Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 19

Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 19
JÓLABLAÐ VÍSIS 19 r: éta 5 mýs, hvað eru þá 100 kett- Völundarhús: Ilver getur hjálpað hestinum tii að ná í hafra- skammtinn sinn? — Ráðning á bls. 35. Ymis heilabrot. Krítarbúi (sem býr á eynni Krít) segir: „Allir Krítarbúar eru lygarar". Þá hlýtur hann líka að vera lygari. Samkvæmt því lýgur hann, þegar hann segir, að Kúítarbúar séu lygar- ar og þá eru Krítarbúar alls ekki lygarar, og hann hefur sagt satt. Krítarbúar eru þá vissulega lygarar og hann hef- ur logið o. s. frv. Þetta er sígild rökvísi í sjálfu scr og maður má halda á öllu sínu til að fylgjast með. Nú eru risnir upp „gáfna- matsmenn" á meðal vor, alla hina matsmennina þekkjum við svo vel. Þeir nota ekki ó- svipaðar flækjur, þegar þeir vega og meta gáfur okkar og hér eru góð dæmi til að æfa sig á: 1. Fyrst er stærðfræðileg gáta, sem snillingarnir leysa samstundis, en hinir djúpvitru eiga oft erfitt með: Hraðlest fer með 100 km hraða frá A til B. Samtímis fer flugvél frá A og flýgur með 400 km hraða til B, en á milli þess- ara staða eru 250 km. Þegar flugvélin kemur til B snýr hún við og flýgur nú til móts við lestina, snýr svo aftur við til B. Þar snýr hún enn við á móti lestinni og þetta gerir hún hvað eftir annað, unz lestin og flug- vélin koma samtímis tii B. — Hversu marga km hefur þá flugvélin flogið? 2. Þessi gáta virðist líka vera stærðfræðileg og er dálítið ( varasöm: í höfninni liggur skip og hangir reipstigi niður með síð- unni. Það er háfjara og það eru 36 cm. úr stiganum niður að sjávarborðinu. Nú fer að falla að og stígur flóðið um 6 cm. á mínútu. Hvenær nær sjórinn upþ í stigann? 3. Þér getið náttúrlega svarað cftirfarandi spurningu eftir yð- ar eigin geðþótta, en aðeins eitt svar er rétt: Setjum svo að vísindin fyndu óbrigðult ráð til þess að ganga úr skugga um, hvort kona er óbyrja að erfðum, munduð þér þá viija samþykkja lagasetn- ingu þess efnis, að sérhver kona skyldi verða að leggja fram læknisvottorð um það, áður en hún giftist, að hún væri ekki haldin þessum erfðagalia. 4. Það, sem sagt var um næstu spurningu á undan^ gild- ir einnig um þá næstu: í sumum löndum, þar sem bannað er með lögum, að mað- ur kvænist systur ekkju sinnar, eru börn, sem fædd eru í slíku hjónabandi, taiin óskilgetin. Finnst yður þetta rþtt? 5. Það þarf fjölhæfni og lífs- reynslu til að geta ráðið eftir- farandi gátu: í borðskúffu einni eru 5 pör af hvítum sokkum og 10 pör af svörtum sokkum. Nú er svarta- myrkur í herberginu. Hvað þurfið þér að taka fram marga sokka minnst, til þess að vera viss um, að hafa eitt par af sama lit? 6. Þá er hér önnur svipuð, en öðruvísi hugsuð: Á gólfinu í skóverksmiðju einni liggja 50 pör af skóm, og eru allir skómir af sömu stærð og gerð. Ef þér eigið að velja yður eitt par alveg blindandi, hversu marga skó þurfið þér að taka, til að vera viss um að vera með samstætt par? 7. Þessi gáta er fyrir bráð- snjalla menn og skjótráða: Þér standið á miðri, skræin- aðri gresjunni, sem er 100 km. á einn veginn og 20 km. á hinn. Það er hvass vestanvindur og allt í einu sjáið þér, að eldur hefir gripið um sig við vestur- mörk gresjunar og breiðist út með cfsahraða í áttina til yðar. Hvað eigið þér að gera til að bjarga lífinu? 8. Hér er gáta fyrir hina rök- vísu: Ef 5 kettir eru 5 mínútur að ir lengi að éta 100 mýs? 9. Það þarf m. a. skipulags- gáfu til að ráða þessa gátu: Af 4 peningum, sem allir líta eins út, er einn falskur. Það eitt er vitað, að falski peningurinn er ekki jafn þungur og hver hinna, en þess er ekki getið, hvort hann er léttari eða þyngri. Það er fyrir hendi vog, en engin lóð. Hvernig er hægt að finna hvaða peningur er falskur, með því að nota vogina aðeins tvisvar? Sjá ráoningu á bls. 35. „Pabbi,“ sagði sonur ríkis- mannsins. „Eg ætla að giftast roskinni konu. Eg get ekki þol- að þessar vitiausu, ungu.stúik- ur. Það er miklu meira við roskna konu.“ „Jæja, sonur sæll,“ svaraði faðirinn. „Gerð þú það sem þér lízt. En eg ætla að eiga það við þig, að koma ekki til mín og biðja um peninga, þegar þú þarft að láta „lyfta“ á henni andlitinu.“ ★ Drengnum gekk illa í skólan- um og honum var sagt að koma með foreldri sitt degi síðar. En þau höfðu bæði svo mikið að gera, að hann tók aldraðan afa sinn með sér. „Hver er þessi maður?“ spurði kennarinn. „Það er hann afi minn.“ „Er hann móður- eða föður- !afi þinn?“ ! „Það er alveg sama. Hann berst fyrir þau bæði.“ Á borðinu lá auglýsing frá flugfélagi sem sér um ferðir til Bagdad, Beirut, Nicosíu og Kai- ro og þetta fylgdi með: „Reynið þessar ferðir á staði, sem eru friðsöm ferðamanna- paradís, en þo tilbreytingarík- ir.“ Já, það má svo sem segja það! 'V' ú & Atkvæðagáía. Úr atkvæðunum: an - e - e - fall - for - groms — i — ið - ill — 111 - lag - leg - lyk - mon - naum - ó - svinn - u - ugg - ir - ur - út - þeng - þröng - ör ;kal gera tíu orð, sem hafa 'ivert um sig þá þýðingu, sem -ð neðan greinir. Þegar þeim 'ir raðað í númeraröð, hverju upp af öðru, má lesa úr fyrstu og síðustu stöfum hvers orðs, begar lesið er að ofan og niður, fyrsta vísuorðið í kunnu kvæði sftir tephan G. Stephansson: 1. erfiður 2. óhæfu 3. konungur 4. sjávarfall 5. lausn 6. blóm (erl. heiti) 7. tæp 8. úrgangurinn 9. útgáfufyrirtæki 10. viss. Sjá svar á bls. 35. Helgimyndir sem þessi vekja alla ti! umhugsunar um uppruna jólalialds kristinna manrsa. Strikaþraut: Þessum skildi á að skipta þannig með þrem bein- um strikum, að cinn lcöttur lendi í hverjum þeirra 7 reita, sem. myndast. — Ráðning á bls. 35. Þessí liila stúika getur áreiðanlega selt jólatréð sitt. Hún er klædd eins og lítill jólasveinn og brosir glettnislega til veg« farenda. Í

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.