Vísir - 04.12.1958, Side 28
28
JÓLABLAÐ Vf SIS
(jpaAa^erÍin
®
Grasaferðir voru algengar úr[
Skagafirði á 19. öldinni. Voruj
farnar langar ferðir til að afla
grasa, allt fram um 1880, en úr
því munu hinar lengri grasa-
ferðir hafa farið að réna og jafn
vel alveg verið lagðar niður um
1890.
Fyrir 1880 var alsiða úr fram-
Skagafirði, að fara til grasa
fram í Guðlaugstungur og jafn-
vel vestur yfir Blöndu í svo-
nefnda Tjarnadali og Þjófadali.
— Þessar ferðir voru vanalega
farnar á sama tíma, á vorin,
þegar álitið var að sæmilegur
gróður væri kominn handa
hestum. Oftast 9 vikur af sumri
í sæmilegu árferði. Ferðalagið
tók venjulega 2—3 vikur.
Saman í hóp var oftast sama
fólkið ár eftir ár, en misjafn-
lega voru margir í hóp, sjaldan
færri en 6, en jafnaðalega eigi
fleiri en 12. Ætíð var einhver
kunnugur maður fararstjóri,
oft sá sami árum saman.
Algengast var .að kvenmenn
væru fleiri en karlmenn í ferð-
um þessum, því karlmenn voru
bundnir heima við vorverk, líka
var venjulega einn maður frá
mörgum bæjum við sjó, sérstak
lega við fuglaveiði við Drang-
ey, er þá var mikið stunduð.
Gömul kona, sem nú er dáin
fyrir 17 árum, sagði mér að hún
hefði farið fyrst til grasa, fram
í Guðlaugstungur er hún var
á 14. ári og síðan árlega fram
um tvítugt — árið 1880.
Oft var glatt á hjalla í ferð-
um þessum, og þótt aðbúaður
væri stundum eigi sem beztur,
þá mun unglingum og mörgum
fullorðnum hafa þótt tilbreyt-
ing í ferðalaginu, einkum úti-
legunni í hinum fagra fjallasal.
Erfiði og vökur fylgdi þess-
um ferðum, því ætíð var farið
í einum áfanga úr byggð, þang-
að sem tína átti grösin, en það
er afarlöng leið, t. d. í Þjófa-
og Tjarnadali.
Iðulega stóðu 3—4 tjöld ná-
lægt hvert öðru á grasafjallinu,
og komu tjaldbúarnir hverir
til annara í tjöldin. — Voru þá
sagðar sögur, sungið og kveðið;
einnig var gestunum veitt af
því sem fyrir hendi var. Þar
á meðal munu karlmenn oft
hafa haft með sér dálítið af
brennivíni, sem á öllum tímum
hefur verið vel þegið. Fæðið
var vanalega: harðfiskur, brauð
og smjör, svartfugl og kannske
hangikjöt. Flestir munu á
seinni árum hafa haft með sér
kaffi. Var það hitað á hlóðum,
við lyng og lurka, er tíndir
voru, því hrís er eigi að fá í
Guðlaugstungum. — Sykur var
víst mjög af skornum skammti
og kaffið eigi notað í óhófi
heldur, um kaffibrauð var eigi
að tala í þá daga, en sýru var
eigi látið vanta í þessar ferðir.
Klæðnaður var mest vað-
málsfatnaður, yzt og innst, hlýr
en þungur, en utanyfirföt til
varnar bleytu vantaði, nema
flestir voru í skinnsokkum, því
víða er blautt í Tungunum.
Jafnan hafði hver 2 hesta, ann-
an til reiðar en hinn til áburðar,
átti hver að tína grös á sinn
hest.
Hver maður var útbúinn með
2 brekán eða ábreiður, sem
notað var í tjaldið og til að
hafa ofan á sér, þegar sofið
var. Tjaldið var þannig tilbúið,
að brekánin eða ábreiðurnar
unum, var lengd ábreiðunnar
hæð tjaldsins; hvað margar
voru á hlið fór eftir fjölda fólks-
ins, en venjulega mun hafa tal-
ist svo til að ein ábreiða væri á
mann í tjaldinu.
Þá voru grasapokarnir gríð-
arstórir sekkir, svo einn var
stundum hafður í klif. Voru
það stundum ofnir vaðmálspok-
ar, úr ull eða ull og faxhári til
samans. Voru þeir nefndir
hærupokar. Litlar hornhagldir
voru saumaðar í opið á pokum
þessum, svo hægt væri að reima
saman opið. Stundum voru tvær
ábreiður saumaðar saman og
notaðar sem poki undir grösin,
en þá var hafður minni poki
með í klif.
Þegar komið var í tjaldstað
var fyrsta verkið að útbúa
tjaldið, var það stúlknanna
verk að sauma saman ábreið-
urnar, en piltarnir settu niður
súlur og bundu tjaldásinn, líka
gengu þeir frá hestum og heftu
þá. Næst var hvílzt og matazt
'sem oftast var full þörf, því[
Joftast hafði ferðin varað óslit-
ið fullan sólarhring.
Þá byrjaði nú grasatínslan.
Hver hafði sinn poka að tína í,
Jvenjulega var það hálftunnu-
poki, var brotinn þriðjungur
Jniður af lengdinni, og fest klif-
|beragjörð eða breiður ullar-
■ renningur í op pokans svo
hanki myndaðist úr renningn-
um, var svo hankanum brugðið
• upp um hægri öxlina og pokinn
i látinn vera undir vinstri hendi.
|Var svo grösunum stungið í
pokann jafnóðum og tínt var.
Þegar pokinn fór að þyngjast
var losað úr honum, var það
kölluð „tína“.
Þannig gekk þetta koll af
kolli, þar til mál þótti að halda
heim í tjaldstað, þá var öllum
,,tínunum“ safnað saman og
bornar heim að tjaldi og hafði
þar hver sinn „bing“.
Ætíð var gengið á nóttunni,
því nauðsynlegt þótti að „vott
væri á“, þá sáust grösin betur,
einnig betra að fína þau. Væri
þurrkur, sem oft bar við, vildi
grasafólkið eymast á fingrun-
um, því þur grösin særðu góm-
ana, þegar þau voru tínd. Marg-
ir höfðu „gripla“ við grasatínsl-
una, bæði til hlýinda og til að
hlífa höndunum að þær særðust
■ og sofnað eftir ferðavolkið,
FRAKKÆ
ávalh
fyrii’liggjandi
í fjölbre^ttu
úrvali
Framleiðum allar tegundir af EiNKENNISHÖFUM
Kuldahúfur
;á börn og unglinga.:
Bílstjóraliúfur.
Káskeyti
ávallt fyrirliggjandi.
P. EYFELD
Box 137, sími 10199. — Ingólfsstræti 2.
síður.
Þannig var haldið áfram, þar
til komið var í klyfjar á hest
hjá hverjum, af þurrum grös-
um, því ætíð voru þau þurrk-
uð áður en lagt var á stað
heimleiðis, því eigi þótti til-
tækilegt að flytja þau hálf'
blaut heim.
Allmikill munur var á flýti
fólks við grasatínsluna, sem.
stafaði af æfingu og áhuga. Var
það siður ef einhvern vantaði £
íullar klyfjar á sinn hest, er aðr
ir voru búnir að fylla sína poka,
þá fóru allir eina göngu og
bættu því er þá aflaðist víð
grasfeng þess er vantaði.
Mjög þótti grasaland gott í
Guðlaugsstungum. — Voru þar
bæði stærri og meiri grös en á
Staðarfjöllum, en samt þótti
albezt grasaland í Tjarna- og
Þjófadölum, sérstaklega voru
þau stærri og voru rauðleit á
lit.
Er því skiljanlegt að fólk
legði það erfiði á sig að fara
þessar löngu ferðir til að fá
betri grös, en á þeim tíma var
lagt mikið kapp á grasatekju
til sparnaðar á kornmatar-
kaupum.
í okt. 1958.
Hjörtur Kr. Benediktsson.
^J/in
RÉTTU ÁIIRIF
Ódýrar vinnuhúfur
með lausum kolli. x
Klingenberg naut mikillar
kvenhylli. Einu sinni þurfti
hann þó á aðstoð að halda.
Þessi, sem hann var að glíma
við núna, var heldur daufgerð.
Það var svona rétt að það týrði
á ástarskarinu. Það þurfti að
skvetta svolítið á eldinn — ein-
hverju hæfilega eldfimu.
Klingenberg skellti sér inn í
■éínverzlun. „Ég þarf að fá eina
flösku af góðu víni,“ sagði hann
við kaupmanninn.
„Rauðvín, hvítvín, létt,
sterkt, súrt eða sætt?“ spurði
vínsalinn. „Á það að vera freyð-
andi eða ....?“
„Freyðandi,“ flýtti Klingen-
berg sér að svara. „Ég þarf
nefnilega eitthvað, sem dugar.
Sjáið þér til — það er til sér-
staks brúks. Hún er ljóshærð —
vel vaxin.“ Hann „blikkaði“
kaupmanninn og smjattaði.
,.Hún er nefnilega gift, en dálít-
i hlédræg — feimin. Þetta er
eiginlega fyrsta stefnumótið.
Ég er búinn að bjóða henni í
róðrarferð. Við ætlum að róa
út í eyði :y, þar sem við getum
verið ein og ótrufluð. Þar ætla
ég að taka flöskuna upp. Við
skulum. Hún d -ekkur eitt glas
— og annað glas —- og þegar
hún drekkur þriðja glasið, verð
ur blóðið að verða oið'ð heitt.
Þá verður vínið að fa'a að
segja til sín — þér skiljið?"
„Já,“ hann skildi það. „Þá
hef ég einmitt það rétta.“ Hann
tók flösku úr hillunni og fékk
Klingenberg. Hann athugaði
merkið og strauk flöskuna blíð-
lega nokkrum sinnum. „Allt í
lagi“ og hann stakk flöskunni
í vasann, borgaði og gekk út.
Hann beið á staðnum með
flöskuna í vasanum og blóm-
sveig í hendinni. Hún kom og
þau fóru upp í bátinn. Þarna
var eyjan — þau stigu á land.
„Hvað eruð þér með þarna í
vasanum?“ spurði hún.
„Flösku af góðu víni í tilefni
dagsins,“ sagði Klingenberg
hróðugur.
„Lofið mér að sjá hvað það
er.“
Hann rétti henni flöskuna og
hún skoðaði merkið vandlega.
„Hef ég hitt á það rétta?“
spurði Kilngenberg.
„Hér um bil,“ svaraði sú ljós-
hærða. „Ég á fyrst að drekka
eitt glas — svo annað glas —■
og þegar eg drekk þriðja glasið,
á blóðið að verða orðið heitt —
þér skiljið? — Var það ekki
svona?“
„Svona? Hvernig — hvernig
dettur yður þetta í hug?“
„Það er ósköp einfalt. Mér
var sagt nákvæmlega svona frá
þessu.“
„Hver sagði það?“ spurði
Klingenberg undrandi.
„Vínkaupmaðurinn, sem seldi
yður vínið. Ég kom þangað inn
rétt á eftir.“
„Hvernig datt manninum í
hug að segja yður þetta — ein-
mitt yður?“
Hann þurfti að bíða svolítið
eftir svarinu. Sú ljóshærða var
búin að leysa bátinn og áður
en varði ýtti hún frá landi og
kallaði til hans:
„Vínkaupmaðurinn er nefni-
lega maðurinn minn!“
X+Y.