Vísir - 29.01.1977, Side 1
Síódegisblad fyrir
fjölskylduna ír h
aiiaf
Laugardagur 29. janúar 1977 26, 67. árg.
Hjúkrunarfrœðingar ó þremur sjúkrahúsum ganga út 1. apríl ef ekki er gengið að kröfum þeirra:
KREFJAST FIMMTIU ÞUSUND
KRÓNA HÆKKUNAR Á MÁNUÐI
Hreint neyðarástand myndi skapast ef hjúkrunarfrœðingar hœttu störfum
- SJÁ BAKSÍÐU
Seldu útlendingum fremur
hráefni en íslendingum
Við unnum!
Geir Hallsteinsson átti frábæran leik meö
landsliöinu í gærkvöldi. Hann var oft tekinn
ómjúkum höndum eins og myndin hans Einars
ber glögglega meö sér.
Samband islenskra
samvinnufélaga seldi á
siðasta ári 140 tonn af tólg
úr landinu fyrir um sex
milljónir króna. Að auki
fékk sambandið átta
milljónir i útflutnings-
bætur.
Graskögglaverksmiðj-
an i Brautarholti á
Kjalarnesi óskaði á sama
tima eftir að kaupa þessa
tólg á sex milljónir til að
blanda i graskögglana.
Ekki reyndist unnt að fá
tólgina niðurgreidda, svo
hægt væri aö selja gras-
kögglana á umsömdu
veröi til bænda.
Jón ólafsson i Brautar-
holti, sem ásamt Páli
bróöur sinum, rekur
graskögglaverksmiðjuna
sagði i samtali við Visi að
ekki hefði heldur reynst
unnt aö fá aðra fyrir-
greiðslu i þessu sambandi
nema nokkurn yfirdrátt i
bönkum.
Með þvi að bæta tólg,
eða fitu i graskögglana er
hægt aö auka fóöurgildi
þeirra um 10 til 15 pró-
sent.
1 graskögglaverksmiöj-
unni i Brautarholti fór
fram i sumar tilrauna-
vinnsla meö að blanda
fitu i grasköggla. Að sögn
Jóns voru byrjunaröröug-
leikar nú úr sögunni, og
framleiðslan farin aö
ganga vel.
— EKG
Islenskur sigur
gegn tékkum
islenska iandsiiðið i handknattleik
vann frækilegan sigur gegn tékkum
22:20 i Laugardalshöllinni i gærkvöldi I
æsispennandi leik. islensku
leikmennirnir áttu mjög góðan leik, sér-
staklega i fyrri hálfleik þegar liðið skor-
aði 9 mörk i fyrstu 11 sóknarlotunum og
komst þá i 9:5.
Þennan mun tókst tékkunum svo að
jafna i siðarihálfleik og þcgar rúmar tfu
minútur voru eftir af leiknum var stað-
an jöfn 18:18, en þá kom annar góður
kafli af hálfu islenska liðsins sem dugði
til sigurs.
Að sjálfsögöu var landsliðsþjálfarinn
Janusz Czervinski ánægður meö leik
sinna manna sem hann sagöi að hefðu
aldrei leikið betur. Janusz er nú á förum
til Frakklands þar sem hann mun
„njósna”um portúgalisem verða mót-
herjar okkar i undankeppni HM mi
Austurriki eftir einn mánúð.
Sjá nánar um leikinn á bls. 9
Tvö fylgirit í dag, Helgarblað og útvarps- og sjónvarpsblað