Vísir - 29.01.1977, Blaðsíða 10
10
Laueardagur 29. ianúar 1977 VISIR
VÍSIR
(Jtgefandi:Reykjaprent hf.
Franikva-mdastjóri: Iíavfft Gu&mundsson
Kitstjórar :!>orsteinn Fálsson ábm.
ólafur Hagnarsson
Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Kréttastjóri erlendra frétta: GuBmundur Pétursson. Um-
sjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar Guöfinnsson, Elias
Snæland Jónsson. Finnbogi Hermannsson. Guöjón Arngrimsson. Kjartan L. Pálsson, Oli Tynes,
Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. Ctlitsteiknun: Jón Oskar Hafsteinsson og Magnús Olafsson. Ljós-
myndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr Sigurösson.
Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Auglý singar: II verfisgata 44.Slmar II6C0. 8B0H
Afgreiösla : II verfisgata 44. Slmi K6611
Ritstjón :Sföumúla 14. Sími 86611. 7llnur
Akureyri.Slmi Ð6-I980C
Askriftargjaid kr. 1100 á mánuöi innanlands.
Verö I lausasölu kr. 60 eintakiö.
Prentun: Hlaöaprent hf.
Smyglarar og sölumenn
viðsjárverðra vimugjafa
Höfuðpaur mesta fíkniefnamáls, sem upp hefur
komistá islandi, komstá hinn furðulegasta hátt út úr
fangelsi varnarliðsins á Kef lavíkurflugvelli á dögun-
um. Leit að honum sem í fyrstu virtist heldur fálm-
kennd og skipulagslftil, hefur enn engan árangur borið
og svo virðist sem yfirvöld hafi heldur litlar áhyggjur
af málinu.
Talsmenn varnarliðsins vildu ekki tjá sig um þenn-
an atburð fyrr en á fimmtudag, rúmri viku eftir að
hann átti sér stað. Þá var loks skýrt frá atburðarás-
inni og reyndust fangaverðirnir hafa sýnt vítavert
kæruleysi við störf sín, og er með éindæmum hvernig
gæslufanginn hefur komist á brott og gert sjálfur
ýmsar ráðstafanir áður en eftirför er hafin.
Þetta er ekki einungis mál bandaríska varnarliðs-
ins. Mál þessa manns snertir okkur íslendinga veru-
lega, þar sem bandaríkjamaðurinn hefur orðið til þess
að f jöldi íslenskra ungmenna hefur leiðst út f feigðar-
flan ávanaefna og eiturlyfja. Hann er talinn hafa
fjármagnað og hafa haft milligöngu um smygl á
meira magni fíkniefna hingaðtil lands en nokkur ann-
ar maður.
Sakadómur i ávana- og fikniefnamálum hefur upp-
lýst, að á annað hundrað íslensk ungmenni hafi tengst
þessu umfangsmikla smyglmáli og vegna rann-
sóknarinnar hafi verið kveðnir upp rúmir tveir tugir
gæsluvarðhaldsúrskurða. ötulum rannsóknarmönn-
um hefur tekist að sanna ólöglegan innflutning á
fikniefnum að söluverðmæti um 50 milljónir króna í
sambandi við þetta mál.
Lengi vel lokuðu yfirvöld dómsmála augunum fyrir
því að fíkniefnasala og notkun væri orðin teljandi hér
á landi og ýmsir málsmetandi menn vildu ekki viður-
kenna vandamálið opinberlega. Þó fór svo um síðir,
að þjóðinni varð Ijóst, að við hlytum að kynnast þessu
vandamáli, enda bjóða dagleg ferðatengsl við um-
heiminn hættunni heim.
Síðustu tvo áratugina hefur misnotkun ávana- og
fíkniefna breiðst út í nágrannalöndum okkar með
ógnvekjandi hraða, einkum meðal ungs fólks. Þar
hafa þessi efni valdið neytendunum félagslegri og
geðrænni örorku og jafnvel dregið þá til dauða.
Þessi sorglega reynsla annarra þjóða hefði átt að
verða okkur víti til varnaðar í þessum efnum, en sú
hefur þó ekki orðið raunin.
Nú er svo komið, að skólaæska landsins leiðist i si-
fellt ríkari mæli út í neyslu ávana- og fíkniefna, og í
gær skýrði Stefán Jóhannsson, félagsráðunautur á
Vífilsstaðaspítala, frá þvi í þessu blaði, að hasssala
færi fram í öllum framhaldsskólum i Reykjavik.
Félagsráðunauturinn fullyrti, að hægt væri að
ganga inn á veitingastaði í Reykjavík og kaupa þar
hass að vild. Hér er um að ræða mjög alvarleg tíðindi.
Þessa óheillaþróun verður að hefta, og má ekkert til
spara í þvi sambandi. Verulega verður að herða allt
eftirlit með ólöglegum innflutningi fíkniefna og má
einskis láta ófreistað til þess að hafa upp á þeim aðil-
um, sem annast smygl eða sölu þeirra.
Það verður einnig að koma lögum yfir þá menn,
sem bera ábyrgð á því að spilla framtið islenskrar
æsku með þessum bölvaldi, og á það meðal annars við
um þann forsprakka eiturlyfjasalanna, sem nú geng-
ur laus. Almenningur og yfirvöld verða að taka hönd-
um saman um að afhjúpa þessa smyglara og sölu-
menn og uppræta þá viðsjárverðu vímugjafa, sem
þeir dreifa.
A fundi Kvenréttindafélags tslands um skattalagafrumvarpió kom fram mikil andstaóa gegn hug-
myndunum um sköttun einstaklinga.
„Skref oftur ó bak"
— var ólit fundarmanna ó skattalagafundi
Kvenréttindafélagsins ó skattafrumvarpinu
„Flestir þeirra sem tdku til
máls á fundinum töldu aö hváö
varöandi jafnstööu hjóna væri
meö frumvarpinu stigiö skref
aftur á bak,” sagöi Sólveig
óiafsdóttir formaöur Kvenrétt-
indafélags tslands f samtali viö
Visi.
Kvenréttindafélagið efndi á
fimmtudaginn til fundar um
skattamál i tilefni þess aö þann
dag voru 70 ár liðin frá stofnun
félagsins. A fundinum lýstu full-
trúar fjármálaráöuneytisins,
ASt, BHM, BSRB, Jafnréttis-
ráös, Kvenfélagasambands ís-
lands, Stéttarfélags bænda og
Vinnuveitendasambandsins
álitisinu á skattalagafrumvarpi
rikisstjórnarinnar.
„Mér fannst fundurinn vera
mjög gagnlegur. Þarna var
margt fólk mætt, liklega 130 til
140 manns þegar flest var, og
voru erindi frummælendanna
mjög fróðleg,” sagöi Sólveig.
Mismunandi mikil and-
staða
„Menn lýstu mismunandi
mikilli andstööu viö frumvarp-
iö, en flestir sem töiuöu mæltu
gegn þvi á einhvem hátt. Flestir
héldu sig viö aö ræöa sköttun
einstaklinga og var nokkurn
veginn einróma skoöun manna
aö sérsköttun meö millifærslu-
leiö væri æskileg.
Kom fram aö menn telja þörf
á aö endurskoöa betur sköttun
einstaklinga og fjölskyldna,
þannig aö útkoman veröi rétt-
lát,og þá ekkiaöeins útfrá jafn-
réttissjónarmiöum. Þaö þurfi
aö athuga þessi mál miklum
mun betur áöur en viö lendum i
þvi aö fá yfir okkur lög sem eru
aöeins bráöabrigöalausn, en
standa svo kannski óbreytt i 20
ár eins og 50%- reglan.
Viö þurfum aö vera alveg viss
um aö þetta sé þaö sem við ósk-
um aö hafa i náinni framtib. En
ef eitthvað mark verður tekið á
þeim fundum sem hafa verið
haldnir aö undanförnu, ætti aö
minnsta kosti skattlagning ein-
staklinga aö verða tekin til end-
urskobunar áður en frumvarpið
veröur ab lögum.”
Stjórn Kvenréttindafélagsins
hyggst senda Alþingi formlega
umsögn um frumvarpið i næstu
viku.
— SJ
Úthlutun listamannalauna:
Þrír nýir fora í
u
flokkinn
„orugga
Sautjón milljónum króna úthlutað til á annað
hundrað listamanna.
Cthlutunarnefnd listamanna-
launa lauk störfum i gær. Út-
hlutaöi nefndin 17 milijónum
króna til 125 listamanna.
t nefndinni eíga nú sæti Hail-
dór Kristjánsson ritstjóri, for-
maöur,. Jón R. Hjálmarsson
fræöslustjóri, Helgi Sæmunds-
son ritstjóri, Hjörtur Krist-
mundsson fyrruni skólastjóri,
Magnús Þóröarson fram-
kvæmdastjóri, ólafur B. Thors
lögfræöingur og Sverrir
Hólmarsson M. Litt.
Samkvæmt úthlutunarreglum
eru listamannalaun i tveimur
flokkum og er listamönnum i
efri flokknum veittar 180 þúsund
krónur, en i neöri flokki nemur
úthlutunin 90 þúsund krónum.
Nú eru 65 i hærri flokki, þar af 3
nýir: Atli Heimir Sveinsson,
Eyjólfur Eyfells og Þórleifur
Bjarnason. Þaö er hefö aö menn
séu ekki látnir út eftir aö þeir
eru'komnir i hærri flokk.
Núeru i úthlutun 28listamenn
sem ekki voru meö i fyrra, þar
af 14 sem aldrei hafa notiö lista-
mannalauna á vegum nefndar-
innar fyrr.
Myndlistamenn
sækja á
Bókmenntamenn voru 29 i efri
flokknum og 22 i hinum, mynd-
listarmenn 19 og 22, tónlistar-
menn 14 og 11 og leikarar 3 og 5.
Það kom fram á fundi nefndar-
innar meö blaöamönnum aö út-
hlutaö er eftir einstaklingsmati
en ekki reynt aö samræma hlut
hinna ýmsu listgreina.
Upphaflega hlutu aöeins bók-
menntamenn listamannalaun,
en þa ö hefur veriö aö breytast á
undanförnum árum. Mynd-
listarmenn hafa sótt nokkuö á,
bæöi vegna þess aö þeim hefur
fjölgað mjög og eins vegna þess
aö rithöfundar eru komnir meö
sérstakan sjóð, þar sem for-
'maöur nefndarinnar sagöi aö
væri eftir meiru aö slægjast en
hjá þessari nefnd.
Sagöi hann aö engar reglur
væru um þaö hvernig væri valiö,
en þaö heföi áhrif á nefndar-
menn hvort sæmilega væri gert
viö viðkomandi eöa ekki.
Auk þeirra 125 listamanna
sem nefndin úthlutaöi til veitti
Alþingi launum til 12 lista-
manna. Námu þau 500 þúsund
krónum hver, og hlutu þau þess-
ir menn:
Asmundur Sveinsson
Finnur Jónsson
Guömundur Danielsson
Guömundur G. Hagalin
Halldór Laxness
Indriði G. Þorsteinsson
Kristmann Guömundsson
Rikharöur Jónsson
Snorri Hjartarson
Tómas Guömundsson
Valur Gislason
Þorvaldur Skúlason
-SJ.