Vísir - 29.01.1977, Blaðsíða 11
SJÓNVARP KLUKKAN 21.40:
Humphrey Bogart lék mikiö á móti konu sinni Lauren Bacall. Hér
eru þau meO syni sinum tveggja ára gömlum.
Um ooro 1 íljótabátnum. Bogart er aðsmyrja eitthvert apparat og Hepburn horfir á.
móti Katharine Hepburn sem er
önnur konan sem þótti passa
sérstaklega vel sem mótleikari
Bogarts. Hin var Laureen
Bacall, fjórða konan hans.
Katharine Hepburn er ein af
fáum Hollywoodleikkonum sem
tókst að halda vinsældum sinum
þegar aldurinn færðist yfir
hana. Flestar draga sig i hlé
þegar þær nálgast fimmtugs-
aldurinn, en Heburn færðist öll i
aukana og hefur sennilega
aldrei veriðbetrien nú. Hún var
i essinu sinu þegar hún lék i
gamanmyndum á móti Spencer
Tracy, en þær urðu ekki svo fá-
ar. Eftir frekar litia þjálfun á
leiksviði lék hún i sinni fyrstu
kvikmynd og sló i gegn. Þrisvar
hefur hún hlotið Óskarsverð-
laun, siðast fyrir leik sinn i
myndinni Lion in Winter.
1 Afrikudrottningunni leikur
hún piparkerlingu, á þokkaleg-
um aldri þó, sem veröur ást-
fangin af drykkfelldum sjóara,
og þau átti eftir að verða fleiri
piparkerlingar hlutverkin sem
hún lék. Hún er ein af virtustu
leikurum sem nú eru starfandi.
Þaö er óhætt að mæla með
Afrikudrottningunni þvi þar er á
ferðinni eitt af meistaraverkum
kvikmyndanna.
GA.
Þaö er engin smáræðismynd
sem sjónvarpið býður uppá i
kvöld. Það er Afrikudrottningin
(The African Queen), ein þekkt-
asta mynd sem gerö hefur ver-
ið.
Þar segir frá systkynum
Samúel og Rose, sem starf-
rækja trúboðsstöð i Mið-Afriku
árið 1915. öðru hverju kemur til
þeirra drykkfelldur skipstjóri.
Þýskt herlið leggur trúboðsstöð-
ina i rúst með þeim afleiðingum
að Samúel andast skömmu sið-
ar.
John Houston, sem er leik-
stjóri, stýröi sinni fyrstu mynd
árið 1941, (The Maltise Falcon)
mynd um harðan einkaspæjara.
Þá hófst einnig samstarf hans
og Humphry Bogart sem lék
spæjarann, en þeir áttu eftir að
vinna þó nokkuð saman.
Houston fæddist i Bandarikj-
unum árið 1906. Hann hefur að-
allega fengist við leikstjórn, en
einnig hefur hann leikið i nokkr-
um myndum, bæði sinum og
annara. Myndir hans bera jafn-
an keim af einkalifi hans sem
hefur verið viðburðamikið og
fjörugt. Hann fer gjarnan sinar
eigin leiðir og hefur af þeim sök-
um oft lent i útistöðum við yfir-
boðara sina i kvikmyndaverun-
um. Hann berst mikið á, bæði i
kvikmyndum og einkalifi, og
það hefur stundum orðið til
þess, að það sem hann hefur
viljað koma á framfæri með
myndum sinum hefur farið fyrir
ofan garð og neðan hjá fjöldan-
um. Hann hefur verið ábyrgur
fyrir fjölmörgum nýjungum,
sérstaklega i sambandi við
notkun lita, en oft hafa myndir
hans ekki hlotið náð fyrir aug-
um þeirra sem fjármagnið hafa,
og af þeim sökum orðið að gang-
ast undir meiri háttar skurðað-
gerðir og úr þeim hafa verið
tekin mörg atriði.
Houston eyddi æskuárum sin-
um á ferðalögum með móður
sinni. Hann stundaði hnefaleika,
söng, var riddaraliði, smá-
sagnahöfundur og málari. Hann
skrifaði handrit fyrir breskt
kvikmyndafélag þangað til
hann fór til New York og gerðist
sviðsleikari.
Rétt fyrir 1940 fór hann til
Hollywood, var þar til 1952, en
siðan hefur hann litið unnið 1
Hollywood. Hann hefur gert
mörg dýr mistök sem leikstjóri,
en á milli hefur hann gert frá-
bærar myndir, eins og t.d.
Afrikudrottninguna. Hann gerði
og gerir enn svolitið af þvi að
leika, oftast i myndum sem
þykja honum ekki samboðnar.
En það voru myndirnar sem
hann og Humphrey Bogart unnu
saman að sem voru vendipunkt-
ur i ferli þeirra beggja. Bogart
sem fæddist aldamótaárið var
einn af þeim allra stærstu i
Hollywood. Hann var oftast nær
i hlutverkum harðsviraðra ná-
unga sem voru, þegar allt kom
til alls, góöhjartaöir. Mörgum
árum eftir aö hann lést urðu
myndir hans aftur vinsælar og
margar eru orðnar sigildar.
Bogart var i sjóhernum i
fyrra striðinu, og vann siðan á
verðbréfamarkaöi um tima.
Hann fór i leikskóla, en var þar
ekki lengi, of hóf leik á Broad-
way. Hann lék i sinni fyrstu
mynd áriö 1930, en vakti enga
athygli, og eftir að hafa leikið I
nokkrum til viöbótar, sneri
hann sér aftur aö sviðsleik, allt
þangað til hann lék glæpamann i
myndinni The Petrifield Forest
árið 1936. Hann varð þriðji
„gangsterinn” i Hollywood og
kom á eftir James Cagney og
Edward G. Robinson. En fyrsta
mynd hans undir stjórn Houst-
ons átti eftir að breyta þvi. Eftir
þá mynd lék hann yfirleitt bitra,
lifsreynda, harða menn á yfir-
borði en gæðasálir inn við bein-
iö. Það var þó ekki fyrr en i
Afrikudrottningunni (1951) sem
hann fékk viðurkenningu fyrir
dramatiskan leik, en þá fékk
hann lika Óskarsverðlaunin. t
Afrikudrottningunni lék hann á
AFRIKUDROTTNINGIN
Það er enginn svikinn þótt hann góni á sjónvarpið í kvöld
Laugardagur
29. janúar
17.00 tþróttir Umsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
18.35 Emií i KattholtiSænskur
myndaflokkur byggður á
sögum eftir Astrid Lind-
gren. Uppboöiö. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
19.00 lþróttir
Hlé
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Augiýsingar og dagskrá.
20.30 Fleksnes. Norskur
gamanmyndaflokkur, gerð-
ur i samvinnu við sænska
sjónvarpið. Heimboðið Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson
(Nordvision — Norska sjón-
varpið).
20.55 Hjónaspil Spurninga-
leikur. Lokaþáttur Þátttak-
endur eru fern hjón, ein úr
hverjum hinna fjögurra
þátta, sem á undan eru
gengnir. Einnig koma fram
Jakob Magnússon og söng-
ftokkurinn Randver. Spyrj-
endur Edda Andrésdóttir og
Helgi Pétursson. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.40 Afrikudrottningin (The
African Queen) Bandarisk
biómynd frá árinu 1952.
Leikstjóri John Huston.
Aðalhlutverk Humphrey
Bogart og Katherine Hep-
burn. Sagan gerist i Mið-
Afriku áriö 1915. Systkinin
Samuel og Rose starfrækja
trúboðsstöð. Oðru hverju
kemur til þeirra drykkfelld-
ur skipstjóri. Þýskt herlið
leggur trúboðsstöðina i rúst
meö þeim afleiðingum, aö
Samuel andast skömmu
seinna. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
30. janúar
16.00 llúsbændur og hjú
Breskur myndaflokkur.
Astarinnar vegna. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
17.00 Mannilfið Unglingsárin
Timabilið frá 13 til 18 ára
aldurs hefur oft veriö talið
mesta umbrotaskeiðið á ævi
mannsins. 1 myndinni er
lýst viðhorfum unglinga til
umhverfisins, þar á meöal
heimilis og skóla. Rætt er
við unglinga, sem hafa lent
á villigötum, eins og þaö er
nefnt, og foreldrar segja frá
reynsiu sinni i uppeldismál-
um. Þýöandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar Sýndar
veröa myndir um Kalla i
trénu og Amöiku, siðan seg-
ir Hjalti Bjarnason söguna
um lyftingageimveruna
miklu og farið verður i
heimsókn á dagheimiii. 1
seinni hlutanum verður
sýnd önnur myndin úr
norska myndaflokknum
Meðan pabbi var I
Grini-fangelsinu. Umsjón
Hermann Ragnar Stefáns-
son og Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
19.00 Enska knattspyrnan
Kynnir Bjarni Felixson.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 HeimsóknFyrir 40 árum
hófu systur St. Fransiskus
arreglunni rekstur sjúkra
húss i Stykkishólmi og hafa
rekiö það siðan. Auk sjúkra-
hússins starfrækja þær
einnig prentsmiðju og
barnaheimili. Sjónvarps-
menn heimsóttu reglu-
systurnar um miðjan þenn-
an mánuð og kynntu sér
starfsemi þeirra og lifsviö-
horf. Umsjón Magnús
Bjarnfreðsson. Kvikmynd-
un Sigurliði Guömundsson.
Hljóö Jón Arason. Kiipping
Ragnheiður Valdimarsdótt-
ir.
21.25 Allir eru að gera það gott
Siðari skemmtiþáttur með
Ríó. Agúst Atlason, Helgi
Pétursson og Gunnar
Þórðarson flytja lög viö
texta Jónasar Friðriks og
bregða sér i viðeigandi
gervi. Umsjón Egill Eð-
varðsson.
21.45 Saga Adanis-fjölskyld-
unnar Bandariskur fram-
haldsmyndaflokkur. Loka-
þáttur. Charles Francis
Adams II. iðjuhöldur. Efni
tólfta þáttar: Synir Charles
Francis Adams, Henry og
Charles Francis II, velja sér
ólik störf að lokinni
borgarastyrjöldinni. Henry
fæst framan af við blaða-
mennsku og háskóla-
kennslu, en siöar veröur
hann virtur sagnfræöingur.
Eiginkona hans tekur frá-
fall föður sins ákaflega
nærri sér og styttir sér
aldur. Charles Francis II
stýrir stóru járnbrautar-
fyrirtæki. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.45 Að kvöldi dags Séra
Grímur Grimsson
sóknarprestur i Aspresta-
kalli I Reykjavik, flytur
hugvekju.
22.55 Dagskrárlok