Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 25

Vísir - 04.12.1958, Blaðsíða 25
TÓLABLAÐ VÍ SIS 25 Strönd í Suöursveit - Framh. af bls. 10. ur. Síðan fylltu þeir sandi að kútnum en létu ekkert ofan á seglið. Kitur í hættu. Nokkrum dögum seinna fór faðir minn að vitja um kútinn. Allt var í lagi með hann, hann sat þarna á kafi í fjörunni. Eyj- ólfur hreppstjóri á Reynivöllum fór daglega um fjöruna til að líta eftir strandgóssinu, og var þá venjulega ríðandi því hon- um var farið að daprast sjón. Þegar faðir minn sagði okkur síðar frá hvað kúturinn hefði verið kominn hætt, fórust hon- um orð á þessa leið: „Helvítis karlinn á Reynivöll- um var alltaf að slaga um fjör- una. í einni þessari ferð sinni hafði hann lagt leið sína um, þar sem kúturinn var og lá brautin eftir hestinn yfir kút- inn og svo litlu munaði, að aft- urhófur hestsins hafði skropp- ið niður með kútsbarminum ut- an. En það lán,“ bætti faðir minn við, „að hann skyldi ekki lenda ofan í kútinn.“ Konjakinu skipt. Það var vestarlega á Breiða- bólstaðarfjöru, að kúturinn var grafinn nærri í hásuður frá Hala. Nú var eftir að ná kútn- um. Það hafði faðir minn geng- izt undir að gera, af því hann átti sty tzta leið til þess. En hér var ekki hægt um vik. Hann var í fleirbýli. Þó hann færi á bát yfir Breiðabólstaðarlón, sem var auðvelt, því uppistaða var í því, þá var hættan á, að Þór- arinn bróðir hans á Breiðaból- stað færi á hnotskóg, kæmi til skips og sæi kútinn. Dettur föður mínum þá það snjallræði i hug að segja Þórarni frá kútn- um og innihaldi hans, og fá hann sem fjórða hluthafa í hon- um. Þetta var auðsótt við Þór- arin. Fóru þeir svo eina bjarta vornótt í þokuúða og sóttu kút- inn. Þegar heim kom gengu þeir vandlega frá honum í heystabba í -Langabænum á Breiðabólstað. ,Um Jónsmessuleytið var skipta- fundur haldinn á Hala. Komu þeir þá vestur Bjarni og Þor- steinn að taka á móti sinum hlut úr innihaldi kútsins. Þann dag voru karlarnir góðglaðir. Faðir minn var ílátalítill undir sinn hlut. Til var blikkskjóla á Hala, sem keypt var á togara, sem strandaði vestan við Jök- ulsá á Breiðamerkursandi vet- urinn áður. Hún var það frá- brugðin venjulegum skjóðum, að stútur eða vör var á henni svo gott var að tæma af henni. í þessa skjólu lét faðir minn nokkuð af því víni, sem kom i hans hlut, setti hana svo ofan í f/S.i Koníakið var ol' dýrmætt, til þess að það mætti fara til spillis. stækka kálgarðinn framan við bæinn. Þá var ekki mikill stór- hugur í garðrækt, enda ekki ræktað nema til heimilisþarfa. Við færðum garðinn fram í túnið kringum þrjá faðma. Mun hann hafa stækkað kringum 30 —40 ferfaðma. Þegar leið á dag- inn veitum við því eftirtekt að skúta kemur siglandi full- um seglum utan úr hafi og stefnir undir Steinafjöru. Þeg- ar hún er komin á tvítugt, veit- um við því eftirtekt að undir hafísrönd hillir við hafs- brún. Bæði skútan og ísinn nálg ast land — ísinn jafnvel með meiri hraða. Hvað vill skútan með þessari siglingu sniðhallt undan vindi, vorum við að bolla leggja. Líldega er hún að flýja ísinn og ætlar að setja í strand. ) ólæsta kistu, sem hann átti, og geymdi tóbak og fleira í. Þar stóð hún loklaus lengi sum- ars. Einhverjum hefði þótt girni legt nú á tímum að rétta hönd- ina undir lokið og ná sér í lögg. Aldrei snertum við Benedikt bróðir (Þórbergur var þá far- inn) á þessum feng föður okkar. Konjak í smáskömmtum. Ekki leið langt frá strandi I til uppboðs. — Á uppboð- ið kom mikill f jöldi manns j bæði úr A.-Skaftafellssýslu og j nokkrir úr V.-Skaftafellssýslu. Þarna var selt konjak, fiskur, lítils háttar af brauði, kaðlar, segl, trjáviður og fleira. Þó menn væru víða að komnir, var samt myndað félag um fiskinn. Ekki voru það allir, sem ósk- uðu eftir að fá fisk. Ég held það hafi verið tunna af fiski, sem kom í hlut, og var boðið í hana 10 kr. Margir voru góð- glaðir á þessu uppboði. Konjak- ið var selt í smáskömmtum, mig minnir 2 pottar í boði, og potturinn komst yfir 2 krónur Ekki var uppboði lokið fyrr en um miðnætti. Þá áttu sumir fullt í fangi með að bjarga sér heim, en engin urðu af því vand rasði, og öll skipti á því sem fé- lag vai myndað um, fóru fram í bróðerni. 1912 strandar enn skúta á Steinafjöru, hún hét „Magda- lena“. Þann dag var norðaustan strekkingur og kalt í veðri. — Þetta var í byrjuðum maí. Ég man vel eftir deginum þeim. Við feðgarnir, ég, Benedikt bróð ir og faðir okkar, vorum að Strand og tóbak. Sú tilgáta fannst föður okk- ar,' sem reyndum sjómanni af Austfjörðum frá fyrri tíð, ekki líkleg. Hún mundi heldur setja undan vindi og halda vestur með landi í blásandi austan byr. Nú fór byggingin að ganga hægt hjá okkur bræðrum, aug- un voru stöðugt á skútunni. Faðir okkar fór líka að gefa henni hornauga. „Jú, hún ætlar í strand, pabbi,“ sagði ég. Fað- ir okkar lagði rekuna frá sér upp við túngarðinn og steininn, sem hann hafði til að berja snidduna með, lagði hann á garð inn. Hann þreif ofan í vestis- vasa sinn að leita eftir tóbaki. (Hann var mikill tóbaksmaður) En vasinn var tómur og var lengi búinn að vera það, því VERZLUNARSPARISJOÐURINN annast öll venjuleg sparisjóös- og hlaupareikningsviöskipti Sparisjóðurinn er opinn slla virka daga kl. 10-12,30 og 14-16 og kl. 18-10 fyrir sparisjoð og hlaupareikning VERZLUNARSPARISJÓÐURINN Haínarstræti 1, sími 22190, 5 línur. prentasí bezt ef myndamótin eru frá Prentmyndir h.f Laugavegi 1 -Sími 14003 j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.