdi
hann ekki, en hann er sannur
samt, og hann ætt'i ekki að glata
neinu af gildi sínu, þótt þér
heyrið hann ekki af vörum
þess, sem dreymdi hann.“
Hann leit spyrjandi á mig,
eins og hann Væri að bíða eftir
samþykki mínu, og eg kinkaði
kolli. Eg hef gaman af að hlýða
á frásagnir af draumum, því j
að þeir geta verið hin beztal
dægradvöl, þótt það fari að
sjálfsögðu mjög eftir frásagn-
arhæfileikum sögumannsins.
Þegar eg hafði tilkynnt þegj-
andi, að eg væri reiðubúinn til
að leggja við hlustirnar, tók
maðurinn til máls:
,.Það er bezt að taka það fram
strax, að konu dreymdi draum-
inn, sem eg ætla að segja yður
írá. Jæja, hana dreymir, að
hún sé stödd heima hjá sér,
standi úti á tröppum á húsinu,
þar sem hún býr með fjöl-
skyldu sinni, og hún er að svip-
ast um eftir dreng á 3ja ári,
sem hún á. Hann á að koma að
borða, og hún kallar nokkrum
sinnum á hann, án þess að
hann heyri til hennar. En svo
verður hann þess var, að
mamma kallar, og hann tekur
strax á rás til hennar. Hann
hefir verið að leika sér bak við
hús handan götunnar. Þetta er í
nýju hverfi, og það er ekki bú-
ið að girða lóðirnar þarna, svo
að drengurinn hleypur beint af
augum. Hann stefnir að bili
milli tveggja bifreiða, sem
standa utan við akbrautina
handan götunnar ....
Þá heyrir móðirin allt í einu,
að bifreið er ekið eftir götunni.
Þótt konan hafi hvorki vit á
vélum né bílum, þykist hún
greina af hávaðanum, vélar-
hvininum, að bifreiðinni muni
ekið mjög hratt. Hún lítur til
hliðar, í áttina til bifi'eiðarinn-
ar, og sér, að hún fer geysi-
hratt. Næst litur hún til barns-
ins og þá þykist hún gera sér
grein fyrir því, að um leið og
það hlaupi út á akbrautina um
skarðið milli bifreiðanna, sem
kyrrar standa, muni hin bif-
reiðin koma brunandi . .. . “
Rödd sessunautar mins var
orðin mjög æst. Mér datt í hug,
að hann væri eins og leikari,
sem reyndi að auka gildi sögu
sinnar með raddbreytingum og
tilburðum. Eg leit á hann og sá,
að æsing hans var engin upp-
gerð. Hann starði fram fyrir sig
eins og óður maður, og kippir
fóru við og við um andlit hans.
Þegar hann þagnaði, sat hann
lengi þannig, en svo var eins og
af honum bráði, og hann sneri
sér aftur að rnér, heldur ró-
legri.
„Konan hrökk upp, er hér
var komið draumi hennar,'1
hélt hann áfram. „Hún hafði
orðið skelkuð í svefninum, og
ef til vill er það ekkert und-
arlegt. Þetta var dálítið ó-
hugnanlegur draumur, en þó
var það víst bót í máli, að kon-
an hafði harla litla trú á
draumum, svo að hún sofnaði
brátt hin rólegasta aftur og svaf
vært til morguns.“
Aftur þagnaði maðurin.i,
varð mjög hugsi og starði lengi
fram fyrir sig, eins og hann
vaeri að melta eitthvað með sér.
Svo hélt hann áfram:
„Eftir nokkrar nætur
dreymdi konuna drauminn aft-
ur. Hann var nákvæmlega eins
og í fyrra skiptið — engu skeik-
aði — og hún vaknaði á ná'-
kvæmlega sama stað. Bifreið'-
in kom brunandi um leið og
litli drengurinn hennar stefndi
að skarðinu milli hinna bif-
reiðanna. En konan tók þetta
ekki nærri sér frekar en í fyrra
skipti.....“
Nú gerði maðurinn aðeins ör-
stutt hlé á frásögninni, meðan
hnnn hagræddi sér á stólnum.
„Konuna dreymdi enn sama
drauminn í þriðja sinn, og að
þessu sinni liðu færri nætur en
Framh. á bls. 21.
Fyrir
BREZKAR
ÞYZKAR og
AMERÍSKAR
VINNUVÉLAR
• y
StníÖ4BÖar samhvœmt
• BREZKUM STÖÐLUM (IS)
• ÞÝZKUM STÖÐLUM (DIN)
• AMERÍSKUM STÖÐLUM (ASA)
♦ RENOLD KEÐiUR og KEÐJUDRIF
hafa 30 skra rctjaslst aö hsshí
faskr sk lansii
* Veitum alia tæknilega aðstoð við val á
KEÐJUDRIFUM
FÁLKINN H.F. véladeild
Ssnti: 1-36-70 — RcyhjarHt