Vísir - 04.12.1958, Síða 29

Vísir - 04.12.1958, Síða 29
JÓLABLAÐ VlSIS 29 Ekki James Aldon hallarvörður í Campbellkastala var nýlátinn og átti Tom sonur hans kost á að erfa stöðuna. Campbell jarl bauðst meira að segja til að greiða honum sama kaup og gamla manninum og láta hon- um þar að auki eftir lítinn jarð- skika til afnota, því honum var kunnugt um áhuga Toms á jarðrækt. En svo undarlega brá við, að Tom þekktist ekki þetta góða boð. Hann var búinn að fá meira en nóg af hvininum, stununum og brakinu í göng- unum og skotunum. Tom var svo sem enginn hugleysingi, en hann var ákaf- lega hræddur við drauga, þó hann væri svo að segja alinn upp meðal drauga og aftur- göngurnar væru einskonar leikbræður hans — en kannske var það einmitt þess vegna. Ef það var maður gegn manni, þá var engin hætta á því að Tom stæði sig ekki, en að eiga við ósýnilega andstæðinga, það var nú annað mál. Og Tom pakkaði saman dót- inu sínu og seldi það, sem hann gat ekki tekið með sér og kvaddi gamla England og lagði af stað vestur yfir hafið stóra. í Ameríku, landi tækninnar, þyrfti hann ekki að óttast vofur og drauga. Tom fór að líta í kringum sig í stórborgunum, en einhvern yeginn leist honum ekki á sig þar Þessi látlausi skarkali, reimt. gaulið í járnbrautarlestunum, öskrið í bílunum og hvinurinn í neðanjarðarbrautinni og öll- um þessum fylgifiskum tækn- innar — allt þetta minnti hann svo mikið á hljóðin í draugun- um í Campbellkastala. Svo fór Tom til fasteignasala. „Ég vil kaupa land, sem hent- ugt er til garðræktar, herra Finch,“ sagðí Tom. „Það verður að vera ódýrt, ekki of stórt, og ekki of langt frá borginni, en umfram allt, það má ekki vera reimt þar.“ Finch hló. „Það eru engir draugar til hérna hjá okkur. Ég hef einmitt einn stað í huga —- tilvalinn stað fyrir yður. Ekki of stór og pdýr.“ Tom leit á staðinn. Hann var tilvalinn og Tom greiddi fyrstu afborgunina. „Eftirstöðvarnar greiði ég eftir þrjá mánuði, en ef ég verð var við reimleika þá ganga kaupin til baka.“ Þetta varð að samningum. Tom fór nú að kaupa allt nauðsynlegt til hússins og svo tók hann að brjóta landið. Þeg- ar hann var í þann veginn að ljúka við eitt plógfarið sá hann glampa á eitthvað í moldinni. Hann tók það upp. „Tönn“, sagði Tom. „Getur komið fyr- ir.“ Skömmu seinna fann hann aðra tönn og síðan var ekki að sökum að spyrja, hann tíndi upp hverja tönnina á fætur annari úr plógförunum. Þegar hann var búinn að plægja landskikann átti hann 70 fram- tennur og 32 jaxla í pússi sín- um. Hann settist niður og skrif- aði Finch bréf: „..., þetta er draugalegur staður. Þetta hlýtur að hafa verið blóðvöllur eða kirkju- garður. Ég get ekki búið á svona stað —• vil ekki eiga landið. Viðskiptin ganga til baka. — Þér munið samning okkar. látandi simskeyti frá fast-« eignasalnum: „Allt í lagi með staðinn. Þetta var áður knattspyrnu- völlur.“ Daginn eftir fékk Tom svo- E. R. Sí eypusty rkt arj á r n Mótavír Bindivír Slétt járn galv. BYGGINGAVÖRUR Þakjárn. Vírnet Múrkúðunarnet Girðinganet Gluggagirði Saumur Pappasaumur Þaksaumur Þakpappi Innanhússpappi Steypuþéttiefni Léttbiendi Sícinull Skclppípur og pípuhlutar Hvítt cement | Kalk Snowcem 1 Vatnsleiðslur Miðstöðvarofnar o. fl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.